Vikan - 29.11.1990, Side 50
HLÝ PEYSA ÚR DALEGARNI
ÞEGAR FROST
ER Á FRÓNI
Stærð: S M L
Yfirvídd: 108cm 118 cm 129cm
Lengd: 65 cm 67 cm 69 cm
Ermalengd: 46 cm 48 cm 50 cm
Efni 600 gr 650 gr 700 gr
Hvítt Mimosa frá Dalegarn.
Prjónar nr. 3 og 41/2
Garnið fæst i versluninni Hofi. Simi 16764.
□ = Slétt á réttunni, br. á röngunni.
0 = Brugðið á réttunni, slétt á röngunni.
3 lykkjur settar á hjálparprjón aftan við, næstu 3 lykkjur prjónaðar slétt,
síðan lykkjurnar af hjálparprjóninum.
3 lykkjur settar á hjálparprjón fyrir framan, næstu 3 lykkjur prjónaðar
slétt, síðan lykkjurnar af hjálparprjóni.
-------------Miðja á ermi
--------------------Byrjun á stærð S.
-----------------Byrjun á stærð L og M.
sinnum og 1 lykkju þrisvar sinnum. Prjónið
þangað til stykkið er jafnlangt bakstykkinu.
Fellið af. Hin öxlin er prjónuð eins.
Ermar: Fitjið upp á prjón nr. 3, 42 - 44 - 46
lykkjur. Prjónið 5 cm slétt prjón, eina gataröð
og aftur 5 cm slétt prjón. Aukið út á síðasta
prjóni 22 - 24 - 26 lykkjur. Skiptið yfir á prjóna
41/2 og prjónið áfram eftir mynsturteikningu.
Aukið út einni lykkju í hvorri hlið annan hvern
cm þar til 132 - 136 - 140 lykkjur eru á prjónun-
um. Fellið af þegar ermin er 46 - 48 - 50 cm.
Frágangur: Pressið stykkin létt á röngunni og
saumið peysuna saman.
Hálsmál: Takið upp á sokkaprjóna nr. 3 ca
136- 140- 144 lykkjur. Prjónið í hring slétt
prjón 2,5 cm, eina gataröð og aftur 2,5 cm slétt
prjón. Fellið af. Saumið kragann saman á
röngunni.
Bakstykki: Fitjið upp á prj. nr. 3 106-112-
120 lykkjur. Prjónið fram og til baka slétt prjón
5 cm, prjónið eina gataröð (2 lykkjur sl. saman,
slegið upp á). Prjónið síðan 5 cm slétt prjón.
Aukið út á síðasta prjóni 32 - 41 - 48 lykkjur.
Skiptið yfir á prjóna nr. 41/2. Prjónið mynstur
eftir mynsturleikningu. Prjónið þangað til
stykkið er 63 - 65 - 67 cm.
Hálsmál: Setjið 38 - 39 - 42 miðlykkjur á nál.
Prjónið hvora öxl fyrir sig. Fellið af við hálsinn
í 2. hv. prj. 2 lykkjur einu sinni og 1 lykkju
tvisvar sinnum. Prjónið þangað til stykkið er
65 - 67 - 69 cm. Fellið af. Hin öxlin er prjónuð
eins.
Framstykki: Fitjið upp og prjónið eins og bak-
stykkið þangað til það er 59 - 61 - 63 cm.
Hálsmál: Setjið 26 - 27 - 30 lykkjur á nál og
prjónið hvora öxl fyrir sig. Fellið af við hálsinn í
2. hv. prj. 3 lykkjur einu sinni, 2 lykkjur tvisvar
50 VII