Vikan - 29.11.1990, Page 53
Tveir fulltrúar feröamálaráös Innsbruck, Andreas Lechner
(fremst t.v.) og Gabriele Fink (þriðja f.h.), sýna blaðamönnum
frá Englandi, Danmörku og fslandi sögustaði í borginni.
mitt að árlega eru haldnir
þarna tónleikar þar sem leikið
er á þessi gömlu hljóðfæri.
í Innsbruck hafa tvfvegis
verið haldnir vetrarólympíu-
leikar, þeir fyrri árið 1964 og
þeir síðari árið 1976, og í
borginni er ólympíusafn með
ýmsum minjum, meðal annars
frá þessum leikum. Enginn
ferðamaður kemur svo til Inns-
bruck að hann bregði sér ekki
upp að ólympíuskíðastökk-
pallinum sem liggur við að sé
inni í miðri borginni. Þegar við
komum þangað á sólbjörtum
degi var þar múgur og marg-
menni eins og reyndar alla
aðra daga ársins. Það mátti
heyra undrunaróp ferðalanga
sem voru komnir langt að og
fannst næstum óskiljanlegt að
nokkur gæti stokkið af stökk-
pallinum, sem bar við himin,
og stöðvast síðan niðri í dæld-
inni fyrir neðan hann. Hún er
svo lítil að þar virðist tæpast
vera rými til þess að snúa sér
við á skíðunum ef komið væri
niður á einhverri ferð. En þetta
er líklega minnsta mál í heimi
fyrir þá sem kunna til verka.
Nokkur þekkt skíðaþorp eru
í næsta nágrenni við Inns-
bruck og á sumrin eru þau að
sjálfsögðu dvalarstaðir sumar-
gesta sem heimsækja borg-
ina. Eitt þessara þorpa er Igls,
tvö þúsund manna sumar- og
vetrardvalarstaður sem býður
gestum upp á flest það sem
hugurinn girnist - og þaö sem
meira er, þorpið er svo stutt frá
borginni sjálfri að ástæðulaust
er að hreyfa bílinn hafi fólk
komið akandi til Igls. Það er
miklu auðveldara að fara með
togbrautum eða bara með
strætisvögnum niður í borg-
ina. Á sumrin er ef til vill sterk-
asta aðdráttarafl Igls golfvell-
irnir tveir sem sagðir eru ein-
hverjir þeir fallegustu og bestu
Frh. á næstu opnu
24. TBL 1990 VIKAN 53
hús, Goldener Adler, sem reist
var á fimmtándu öld og stend-
ur enn. Þetta veitingahús er
mjög þekkt og þangað hafa
komið ófáir frægir menn og lík-
lega líka konur í gegnum tíð-
ina. Hafa nöfn þeirra margra
hverra verið grafin á skildi inn-
an dyra.
Það var svolítið undarlegt
að virða fyrir sér veggi hús-
anna sem standa við þröngar
götur gamla borgarhlutans í
Innsbruck. Ekki var annað að
sjá en húsin hölluðust öll aftur
á bak og því meira sem ofar
dró. Leiðsögumaður okkar
sagði að þetta væri eiginlega
-4 Það er gott aö hvíla sig f
vetrarsólinni eftir vel
heppnaða skíðagöngu.
sjónhverfing. Húsin stæðu
teinrétt upp frá götunni, hins
vegar hefði verið hlaðið grjóti
utan á veggi þeirra frá götu og
upp á fyrstu eða aðra hæð og
síðan hefði verið múrað yfir
allt saman. Þetta var gert í
gamla daga til þess að styrkja
húsin vegna jarðskjálftahættu
á þessum slóðum.
Innsbruck er mikil tónlistar-
borg og segja má að hvert
sumar sé þar stanslaus tónlist-
arhátíð. Mikið starf hefur líka
verið unnið í borginni við að
endurvekja áhuga fólks á
gömlum hljóðfærum og þar er
gott safn þeirra. Því fylgir ein-
Fallegasti golfvöllur Evrópu er sagður vera í Igls við
Innsbruck. Að neðan leiðbeinir golfkennarinn Ursulu
Uinicher frá Austurríska ferðamálaráðinu i Kaupmanna-
höfn en til hliðar gerir blaðamaður Vikunnar, Friða
Björnsdóttir, tilraun til að hitta kúluna.
TEXTI OG NOKKUÐ AF MYNDUM: FRÍÐA BJÖRNSDÓTTIR