Vikan


Vikan - 29.11.1990, Page 33

Vikan - 29.11.1990, Page 33
TEXTI: ÞORSTEINN EGGERTSSON BÓKMENNTIR: Vel launuð kvennastörf! og árið 1956 sendi önnur am- erísk kona, Grace Metalious, skáldsöguna Paylon Place frá sér. Það ár seldust sex milljón- ir eintaka af bókinni og fimm- tán árum síðar höfðu tólf millj- ónir selst. Höfundarlaun af þessari einu bók eru á annan milljarð króna. Ensku konurnar Fay Weldon, Margaret Drabble, Marilyn French og Doris Lessing, sem ekki eru beinlínis þekktar fyrir reyfara eða lúxusrómana, eru líka orðnar vellauðugar. Einn mest lesni rithöfundur Norðurlanda er Astrid Lindgren og frá Suður-Ameríku er það Isabel Allende. Satt að segja er auðugasti rithöfundur heimsins í dag kona; Barbara Cartland. Hún hefur skrifað fimm hundruð bækur og hefur iðulega verið fljótari að skrifa hundrað blað- síðna róman en venjuleg popphljómsveit er að hljóðrita tíu laga plötu. Hún hefur halað inn að minnsta kosti fjörutíu milljarða króna - fjörutíu þús- und milljónir - með skrifum sínum svo að starf rithöf- undarins virðist vera undan- tekning frá þeirri reglu að kvennastörf séu illa launuð. Höfundar ísfólksins og Bjarn- arfólksins eru til dæmis báðir konur og hafa grætt vel á skrif- um sínum. Margir af auðugustu rithöf- undum heimsins nú á dögum eru konur. Agatha Christie skildi eftir sig nokkra milljarða króna þegar hún dó og enn eru bækur hennar að seljast. Þar að auki fá erfingjarnir drjúgan skilding árlega í höf- undarlaun af leikritum og kvik- myndum byggðum á sögum hennar. Þótt Percy Bysshe Shelly sé eitt af dáðustu Ijóðskáldum breskra bókmennta var það seinni konan hans, Mary Shelly, sem gerði sér lítið fyrir og skrifaði eina skáldsögu sem er frægari en allt sem lár- viðarskáldið orti. Skáldsagan hennar heitir Frankenstein. Danielle Steele, sem skrifar um lúxuslíf í Ameríku, er inn- an við fertugt en hefur þegar önglað saman nokkrum millj- örðum króna fyrir bækur sínar Rithöfundurinn Judy Collins er talin efnaðri en systir hennar, leikkonan Joan Collins, sem þó veit vart aura sinna tal. PARFUM pour FEMMES JOOP!

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.