Vikan - 29.11.1990, Síða 37
Þetta hjól, sem
Breska verslunarfé-
lagið flytur inn,
byggist á hinu
hefðbundna slaghjóli.
Á þessu hjóli eins og
reyndar fleiri tegund-
um er m.a. tæki sem
mælir hraða hjartslátt-
ar, púlsmælir.
og fá að prófa, bera saman
verð og gæði og velja síðan
það sem besf hentar.
Mennirnir eru eins misjafnir og
þeir eru margir og það sem
einum hentar getur verið
ómögulegt fyrir annan.
ÆFINGABEKKUR FRÁ
KETTLER
í Markinu við Ármúla var ný-
lega tekin upp ný sendingu af
æfingabekkjum. Vikan fór á
Hefðbundin útfærsla frá
Kettler en mjög fjölbreytt
og býður upp á marga
möguleika. í bekknum má
gera helstu æfingar fyrir
alla stóru vöðvahópana.
stúfana og prófaði einn
bekkinn, svokallaðan Classic.
Eins og nafnið ber með sér
stendur þessi nýja útfærsla á
gömlum merg. Það sem þó er
ekki alveg klassískt er svokall-
að fiðrildi eða „peck deck“ en
það er æfing fyrir brjóstvöðva.
Þessi búnaður á bekknum
reyndist furðu vel. Þó þótti mér
„dragið" heldur stutt þannig að
ég náði ekki fullri hreyfingu út
úr æfingunni. Reyndar er ég
þá að miða við þartil gerð tæki
og ekki beint hægt að bera
þau saman við alhliða æfinga-
bekk sem ætlaður er til heima-
brúks. Á bekknum er hægt
að æfa lærvöðva bæði að
framan og aftan en aftur rak
ég mig á að ekki náðist full
hreyfing á allan vöðvann, þó
næg til þess að ég fann að
æfingin gerði gagn og tók á
rétta vöðva. Þá er á bekknum
dragvél þar sem hægt er að
æfa bakvöðva og réttivöðva
upphandleggs.
Bekknum fylgir stöng sem
bognar niður til endanna og
þannig næst gott átak á bak-
vöðva. Ekki má þessi stöng þó
vera styttri. Það sem helst
verður að hafa í huga þegar
stöngin er notuð er að hægt sé
að teygja úr vöðvunum áður
en byrjað er að draga. Athugið
að ég segi teygja úr en ekki
teygja á vöðvunum og með
því á ég við að vöðvarnir séu í
þeirri stöðu að átakið nái yfir
þá alla jafnt, ekki mest ein-
hvern tiltekinn hluta þeirra.
Halla má bæði baki og setu
og eykur það fjölbreytni æf-
inga sem gera má í bekknum.
Með því að lyfta bakinu upp í
um það bil 45 gráður næst
betra átak á efri hluta brjóst-
vöðva í bekkpressu og með
því að lyfta verður þægilegra
að gera þá æfingu. Hægt er að
renna stangarstoðunum aftur
þannig að þægilegra verður
að gera bak- og brjóstæfingar
en þetta kostar náttúrlega ein-
hverja fyrirhöfn.
Bekkurinn gefur kost á mjög
fjölbreyttum æfingum og býður
upp á ýmsa möguleika en
geldur ( ýmsu fyrir fjölbreytn-
ina. Það þykir mér þó ekki úr-
slitaatriði þar sem þokkaleg
áreynsla á alla stærstu vöðva-
hópana, það er brjóst, bak og
læri, fæst ef æfingarnar eru
gerðar á réttan hátt. Fram-
leiðandinn, þýska fyrirtækið
Kettler, gefur upp fimmtán
mismunandi æfingar sem
hægt er að gera í bekknum,
það er að segja þegar búið er
að kaupa á hann lóð og stang-
ir sem ekki fylgja með í verð-
inu sem er 41.050 kr.
Ég vil eindregiö hvetja þá
sem hyggjast fá sér slíkan
bekk til að kynna sér vel
æfingarnar sem hægt er að
gera í bekknum. Best er að
fara í líkamsræktarstöð, fá til-
sögn reynds leiðbeinanda og
vera undir handleiðslu hans
nokkurn tíma. Þótt þetta virðist
allt saman tiltölulega einfalt
leynast víða atriði sem fólk
gerir sér ekki grein fyrir. Þá er
tilvalið fyrir þá sem hafa að-
gang að reyndum mönnum að
fá þá til að æfa með sér heima
í bekknum og læra þannig að
fara með bekkinn. Förum um-
fram allt varlega af stað. Stig-
mögnun er besta aðferðin til
að ná árangri.
Norsku Stil ullarnærfötin
Híý
og notaleg
nvenær
sem er.
Dæmi um verð:
Buxur einf. fóðr.* Bolir einf. fóðr.*
1819- 1876- 2334- 2495-
Stuttermaboiir kr. 2058—
* fóðruð með mjúku Dacron efnl.
Grandagarði 2, Rvík., sími 28855
24. TBL 1990 VIKAN 37