Vikan - 29.11.1990, Síða 60
íslensk börn njóta yls og einkum ilms frá llmkerinu. Fyrir nokkrum árum voru ilmjurtir einkum keyptar
til gjafa í Englandi, en nú eru þær orðnar hluti af heimilisinnkaupunum.
Jólaskraut úr hvítum,
hrábrenndum leir. Hægt er að
hengja það á jólatréð og jafnvel
á jólapakkana...
brotnuðu. Þá datt Guðrúnu,
dóttur minni, í hug að kalla
þetta ilmker og síðan höfum við
ekki orðið vör við nein óhöpp."
ALGENG Á HÓTEL-
HERBERGJUM ERLENDIS
Kerin eru framleidd í Gliti og
Leirkerasmiðjunni Ási og eru
þau öll handunnin. Hægt er að
fá þau í ýmsum litum, svo sem
hvít, Ijósbrún, bleik, blá og
svört. Einnig er hægt að fá þau
með eða án myndskreytingar.
Ilmjurtirnar eru hins vegar fluttar
inn frá fyrirtækinu House of
Despina í Englandi sem sér-
hæfir sig í ræktun þeirra. Þarna
eru stokkrósir, upprunnar í
Súdan, draumsóleyjar frá Tyrk-
landi, blá malvablóm frá íran,
bindikambar frá Indlandi, sól-
Efra kerið er fyllt af vatni sem hitnar við kertalogann og þá fara jurtirnar að ilma.
Viljir þú láta ilminn endast ennþá lengurer hægt að fá viðeigandi olíur.
blómablöð frá Austur-Evrópu,
lofnarblóm frá Frakklandi og
svo mætti lengi telja. Þessar
jurtir eru hollar umhverfi sínu og
koma í mismunandi litum og
gerðum. Fyrir jól verður til
dæmis hægt aö velja úr tugum
tegunda með viðeigandi
nöfnum; Jól, Eftirlæti jóla-
sveinsins, Jólalög, Mistilteinn,
Paradís og Bláa lónið svo að
fátt eitt sé nefnt. Einn poki af
ilmjurtunum kostar örlítið meira
en sígarettupakki út úr búð en
nægir í sex áfyllingar sem end-
ast vikum saman. Fyrir nokkr-
um árum voru þær einkum
keyptar til gjafa í Englandi en
nú eru þær orðnar hluti af heim-
ilisinnkaupunum.
Efra kerið er fyllt af vatni sem
hitnar viö kertalogann og þá
fara jurtirnar að ilma. Ólíkt reyk-
elsi leggst ilmurinn ekki á um-
hverfið og verður aldrei íþyngj-
andi. Vilji menn láta hann end-
ast ennþá lengur er hægt að fá
viðeigandi olíu. Vatnið gufar
smám saman upp og því verð-
ur aö bæta við það af og til. Ilm-
urinn dreifist með uppgufuninni
sem er reyndar svo hæg að
hún sést ekki en þegar vatni er
bætt við er áríðandi að það sé
heitt. Kalt vatn slær á mildan
ilminn og gæti auk þess
sprengt kerið.
Ilmkerin er hægt að nota
hvar sem er. Þau eru algeng á
hótelherbergjum erlendis og
sumir hafa sett þau inn á baö-
herbergi þótt þeim sé fyrst og
fremst ætlað að framkalla róm-
antíska stemmningu.
JÓLASKRAUT ÚR
HRÁBRENNDUM LEIR
Af öðrum nýjungum frá Berg-
ís sf. má nefna jólaskraut úr
hvítum, hrábrenndum leir.
Skrautið má hengja á jólatré,
hvítt eða litað að smekk hvers
og eins. Það er líka upplagt til
aö setja á jólapakkann sem
merkimiða. Þá sakar ekki að
hella svolítilli ilmolíu á til dæmis
jólahjarta og skrifa á það Til...
Frá... og kannski ártal jólanna
líka því að síðan má hengja
það á jólatréð ár eftir ár. Hrá-
brennslan gerir það að verkum
að skrautið sýgur í sig ilminn og
heldur honum í sér.
Ilmkerin og leirskrautið fást
nú um allt land og það er rétt að
geta þess að leiðarvísir fylgir
með. Þegar ilmkertið er komið á
sinn stað er hægt að strá ilm-
jurtunum í vatnið í efra kerinu,
kveikja á tekertinu í því neðra
og - eins og segir í leiðarvísin-
um - „Eftir u.þ.b. 10-15 mínút-
ur fyllist herbergið af unaðsleg-
um ilmi.“
60 VIKAN 24. TBL. 1990