Vikan - 29.11.1990, Síða 51
MMMM... GÓDURILMUR
OG GÆLUDÝR FYRIR BÖRN
FRÁ FÆÐINGU
ERMINGAR
Útsölustaöir: Reykjavík: Ársól, Englabörnin, Háaleitisapótek, Laugavegsapótek,
Lytjaberg, Mikligarður, Varðan: Hafnarfjörður: Sandra. Akureyri: Amaró, Nanna
Yngvadóttir. Keflavík og Njarðvík: Gloría, Keflavíkurapótek, Smart. Blönduos:
Brekkusól, Kaupfélag Húnvetninga
KIASSÍKsj.
Heildverslun - Sími 681710
S tjörnuspá
Hrúturinn
21. mars -19. apríl
Það skiptir miklu máli að
þú sért samvinnufús á næstu
dögum. Ef þér tekst vel upp eru
miklar likur á að þú fáir tilboð sem
þig hefur alltaf dreymt um, og all-
ar peningaáhyggjur hverfa.
Nautið
20. apríl - 20. maf
Reyndu að fresta því að
gefa álit þitt á ákveðnu máli þó
vinur þinn óski mjög að heyra
það. Þú gerir þér ekki grein fyrir
hve mikil áhrif orð þín hafa. Sumir
virðast aldrei geta ákveðið neitt
sjálfir.
Tvíburarnir
21. maí - 21. júní
Gagnstæða kynið kemur
mikið við sögu ( lífi þínu næstu
daga. Þú finnur til óróa yfir því en
innst inni hefur þú einnig lúmskt
gaman af því. Andaðu rólega,
þetta fer allt saman vel.
/JzK Krabblnn
Íö? 22. júní - 22. júlí
® Þú ferð líklega í stutt
ferðalag á næstunni. Þú hefur
mjög gott af því að breyta um um-
hverfi og ná þér niður eftir mikla
og erfiða vinnu undanfarið.
Ljónið
23. júlí - 23. ágúst
Þú hagnast á því að nán-
um samstarfsmanni þínum mis-
tekst í starfi. Þú ættir að gæta
þess að láta það ekki stíga þér til
höfuðs. Láttu ekki ógætileg orð
falla, sumir gætur heyrt það og
notfært sér það.
Meyjan
24. ágúst - 23. sept.
Þér hættir til að vera ákaf-
lega beinskeyttur í gagnrýni og
þetta fer mjög í taugarnar á þeim
sem ekki þekkja þig. Þó þér finnist
hallað réttu máli skaltu láta eins
og þú heyrir það ekki.
Vogin
24. sept. - 23. okt.
Næsta vika mu'n einkenn-
ast af rólegheitum og þú munt
koma í verk ýmsu sem þú hefur
trassað. Þú færð gesti og ef þú
leggur þig fram mun þessi heim-
sókn leiða til ánægjulegs atburð-
ar.
Sporðdrekinn
24. okt. - 21. nóv.
Þú verður fyrir mjög sér-
stakri lífsreynslu sem þú veist
ekki alveg hvernig þú átt að
bregðast við. Það getur vel verið
að þú getir brugðist skynsamlega
við en líklegra er að þú látir tilfinn-
ingarnar ráða.
Bogmaðurinn
22. nóv. - 21. des.
Það verða mikil veislu-
höld hjá þér næstu daga og þér
finnst eiginlega alveg nóg um.
Einhver nákominn fer í taugarnar
á þér um stundarsakir, en reyndu
að fela það eins og hægt er.
Steingettfn
22. des. -19. janúar
Þú hefur haft töluverðar
fjárhagsáhyggjur að undanförnu.
Allt útlit er nú fyrir að úr því rætist
von bráðar. Þú færð gott atvinnu-
tilboð en þú ættir að athuga vel
afleiðingarnar.
Vatnsberinn
20. janúar -18. febrúar
Þú verður fyrir freistingu
sem þér finnst ákaflega erfitt að
standast. Þú verður að meta með
sjálfum þér allar ástæður fyrir að
láta ekki undan, annars áttu á
hættu að lenda í vandræðum.
Fiskarnlr
19. febrúar - 20. mars
Þú hefur gert miklar áætl-
anir fyrir næstu vikur og það fer
ákaflega í taugarnar á þér þegar
þú uppgötvar að þær standast
ekki. Þú verður að læra að lifa fyr-
ir einn dag í einu.
24. TBL. 1990 VIKAN 51