Vikan - 29.11.1990, Qupperneq 36
TEXTI: JÓHANN GUÐNI REYNISSON
Hér sést samskonar hjól og við
prófuðum. Athyglisvert er hvernig
allt skjökt og hökt hverfur alfarið og
svo getur verið gott að hafa
loftkælinguna innbyggða. Hreysti í
Skeifunni Ijáði okkur prufuhjólið.
aö fyrir líkamsræktarstöövar
en hentar náttúrlega einnig á
heimili ef verðið er ekki til fyrir-
stöðu.
LOFTMÓTSTÖÐU H JÓL
PRÓFAÐ
Strax og ég hóf að stíga hjólið
fann ég að hvergi á stigferlin-
um er fyrirstaða eða hökt.
Stígandinn er jafn og þétturog
meira að segja þarf að hafa
fyrir því að stöðva snúninginn
vegna þess að ekkert heldur í
við hjólið nema loftmótstaðan
ein. Engin bein þyngingarstig
eru á hjólinu heldur verður erf-
iðara að stíga það eftir því
sem snúningurinn verður
hraðari og loftmótstaðan
eykst.
Það sem kalla mætti stýri -
en er vitaskuld ekki stýri í þeim
skilningi - er þannig úr garði
gert að það hreyfist með fót-
stigunum. Það er tvískipt og
hreyfist sitt á hvað. Mér fannst
helst aðfinnsluvert aö ekki er
hægt að rjúfa tengsl fótstiga
og stýris og nota stýrið til að
styðja sig meðan hjólað er.
Aftur á móti er hægt að tylla
fótunum á þar til gerðar stoðir
framarlega á hjólinu og róa
með stýrinu. Einnig er hægt að
vinna á móti fótstigunum með
efri hluta líkamans með því aö
halda við hreyfingar stýrisins.
Það eykur mjög notagildi hjóls-
ins sem líkamsræktartækis,
bæöi fyrir efri og neðri hluta
líkamans.
Mörgum finnst einnig kostur
að mótstöðuspaðarnir geta
verkað sem loftkæling fyrir
þann sem hjólar. Hjólið með
spöðunum er opið og feykir
loftinu með sér þannig að
ágætur blástur myndast. Hægt
að fá þar til gerðar hlífar ef
menn vilja losna við blástur-
inn.
HVAÐ KOSTA
ÞREKHJÓL?
Markið við Ármúla hefur einnig
boðið hjól af þessu tagi frá
bandaríska framleiðandanum
DP. Þegar þetta er ritað eru
þau þó ófáanleg en væntan-
leg. Þar af leiðandi reyndist
ekki unnt að prófa þau en þau
munu byggjast á sömu grund-
vallarhugmyndinni. Á báðum
hjólunum eru mælar sem
meðal annars mæla snúning,
vegalengd og hitaeininga-
brennslu, auk þess er púls-
mælir á dýrari gerðunum. Ekki
fengust nákvæmar upplýsing-
ar um verð hjólanna í Markinu
en reiknað er með verðbilinu
23.000-40.000 kr.
Til eru ýmsar gerðir hefð-
bundinna þrekhjóla. Hreysti er
með hjól frá Weider á 23.655
kr. og í Markinu eru hjól frá
Kettler sem kosta 15.725-
42.500 kr. Varla þarf að taka
fram að töluverður munur er á
að stíga það ódýrasta og það
dýrasta. Sá munur felst f
hönnun á slaghjóli og fleiru.
Auk þess eru dýrari hjólin búin
ýmsum mælum umfram þau
ódýrari. Þá er Breska verslun-
arfélagið við Faxafen að fá
sendingu af þrekhjólum af
gerðinni Body Sculpture. Þau
byggjast á hefðbundnum hug-
myndum og eru búin ýmsum
mælum, svo sem púlsmæli og
fleira. Verðið verður um það bil
22.000 kr.
Hér er aðeins stiklað á stóru
á þessum markaði og hvetjum
við þá sem hugsa sér til hreyf-
ings til að fara á milli verslana
3. hluti
Að þessu sinni ætlum
við að velta þrekhjól-
um og notkun þeirra
svolítið fyrir okkur. Eflaust
finnst einhverjum þarflaust að
fjalla um þrekhjól þar sem þau
eru langt frá því að vera nýtil-
komin sem líkamsræktartæki.
Það er þó öðru nær þar sem
þróunin er ör og það sem var
nýtt fyrir nokkrum árum er nú
orðið á eftir. Við lítum á helstu
nýjungar á þessu sviði og ger-
um grein fyrir gildi hjólanna til
líkamsræktar.
ÞREKHJÓLIN OG
BAKIÐ
Helsti kosturinn við þrekhjól
sem líkamsræktartæki er að
það er einfalt í meðförum.
Flest höfum við einhvern tím-
ann á ævinni lært að hjóla og
stundað það af kappi, sérstak-
lega á yngri árum. Á þeirri
þjálfun byggjum við, mismun-
andi mikið þó. Ef ætlunin er að
fá sér þrekhjól er úr þónokkr-
um tegundum að velja og best
að fara á stúfana til að prófa
tækin. Flest hjólin eru þannig
að svokölluðu slaghjóli er
snúið með því að stíga fótstig.
Einnig er hægt að fá hjól með
róðrarstýri en þá er stýrið
dregið að sér og ýtt frá meðan
hjólað er. Á sumum hjólum er
hægt að nota stýrið eitt sér og
það getur verið heppilegt þar
sem álag á bakið eykst ef fæt-
urnir eru hreyfðir um leið. Bak-
ið hjálpar okkur að halda jafn-
vægi meðan við hjólum og ef
við hreyfum efri hluta líkam-
ans eykst álagiö á bakið. Þetta
álag er þó ekki svo mikil að
fólk, sem ekki er bakveikt, sé í
hættu. Öðrum er ráðlagt að
fara varlega í allar æfingar þar
sem álag á bak er eitthvað að
ráði. Best er fyrir þá sem
eitthvað er að í baki að sitja
beinir í baki á hjólinu og styðja
höndum á læri.
Loftmótstöðuþrekhjól má
knýja áfram hvort heldur sem
er með því að nota handleggi,
bak- og brjóstvöðva eða á
hinn hefðbundna hátt.
SLAGHJÓL EÐA
LOFTMÓTSTAÐA
Slaghjólið, sem sumir kalla
reyndar kasthjól, gerir útslagið
um hvort hjól telst gott eöa
slæmt. Gott slaghjól getur
hjálpað manni yfir það erfið-
asta þannig að stöðugur stíg-
andi næst þegar hjólað er. Þá
erum við því sem næst laus
við höktið sem oft vill gera vart
við sig þegar við þreytumst og
flestir kannast við. Það nýjasta
í þessum tækjum eru hjól þar
sem byggt er á loftmótstöðu.
Þá eru engin slaghjól eða
reimar, aðeins stórt hjól með
spöðum sem vinna á móti loft-
inu. Ég fór til þeirra í Hreysti í
Skeifunni þar sem svona hjól
er til sölu og fékk að prófa.
Hjólið, sem ég prófaði, er
bandarískt, af gerðinni
Schwinn. Þetta hjól kostar
67.790 kr. og er aðallega ætl-
Þrekhjól
og œfingabekkir
36 VIKAN 24. TBL 1990