Vikan - 29.11.1990, Síða 23
í sumum bókum er íkorninn kallaður rotta,
nautið vísundur, kötturinn kanína og geitin
kind. Kínverjar taka skýrt fram að menn fæðist
ekki undir áhrifum tveggja samsíða merkja. Sá
sem er til dæmis fæddur 12. febrúar árið 1883
er því hundur en sá sem erfæddur 13. febrúar
sama ár er svín. Tímabilin eru miðuð við tungl-
komur og tímajöfnun sem hlaupársdagar hafa
engin áhrif á. Hins vegar fléttast alltaf tvö og
tvö ár saman undir einum frumkrafti eða elem-
enti. Hver frumkraftur hefur sterk sérkenni eins
og eftirfarandi lýsingar bera með sér.
MÁLMUR
(ártöl sem enda á 0 og 1 + fyrstu vikur ártala
sem enda á 2). Manneskjur sem fæddar eru
undir þessum frumkrafti eiga það til að vera
eins ósveigjanlegar og einbeittar og stjörnu-
merki þeirra leyfir. Þær eru tilfinningaríkar og
oft fljótar að taka ákvarðanir. Þær setja sér
gjarnan ákveðin markmið og hafa mikinn
áhuga á velgengni. Erfitt er að fá þær til að
skipta um skoðun þegar þær hafa ákveðið sig,
jafnvel þótt fyrirætlanir þeirra mistakist eöa
þær reki sig á veggi með skoðanirnar. Þeim
hentar vel að skipuleggja mál sín án utanað-
komandi áhrifa og hafa tamið sér góða yfirsýn
yfir viöfangsefni sín. Vegna þessarar þrjósku
fer minna fyrir aðlögunarhæfni í málmi en í
öðrum frumkröftum. Á hinn bóginn getur per-
sónuleiki þeirra verið segulmagnaður og marg-
ir málmhugar eiga gott með að stofna til kunn-
ingsskapar. Peningar skipta þá töluverðu máli
og eru margir hverjir gefnir fyrir íburð, verald-
argæði og jafnvel völd. Málmhugar mættu
temja sér meiri málamiðlunarviðleitni og tillit til
annarra skoðana en sinna eigin.
Frægir málmhugar eru til dæmis: Lucretia
Borgia, Walt Disney, Charles de Gaulle, Lud-
wig van Beethoven, Stevie Wonder, John
Lennon, Ringo Starr, Pablo Picasso, Neil
Armstrong, Federico Fellini, Walter Matthau,
Peter Ustinov, Alexander Dubcek, Ronald
Reagan og Lucille Ball.
VATN
(ártöl sem enda á 2 og 3 + fyrstu vikur ártala
sem enda á 4). Persónur sem stjórnast af
áhrifum vatnsins eiga að jafnaði gott með að
tjá sig og hafa áhrif á aðra. Hugir annarra virka
þá sem farvegir til að koma skapandi hug-
myndum vatnsins á framfæri. Vatnshugar
stjórnast í aðalatriðum af straumum samúðar
fremur en tilfinningasemi. Þeir hafa oft hæfi-
leika til að taka eftir réttum tækifærum og not-
færa sér þau. Á þann hátt geta þeir hagnýtt sér
ýmislegt í fari annars fólks án þess að það taki
eftir því. Eins og vatnið getur máð burtu harð-
asta stein með tímanum, eins geta vatnshugar
náð sínu fram með aðlögun fremur en
stjórnun. Margir þeirra hafa lag á að láta annað
fólk langa í það sem þá sjálfa langar í. Á hinn
bóginn eiga margir vatnshugar það til að velja
auðveldustu útleiðirnar. Þegar verst lætur eiga
þeir það til að vera hlutlausar og láta aðra sjá
um að koma hlutunum (verk. Til að ná árangri
ættu þeir að rækta betur hæfni sína til að hafa
áhrif á aðra eða treysta betur á innsæi sitt.
Frægir vatnshugar eru til dæmis Willy
Brandt, Jóhannes Páll II. páfi, Vincent van
Gogh, Richard Nixon, Ólafur Noregskonungur,
Mae West, Johannes Brahms, Mao Tze Tung,
Mary Pickford, Franklin D. Roosevelt, Paul
McCartney, Barbra Streisand, Raquel Welsh,
John Denver, Bobby Fisher, Leonardo da
Vinci, Charles Dickens, Edward Kennedy, Zsa
Zsa Gabor, Pierre Cardin, Ava Gardner, Maria
Callas, Norman Mailer og Henry Kissinger.
TRÉÐ
(ártöl sem enda á 4 og 5 + fyrstu vikur ártala
sem enda á 6). Trépersónur eða gróðurhugar
eru vandir að virðingu sinni og eru yfirleitt með
sjálfstraustið í lagi. Þeir hafa næmt verðmæta-
mat og oft fjölbreytt áhugamál. Víðsýni er
mörgum þeirra í blóð borin og þar af leiðandi
geta þeir verið stórhuga og lætur vel að skiþu-
leggja fram í tímann. Aftur á móti hættir mörg-
um þeirra til að reisa sér hurðarás um öxl og
geta því ekki lokið við hafin verk. Þeir hafa gott
lag á að fá hæft fólk til að vinna með sér. Líkt
og tréð breiðir út greinar sínar eins tekst mörg-
um gróöurhugum að beita áhrifum sínum.
Þeim tekst til dæmis mjög gjarnan að fá stuðn-
ing eða fjármagn þegar þeir þurfa á því að
halda til að hrinda hugmyndum í framkvæmd
þvi að fólk hefur trú á hæfileika þeirra til að
græða á góðum hugmyndum. Aftur á móti gæti
þeim hætt til, ef þeim tekst ekki vel upp, að
byrja á mörgu en enda fátt.
Meðal frægra gróðurhuga eru William
Shakespeare, Sidney Poitier, Marlon Brando,
Doris Day, Margaret Thatcher, Peter Sellers,
Richard Burton, Alec Guinness, Orson Welles,
Ingrid Bergman, Salvador Dali, Greta Garbo,
Howard Hughes, Nikita Khrushchev, Michael-
angelo, Rudolph Valentino, Mick Jagger, Elvis
Presley, Elton John, Harry S. Truman, Brigitte
Bardot, Winston Churchill, Sophia Loren, Julie
Andrews og Woody Allen.
ELDURINN
(ártöl sem enda á 6 og 7 + fyrstu vikur ártala
sem enda á 8). Menn sem fæddir er undir
þessum frumkrafti eru líklegir til að hafa sér-
staka leiðtogahæfileika. Þeir eru fullir sjálfs-
öryggis og eiga gott með að taka mikilvægar
ákvarðanir. Þeir eru óhræddir við að taka
áhættu, eru ágengir og hafa unun af ævintýr-
um. Þeim fellur líka vel að fara ótroðnar slóðir
og leitast við að stjórna öðrum með hugmynd-
um sínum. Þeim líkar betur að gera hlutina
heldur en að tala um þá. Sumir eldhugar eiga
til óþolinmæði og tillitsleysi og oft mæta þeir
andstöðu ef þeir ætla sér að fara of geyst (
sakirnar. Margir þeirra hafa meðfædda hæfi-
leika sigurvegarans og gæti orðið vel ágengt
með svolítilli tillitssemi. Þeir eru nefnilega best-
ir vina og því er gott að eiga þá að. En eins og
eldurinn fer hratt yfir og nærist á því sem er
eldfimt - eins er eldfólkiö að mörgu leyti.
Meðal frægra eldhuga eru Wolfgang Ama-
deus Mozart, Yves St. Laurent, Robert
Redford, Dustin Hoffman, Boris Spassky,
Frh. á bls. 26
24. TBL. 1990 VIKAN 23