Vikan - 29.11.1990, Síða 30
GLEFSUR ÚR SMIÐJU
Q
Q
o
oo
po
L_U
o
o
oo
cz.
O
£L
Einn af athyglisverðustu
gamanleikurum Banda-
ríkjanna um þessar
mundir er Steve Martin.
Margir muna eftir honum úr
myndinni All of Me þar sem
sál forríkrar piparjónku tekur
yfir helming líkama hans og
nýjasta mynd hans, Dirty,
Rotten Scoundrels, hefur
fengið geysigóðar viðtökur
víða um lönd.
Steve Martin var annars
sprenglærður heimspekingur
þegar hann fór að koma fram
sem grínisti í sjónvarpsþátt-
unum Saturday Night Live.
Hann hefur alltaf samið sitt
eigið efni og þegar hann
hafði gefið út nokkrar grín-
plötur og var farinn að leika í
kvikmyndum settist hann
niður og skrifaði bókina Cru-
el Shoes. Það var árið 1977.
( henni eru nokkrar stuttar
sögur og fáránlegar athuga-
semdir. Ekki er vist að bæk-
ur hans hafi sést í bókabúð-
um hér á landi og ekki er víst
að allir botni mikið í þeim en
hér eru tvær stuttar frásagnir
úr fyrstu bók hans, Cruel
Shoes.
GRIMMIR SKÓR
Anna vissi að hún varð að
fá nýja skó í dag og Carlo
hjálpaði henni að máta alla
skóna í búðinni. Carlo sagði
þreytulega: „Ja, þetta voru
allir skórnir sem við höfum.“
„Ó, þú hlýtur að eiga eitt
par í viðbót."
„Nei, ekki eitt einasta
par...Ja, við höfum grimmu
skóna en enginn gæti
viljað..."
Anna greip fram í: Ó jú,
leyfðu mér að sjá grimmu
skóna.“
Carlo varð tortrygginn á
svipinn. „Nei, Anna. Þú skilur
ekki. Grimmu skórnir eru...“
„Náðu í þá!“
Carlo hvarf inn í bakher-
bergið eitt augnablik og kom
svo til baka með venjulegan
skókassa. Hann opnaði hann
og tók upp úr honum óhugn-
anlegar hvitar og svartar
bomsur, báðar á vinstri fót.
Önnur þeirra var með snún-
um framhluta með aðskildum
hólfum sem létu tærnar vfsa
í ólíklegustu áttir. Hin var
aðeins fimmtán sentímetra
löng og bogin inn á við eins
og ruggustóll með skrúf-
stykki og rakvélarblöðum til
að halda fætinum föstum."
Carlo sagði hikandi: „Nú
sérðu hvers vegna...þær eru
ekki fyrir mennska..."
„Færðu mig í þær.“
„En...“
„Færðu mig í þær.“
Carlo vissi að það þýddi
ekkert að þræta. Hann kraup
niður og þrælaði Önnu í
bomsurnar. Það heyrðust
ótrúleg öskur. Anna skreið
að speglinum og hélt blóðug-
um fótunum upp svo að hún
JÓN PÁLL
Frh. af bls. 28
vann einnig fleiri og smærri afl-
raunamót í Finnlandi, Skotlandi
og Englandi. „Stóra-Bretland er
eiginlega vagga sportsins. Þar
fara flest mót frarn," segir Jón og
rær sér, greinilega óþreyjufullur
eftir því að geta farið að gefa sér
tíma tii að TAKA Á aftur, það er
að segja taka á lóðunum. „Þar
fyrir utan hef ég keppt á fjöldan-
um öllum af Hálandaleikum þar
sem menn kasta þungum áhöld-
um, lóðum, símastaurum og
sleggjum, íklæddir skotapilsum."
Um það hversu stranglega hann
fylgi reglum heimamanna um
nærklæðnað segist hann að sjálf-
sögðu klæðast samkvæmt hefð-
inni. „Það er svo frískandi og
svalir straumar leika um stuðar-
ann,“ segir Jón, strákslegt bros
færist yfir allt andlitið. Það segir
manni að nú hafi honum dottið
eitthvað sérlega sniðugt í hug og
hann velti því fyrir sér hvort hann
eigi að láta það flakka. - Hvað?
spyr ég. Jón Páll hefur tekið
ákvörðun og nú verður ekki aftur
snúið. „Veistu af hverju Skotar
tóku upp á því að klæðast
pilsum?" spyr hann mig og ég
kveð nei við sannleikanum
samkvæmt. „Til þess að kindurn-
ar heyri ekki í rennilásnum!" Nú
var gert örstutt hlé á viðtalinu
meðan við jöfnuðum okkur á
þessari gamansögu Jóns og
hann sýndi krosslagða vísifingur
og löngutöng hægri handar. Síð-
an héldum við ótrauðir áfram.
,Þetta er ekkert mál fyrir Jón Pál!“ sagði Jón á eftirminnileg-
an hátt fyrir nokkrum árum. í dag er þetta gott og gilt
íslenskt máltæki sem á vel við þessa mynd.
REIF VÖDVA OG
SINAR í BÁTSLYFTU
„Nú síðast fyrir mánuði vann ég
titilinn heimsins sterkasti maður í
Finnlandi og mun reyna að verja
hann á næsta ári.“ Hvernig skyldi
vera með æfingar og undirbúning
hjá manni sem aldrei stoppar
lengi á hverjum stað og er sífellt á
þönum um heiminn? „Ferðalög
erlendis eru ekki góður undirbún-
ingur fyrir mót. Ég verð að vera
heima og æfa á fullu." En Jón
gekk heldur ekki heill til skógar
þegar hann náði titlinum aftur. „í
þriðju greininni, sem fólst í því að
lyfta báti, reif ég brjóstvöðva og
sinafestingar í öxl og mér fannst
ég eftir það ómögulegur allur.
Það er hægt að heimfæra þetta á
hnefaleika. Það má segja að ég
hafi verið sleginn niður í hverri
einustu lotu en náð að standa
upp á talningu eða verið bjargað
af klukkunni og þar af leiðandi
verið undir á stigum svo um mun-
aði en ekki gefist upp og trúað á
að ég næði rothöggi á andstæð-
ingana - sem tókst á síðustu sek-
úndunum í síðustu lotu.“
Talandi um hnefaleika segist
Jón vera mikill áhugamaður um
þá. „Og af því að maður verður
ekki ríkur á því að velta bílum
eða draga trukka þá datt mér i
hug að athuga með að komast
inn í hringinn og berja menn lög-
lega fyrir peninga eða vera barinn
ella. Ég talaði við umboðsmann
hnefaleikamanna í Skotlandi og
hafði hann litla trú á því að svona
stór og mikill maður ætti nokkra
möguleika í hringnum. Ég varð
því að sanna ágæti mitt fyrir hon-
um hreinlega með nokkrum vel
útilátnum pústrum. Þá sagðist
hann jafnvel geta komið mér í
hringinn með Frank Bruno, þeim
sem Tyson sló nýlega niður, í
sambandi við góðgerðarstarfsemi
eða þess háttar. En ég meiddist á
mótinu á Spáni og ekkert varð úr
þessum áformum."
Jón segist oft fara á hnefa-
leikaæfingar í Englandi með
áðurnefndum vini sínum, Jamie
Reeves. Þá tók Jón einu sinni æf-
ingu með þjálfara í Skotlandi.
„Þar lét hann mig berja sandpoka
í fimm þriggja mínútna lotum og
að því loknu lét hann mig elta sig
í hringnum þrisvar sinnum þrjár
mínútur. Þar eltist ég við hann og
barði á honum þar til yfir lauk og
þá var ég svo örmagna að mér
fannst ég hafa 80 kílóa handlóð í
hvorri hendi. Ég gat ekki einu
sinni kastað upp, svo útkeyrður
var ég.“
JÓN PÁLL TIL í
SLAGINN EF MIKE
TYSON ÞORIR!
„Ég hef mjög gaman af öllum
íþróttum þar sem maður er á móti
manni,“ segir Jón og skyldi eng-
an undra því að hann virðist geta
lumbrað á öllu og öllum sem í
hann þora. „Ef ég fæ nokkurra
vikna undirbúning og Tyson þorir
þá er ég til!“ segir hann án þess
að hika og ég trúi honum.
Jón er nýkominn frá Englandi
þar sem hann keppti í Newcastle
á mótinu World Muscle Power
Championships. Það mót vann
hann nú í fjórða skipti sem er ein-
stætt í sjálfu sér en þetta mót er
metið annað sterkasta aflrauna-
mótið, á eftir mótinu Heimsins
sterkasti maður. „Ég keppi ekki
meira á þessu ári þar sem ég er
að setja upp eigin líkamsræktar-
stöð og er í því frá átta á morgn-
ana til tólf á kvöldin. Ég hef lagt
allt undir nema beran botninn, á
hann til góða,“ segir Jón og hlær
við. □