Vikan


Vikan - 29.11.1990, Page 58

Vikan - 29.11.1990, Page 58
TEXTI: ÞORSTEINN EGGERTSSON Islenskt ilmker frá Bergís hf. Hvert óhappið rak annað í framleiðslu þessara vöru - þar til nafninu hafði verið breytt úr ilmálfur í ilmker... ÞRENNS KONAR RÓMANTÍK Undanfarin misseri hafa ilmjurtir og ilmker gengiö eins og eldur í sinu um Bandaríkin. Ilmjurtirnar hafa líka veriö vinsælar í Englandi og víðar í Evrópu. Ferðamenn hafa tekið eftir ilmkerum jafnt á hótelum sem í heimahúsum og nú eru þau nýkomin til íslands. Ilmker er skrautmunur; tvö leirker hvort upp af öðru. f neðra kerinu er kerti sem lýsir út um nokkur op og hitar jafn- framt upp efra kerið en í því eru skrautlegar ilmjurtir og blóm í vatni sem hitnar af kertalogan- um. Við það senda jurtirnar þægilegan ilm frá sér. Þetta er því kertaljós, ilmur og blóm í einni heild eða þrenns konar rómantík. VORU ÁLFAR ÞAR AÐ VERKI? Það hlaut að koma að því að þessi látlausa samstæða yrði loksins sett á markað hér á landi. Ingibjörg Bergsveinsdóttir hjá Bergís hf. og dóttir hennar, Guðrún Magnúsdóttir, höfðu séð ilmker í Bandaríkjunum en hvergi í Evrópu. Þess vegna datt þeim í hug að láta fram- leiða þau hér á landi og eru þau nú eingöngu framleidd fyrir Bergís hf. Þetta er því íslensk framleiðsla með enskum ilm- jurtum. Þar sem svona sam- stæða er nýjung hér á landi vantaði heppilegt nafn á hana. Það varð því úr að kalla hana ilmálf en nafnið átti þó eftir að valda talsverðum erfiðleikum eða eins og Ingibjörg orðar það: „Við vorum með sýningu á þessum hlutum á Akureyri og datt í hug að kalla þá ilmálfa. Við vorum ánægð með nafnið, settum það í tölvurnar okkar og 1 alls staðar. En þá fór að koma “ upp hvert óhappið á fætur öðru. o Við erum auðvitað engar álfa- 1 trúarmanneskjur en okkur fannst þetta óneitanlega dálítið skrýtið. Þaö týndist heil sending af ilmjurtum í pósti, annar kassi fór til Þýskalands og það tók mánuð að fá sendingu sem átti aö koma innan tveggja vikna. Svo fóru kerin að brotna, allt brotnaði og sprakk í leir- brennsluofninum en það hafði aldrei komið fyrir áður. Það var alltaf eitthvað að koma fyrir svo að við fórum að velta því fyrir okkur hvort þetta hefði eitthvað með álfatrúna að gera. Kannski þoldu þeir ekki hitann. Jæja, við fórum að kalla þetta ilmsvepp og settum það nafn í tölvurnar. Svo var ég að fara með þetta út í íslenskan markað til að sýna þeim og var búin að ganga mjög kirfilega frá nokkrum sýn- ishornum. En kannski vorum við ekki allskostar ánægð með nafniö ilmsveppur svo við fór- um aftur að velta þvi fyrir okkur hvort við ættum ekki að kalla þetta ilmálfa. Mér fannst alger fjarstæða að trúa því að einhverjir álfar gætu haft áhrif á þetta. En þá valt einn kirfilega búinn pokinn á hliðina og kerin 58 VIKAN 24. TBL. 1990

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.