Vikan - 29.11.1990, Qupperneq 38
Appelsínuhúð - ekki lengur vandamál
7. Framan á lœrum
og mjöðmum
Liggið á hlið, grípið í ökklann og teygið fóttinn
aftur. Hugsið um að draga fótinn aftur en ekki út
til hliðar.
3ÆFINGAR
FJÓRÐI HLUTI
ÆFINGA
ÁGÚSTU
JOHNSON
Iþessum þætti sýnum við teygjuæfingar.
Vel samsett teygjuæfingakerfi teygir á öll-
um vöðvahópum líkamans en ekki aðeins
þeim hlutum sem mest eru notaðir. Teygið ró-
lega og markvisst til að ná hámarks liðleika.
ÞAÐ SEM HAFA ÞARF í HUGA:
1. Teygið aldrei á köldum vöðvum - hitið
ávallt upp áður en teygt er á.
2. Gerið ekki fjaðrandi teygjuhreyfingar.
Teygið smátt og smátt inn í og út úr teygjunni.
3. Teygið þar til þið finnið vel fyrir teygjunni
en ekki fyrir sársauka.
4. Einbeitið ykkur að því að slaka á þeim
vöðvum sem teygt er á. Andið djúpt og rólega.
5. Haldið teygjunni í 30-60 sek. til að ná
framförum.
6. Teygið ávallt á vöðvaandstæðum, t.d.
vöðva framan á læri og aftan á læri.
7. Gott er að klæðast bómullargalla þegar
teygjur eru gerðartil að halda vöðvunum betur
heitum.
8. Teygið daglega og umfram allt eftir allar
æfingar.
9. Það tekur tíma að ná árangri og verða lið-
ugur. Þú verður að sýna þolinmæði.
María Galland no. 81
Slimming Vector
frá Maria Galland er
mun auöveldara í
notkun en áöur hefur
þekkst um sambærileg-
ar vörur. Frábær
árangur á stuttum tíma.
Sölustaðir:
Clara, Laugavegi/Kringlunni;
Gloría, Njarðvík; Soffía,
Hlemmi; Apótekið Vest-
mannaeyjum; Topptískan,
Aðalstræti; Hygea, Laugavegi,
Apótek Garðabæjar; Stúdói
Hallgerður; Snyrtistofan Rós,
Engihjalla; Snyrtistofa Sigr.
Guðjóns, Eiðistorgi.
4. Neðri hluti baks
Liggið á bakinu, takið undir hné og togið læri að
brjósti. Þessi æfing teygir einnig á vöðvunum aft-
an á lærunum.
1. Háls
Hallið höfðinu til hliðar og veltið höfðinu rólega
fram, höku niður á brlngu og hallið svo niður á
hina hliðina. Hallið ekki aftur, það getur hugsan-
lega sett óþarfa álag á hálsliðina. Hallið aðeins til
hægri, fram og vinstri.