Vikan - 29.11.1990, Síða 54
í ólympíuborginni Innsbruck hafa tvívegis veriö
haldnir vetrarólympíuleikar, árið 1964 og 1976.
Frh. af bls. 53
í Evrópu. Þaö er sögö stór-
kostleg upplifun að leika golf
þarna í rúmlega þúsund metra
hæð yfir sjávarmáli, í kristal-
tæru fjallaloftinu. Reyndir golf-
meistarar kenna þeim sem
það vilja að sveifla kylfunum
og það sem meira er, þarna
Hið fræga Goldenes Dachl eða litla gullþakið. Á
þessum svölum sat Maximilian keisari með
eiginkonum sínum og virti fyrir sér mannlífið á
torginu fyrir neðan.
Það er vel gert við ferðamenn í
Austurríki bæði í mat og drykk
og matur er þar ekki sérlega
dýr. Og ferðamenn geta
skemmt sér við ýmislegt, hvort
heldur þeir heimsækja landið
að sumri eða vetri. Meðal
annars er mjög gaman að horfa
á fólk f fallegum þjóðbúningum
stiga dans og syngja.
getur hver sem er komið við á
sérstöku æfingasvæði fyrir þá
sem ekkert eða lítið kunna fyr-
ir sér í golflistinni og fengið að
reyna hvað í þeim býr og það
á ódýran hátt. Það kostar að-
eins nokkur hundruð krónur að
leigja sér kúlur og kylfur, svo
er hægt að sjá hvort golfíþrótt-
in eigi við mann og fara síðan
út í meiri fjárfestingu síðar ef
ástæða þykir til. Blaðamenn-
irnir fengu tilsögn kennara og
sumir urðu býsna æstir og
vildu tæpast hætta þegar þeim
varð Ijóst að þeir gátu hitt golf-
kúluna. Þeir sem minni áhuga
höföu settust bara niður og
fengu sér hressingu og óttuð-
ust mest að golfkúlurnar lentu
á matardiskunum hjá þeim,
svo ómarkviss voru skot
félaga þeirra niðri á vellinum.
Þar sem jólin eru nær okkur
en næsta sumar er rétt að
benda fólki á að Innsbruckbú-
ar bjóða upp á ýmislegt
óvenjulegt i skammdeginu.
Það er hægt að bregða sér
þangað í svokallaða Advent-
singen in Tirol-ferð eða Berg-
weihnacht in Tirol sem út-
leggst nánast Aðventusöngur
eða Fjallajól í Tíról. Fimm
daga dvöl í Innsbruck í fjalla-
jólaferð getur kostað 15 til 25
þúsund krónur á manninn eftir
því hvers konar hótel verður
fyrir valinu. Þess má geta að
Gabriela Fink sagði okkur að
meðalferðamaður í Austurriki
væri sagður eyða um átta
hundruð austurrískum shilling-
um á dag eða um fjögur þús-
und krónum enda er hægt að
finna mjög ódýra gistingu i
Austurríki og matur er þar
heldur ekki dýr miðað við það
sem við eigum að venjast.
Jesúbarnið, heilagur Nikulás
og púkinn Krampus í Innsbruck
Jólamánuðurinn er svo sannarlega skemmtilegur tími í
Innsbruck og þá er mikið um að vera í Gamla bænum.
Frá því síðast í nóvember og fram að jólum er markað-
ur á torginu fyrir framan Gullna þakiö. Kaupmenn selja
alls konar jólavörur og mat í tjöldum sem reist eru á
torginu.
Börnin hlakka mikið til 5. desember en þá er heilagur Nikulás
á ferð og færir þeim gjafir, en því miður fer hann ekki einn. Með
honum er púkinn Krampus sem er þjónn hans. Foreldrar hafa
lengi notfært sér trúna á Krampus og börnin lofa að vera góð og
þæg um leið og þau heyra hann nefndan. Þegar heilagur Nikulás
og Krampus koma til Innsbruck er farið í skrúðgöngu um borgina
þar sem þeir eru í fararbroddi og auk þess heill herskari engla.
Innsbruck er, eins og allir vita, í Tíról og þar hefur fólk alltaf
haft mikinn áhuga á Jesúbarninu og jötunni og ekkert heimili þar
um slóðir lætur þetta tvennt vanta í jólaskreytinguna. Tiroler
Volkskunstmuseum setti upp fyrir nokkrum árum sýningu þar
sem hægt er að skoða jötur og jesúbörn sem fólk hefur búið til í
aldanna rás. Er þetta mikið og fallegt safn. f safninu má sjá
Hirðingi færir Jesúbarninu lamb en hjá standa þau María og Jósep.
hvernig jötugerðin hefur breyst eftir því sem árin liöu. Fyrst er vit-
að til þess að jesúítamunkar hafi sett upp jötu meö Jesúbarni í
kirkju sína í Innsbruck árið 1608 og hefur þessi hefð, sem tengist
jólunum, haldist æ síðan. (safninu í Innsbruck eru jötur og jesú-
börn meö austurlensku yfirbragði en þar eru líka jötur sem
greinilega eru gerðar uppi í austurrísku Ölpunum og sýna okkur
Jesúbörn sem minna á ósköp venjuleg sveitabörn.
Tvívegis í desember er farin í Innsbruck sérstök skrúðganga
helguð Jesúbarninu. Sú síðari er á Þorláksmessu. Þá ganga
menn um götur klæddir eins og hirðingjar, bændur og englar og
sauðkindur eru einnig með í förinni en fremst fer asni sem dreg-
ur vagn með Maríu, Jósep og Jesúbarninu í jötunni. Þeir sem
kunna að eiga leið um Innsbruck eða nágrenni á þessum árs-
tíma mega ekki láta þessa jólasiði austurríkismanna fram hjá
sér fara.
54 VIKAN 24. TBL1990