Vikan


Vikan - 29.11.1990, Qupperneq 20

Vikan - 29.11.1990, Qupperneq 20
stjórnmál og þar erum við ekki alltaf sammála. Það er engin lognmolla á heimilinu þegar rætt er um stjórnmál en það er líka fljótt aö lygna aftur. Lestur er okkur hugleikinn og þá sérstak- lega Sigurði sem varla er kominn inn úr dyrun- um þegar hann er kominn með bók í hönd.“ Hún segir Sigurð mikinn fagurkera og snyrti- menni. Börnunum sínum hafi hann verið góður faðir en uppeldið hafi máski komið meira í hennar hlut fyrr á árum þegar hann var svo störfum hlaðinn að hann rétt kom heim til að sofa. Slgurður ásamt eiginkonu sinni, Aldisi Benediktsdóttur, og tveim sonum, þeim Kjartani Emil t.v. Dóttirin er elst barnanna og er i háskólanámi í Finnlandi. Hún er fréttaritari Ríkisútvarpsins þar í landi. hann við að Sigurður hafi ekki tekið upp „ameríska" tískufyrirbrigðið í stjórnun - að vera bossinn með hörkuna að leiðarljósi. Sjálf- ur segist Sigurður telja sig vera þjón fólksins en ekki herra því Húsnæðisstofnun ríkisins sé til að veita fólkinu í landinu fyrirgreiðslu en ekki fólkið stofnuninni. Hann er vinsæll yfirmaður og um það getur starfsfólk stofnunarinnar vitnað. Hann er maður fólksins og treystir því fullkomlega - tekur aldrei fram fyrir hendur þess. Enda segja starfsmenn Húsnæðisstofn- unar vart hægt að hugsa sér Ijúfari yfirmann - hann gefi sér ætíð tíma til að bjóða góðan dag og sþjalla smávegis. Þrátt fyrir það bera allir virðingu fyrir honum. í því felst einmitt hugsjón Sigurðar, jafnaðarmennskan; enginn er yfir annan hafinn, hver hefur sitt starfssvið. And- ann innan stofnunarinnar segir starfsfólkið ein- stakan. Mannaskipti eru afar fátíð og vitnar það vissulega um hve fólk er þar ánægt - þrátt fyrir að laun hjá ríkinu séu ekki upp á marga fiska. SKAPSTÓR EN KANN AÐ FARA MEÐ SKAPIÐ BEITA ÞVÍ RÉTT Hallgrímur Dalberg, fyrrverandi ráðuneytis- stjóri í félagsmálaráðuneytinu, átti um árabil náin samskipti við Sigurð. Hallgrímur ber hon- um vel söguna. Hann segir samskipti þeirra hafa verið góð þó þeir væru ekki alltaf sam- mála. „En það leiddi aldrei til vonsku á milli okkar." Hann segir Sigurð sérlega samstarfs- góðan og vel að sér hvað mál stofnunarinnar varðar. „Hann er varkár og gætir þess að taka ekki stórt upp í sig. Hann lætur ekkert út úr sér nema vera hárviss um að fara með rétt mál. En hann er skapstór og hefur þann kost að kunna að fara með skaþið - beita því rétt. Ég tel hann tvímælalaust réttan mann á réttum stað,“ segir Hallgrímur Dalberg. Um Sigurð E. Guðmundsson hefur Jón Baldvin Hannibalsson eftirfarandi að segja: „Ég hef ekki þekkt Sigurð E. náið, þó hef ég haft af honum góð kynni í flokksstarfi fyrir Al- þýðuflokkinn fyrr á árum. Til starfa hans hjá stofnun, sem mikið hvílir á, þekki ég lítið. En það sem kunningsskapurinn staðfestir fyrir mér er að Sigurður er að upplagi einlægur og staðfastur jafnaðarmaður eins og hann hefur verið frá unglingsárum. í umgengni við annað fólk hefur hann, eftir þvi sem ég best veit, jafn- an verið hjálpfús, tillitssamur og góðviljaður. Einkum í garð þeirra sem minna mega sín og hafa þurft á aðstoð að halda," segir Jón Baldvin. „ENGIN LOGNMOLLA Á HEIMILINU ÞEGAR RÆTT ER UM STJÓRNMÁL" í einkalífinu hefur Sigurður verið lánsamur. Hann er kvæntur Aldísi Benediktsdóttur, full- trúa í hagdeild Landsbanka íslands, og eiga þau saman þrjú börn. Aldís segir hann Ijúfan eiginmann og telur sig hafa valið rétt þegar hún ákvað að deila lífinu með Sigurði. „Hann er skapstór, sem kemur líklega mörgum á óvart - en það er fljótt að breytast. Við skiptum með okkur verkum hér á heimilinu og höfum bæði gaman af að spjalla, sérstaklega um ER SÉRLEGA ÆTTRÆKINN OG HELDUR FJÖLSKYLDUNNI SAMAN Tvö af systkinum Sigurðar, tvíburarnir Krist- in Guðmundsdóttir, skrifstofustjóri hjá Land- læknisembættinu, og Þorgrímur Guðmunds- son, lögregluvarðstjóri og formaður Lands- sambands lögreglumanna, muna vel þá tíð þegar faðir þeirra veiktist og stóri bróðir tók við hlutverki heimilisföður. „Siggi var stólpinn sem við gátum alltaf reitt okkur á. Hann hjálpaði okkur með heimanámið þegar við vorum að hefja skólagöngu og við litum mjög upp til hans. Allar götur síðan hefur hann verið sá sem við leitum til þegar við þurfum á ráðlegg- ingum að halda. Hann er sérlega ættrækinn og heldur fjölskyldunni saman. Það er ekki hægt að segja annað en sambandið á milli okkar systkinanna allra sé mjög náið." Þorgrímur bætir við að þegar fjölskyldan stóð í því að koma sér upp þaki yfir höfuðið í fyrsta sinn hafi Siggi bróðir verið driffjöðrin í því - löngu áður en hann hóf störf hjá Húsnæðisstofnun. „Það var í gegnum Byggingasamvinnufélagið Fram- tak sem ég held að hafi verið það fyrsta sinnar tegundar. Þar unnum við myrkranna á milli og fluttum síðan inn, öll systkinin ásamt mömmu og pabba sem í fyrsta sinn bjuggu við öryggi í húsnæðismálum og var víst kominn tími til,“ segir Þorgrímur. JÓHANNA: „SIGURÐUR SJÓAÐUR í AÐ VERJA STOFNUNINA.. Björgvin Guðmundsson, fyrrum borgarfull- trúi Alþýðuflokksins, er mikill og góður vinur Sigurðar. Þeir hafa verið samstiga í pólitík frá upphafi og tilheyra báðir gamla kjarnanum ( flokknum. Björgvin tekur í sama streng og aðrir viðmælendur blaðsins hvað varðar mannkosti Sigurðar. Hann segir Sigurð vera einn af fáum sem kalla megi kjölfestu flokksins. Svo trúr sé hann Alþýðuflokknum að þrátt fyrir ýmis áföll hafi aldrei hvarflað að honum að segja sig úr flokknum - eða ganga í annan eins og títt er um þessar mundir og hefur ekki verið óalgengt síðari ár. „Það sýnir hve mikill hugsjónamað- ur hann er og tryggur hugsjónum sínum. Það kom líka í minn hlut að koma á sáttum í flokknum þegar Sigurður féll fyrir Bjarna og þar tel ég Sigurð hafa vaxið og borið sigur úr být- um þegar upp var staðið," segir Björgvin. En látum Jóhönnu Sigurðardóttur félags- málaráðherra eiga lokaorðin. „Við Sigurður erum ekki alltaf sammála og okkur hefur greint á í ýmsu. Til að mynda höfum við ekki alltaf verið sammála um verkefni og sjálfstæði stofn- unarinnar. En Sigurður er sjóaður í að verja stofnunina og gerir það með sóma þegar að henni hefur verið ómaklega vegið - og ekki síst hefur hann unnið af samviskusemi og látið hag stofnunarinnar ganga fyrir." □ 20 VIKAN 24. TBL 1990
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.