Vikan - 29.11.1990, Page 28
TEXTI: JÓHANN GUÐNI REYNISSON
Halló! Þetta er Jón Páll í
sjálfvirkum símsvara. Ég
er staddur erlendis og
kem ekki heim fyrr en
þann átjánda þessa
mánaðar. Ef þú vilt að ég
hafi samband við þig þá
skildu eftir skilaboð eftir
að hljóðmerkið heyrist.
Takk fyrir, bless.
Maður mátti svo sem vita að á
einhverju sem þessu væri von
þegar hringt væri í hinn eina
sanna konung aflraunanna, Jón
Pál Sigmarsson. Maðurinn ekki á
landinu en væntanlegur innan
tíðar og það er örugglega biðar-
innar virði. Nokkrum dögum síðar
hitti ég Jón Pál, hrikalegan allan,
að Suðurlandsbraut 6 í Reykjavík
þar sem hann vinnur nú myrkr-
anna á milli við að koma í stand
eigin líkamsræktarstöð eða
„einni með öllu“ eins og hann
segir sjálfur.
REIF KÁLFA OG
SINAR TROSNUÐU
Við vindum okkur strax í að
spjalla um það sem allt snýst um
hjá honum, aflraunakeppnir. Frá
því fyrir ári, þegar hann keppti á
mótinu Heimsins sterkasti maður
á Spáni, þar sem hann tapaði titl-
inum og varð í þriðja sæti, hefur
Jón ekki tapað því sem hann vill
kalla alvöru aflraunamót eða stórt
aflraunamót. „Viku fyrir mótið á
Spáni keppti ég á móti í Finnlandi
og meiddist. Þar reif ég kálfa-
vöðva og einnig trosnaði upp úr
sinafestingum í fingri. En ég gat
gengið og hafði eitthvert grip í
meiddu hendinni og fór þannig í
gegnum mótið á Spáni af því ég
hafði titil að verja. Eftir að lenda
þar í þriðja sæti voru sárin sleikt
eftir bestu getu og haldið áfram
að æfa.“
Næsta mót var Kraftur ’89
mánuði síðar og þar keppti Jón
við Bretann Jamie Reeves,
Bandaríkjamanninn O.D. Wilson,
Kanadamanninn Tom Magee og
íslendinaana Magnús Ver og
Hjalta Árnason sem jafnframt
skipulagði mótið og Jón kveður
hafa tekist vel. Þar sigraði Jón
með naumindum en var þó ekki
góður af meiðslunum sem áður
eru nefnd.
28 VIKAN 24. TBL. 1990
HEIMSINS
STERKASTI
Jón Páll er núverandi sterkasti
maður heims og heldur titlinum í
fjórða skipti, nokkuð sem enginn
hefur leikið eftir honum. Auk þess
var Jón íslandsmeistari í vaxtar-
rækt árin '84, '86 og '88, jafnhliða
því að vera heimsins sterkasti
maður öll þau ár. 1984 var einnig
síðasta árið sem hann keppti í
kraftlyftingum og þá setti hann
Evrópumet í réttstöðulyftu og i
samanlögðu. „Ég á ekki von á að
sjá það leikið eftir mér á næstunni
að sami maður sé sterkasti mað-
ur heims, landsmeistari í vaxtar-
rækt og handhafi Evrópumeta í
kraftlyftingum, allt á sama árinu,"
segir Jón, greinilega stoltur af af-
rekum sínum líkt og íslenska
þjóðin öll. Þess má geta að Evr-
óþumet Jóns í samanlögðu var
ekki slegið fyrr en á þessu ári og
þá aðeins um 2,5 kg.
FINNSKAN
KEMUR SÉR VEL
En aftur í „síðkastið". Jón keppti
á alþjóðlegu aflraunamóti í Finn-
landi í maí, Nissan Power Cup.
„Ég er frægur nokkuð í Finn-
landi,“ segir Jón og kfmir. Auk
þess segist hann geta talað nokk-
uð í finnsku. „Ég get talað við
stelpurnar án þess að nota fingra-
mál. Það virðist falla vel í kramið
hjá Finnum að maður leggi það á
sig að læra tungumálið, það eru
ekki margir sem leggja út í það.“
Þremur vikum fyrir mótið Sterk-
asti maður heims keppti Jón á
móti f Jakobstad í Finnlandi en í
millitíðinni keppti hann á fjölmörg-
um mótum og eiga öll þessi mót
það sammerkt að sigurvegari var
Jón Páll Sigmarsson frá fslandi.
REIF ALLT FRÁ
BEINUNUM
Eitt af mótunum - og það mót
sem Jóni er hvað minnisstæðast
vegna slyss sem vinur hans lenti í
þar - var haldið í Skotlandi fyrir
um það bil þremur mánuðum.
Mótið, Scottish Power Challenge,
var haldið á George Square í
Glasgow og er talið stærsta afl-
raunamót ársins 1990. Þar voru
margir keppendur og keppt í
mjög mörgum greinum. „Grein-
arnar voru svo erfiðar að aðal-
málið var að komast í gegnum
mótið. Beina- og sinastyrkur
keppenda var reyndur til hins ýtr-
asta,“ segir Jón alvarlegur í
bragði og í svip hans má lesa að
von er á einhverju meiru í þess-
um dúr. Eftirvæntingin gerir vart
við sig í maga mínum þegar ég lít
á Jón þar sem hann situr þögull
og horfir í gaupnir sér. - Nú, segi
ég og rek þar með kurteislega á
eftir honum, ég vil fá að vita
meira.
Loks byrja orðin að streyma
upp úr þessu heimsþekkta kjöt-
fjalli og hann segir mér af alvar-
legu slysi sem varð á mótinu á
Georgstorgi. „Góðvinur minn,
Jamie Reeves, var að keppa í því
að velta bílum þegar hann sleit
upphandleggsvöðvann (bicep)
gjörsamlega frá beini með sinum
og öllu. Vöðvafestingarnar
hreinsuðust af. Hann gekkst undir
aðgerð strax daginn eftir og sögð-
ust læknarnir aldrei hafa séð
jafnsterklegar sinar og vöðvafest-
ingar í nokkrum manni. Við þetta
setti nokkurn beyg að mönnum
og sýnir hversu gífurlegt álag
fylgir keþpni í mótum sem
þessum. Hann er nú búinn að ná
sér það mikið að hann er farinn
að æfa og keþþa aftur, töluvert
frá sinu besta hvað armstyrk
varðar nú þremur mánuðum eftir
slysið, þrátt fyrir að læknar hafi
ráðlagt eins til eins og hálfs árs
hvíld frá æfingum og keppni."
Greinilega hefur atvikið komið við
Jón og segir hann það aðeins
hafa verið spurningu fyrir hvorn
þeirra þetta kæmi þar sem þeir
hafi báðir verið veikir fyrir á þess-
um líkamshluta.
LÆTSVALA
STRAUMA LEIKA
UM STUÐARANN
Á svokölluðum Víkingaleikum
skipuðu þeir Jón, Magnús Ver,
Hjalti, Daninn Henning og Finninn
Markku lið Víkinganna. Kepptu
þeir við heimsliðið og að sjálf-
sögðu unnu Víkingar frækinn sig-
ur að hætti forfeðra sinna en allir
komust að sjálfsögðu lífs af. Jón
Frh. á næstu opnu
„Ramboinn á Suöurlandsbraut-
inni!“ Jón verður varla svona
ófrýnilegur á svipinn þegar
hann tekur á móti nýjum
viðskiptavinum enda slíkt
viðmót ekki gott fyrir
viðskiptin.
JÓN PÁLL SIGMARSSON HVERGI BANGINN:
ER TIL í TYSON
EF HANN ÞORIR!