Vikan


Vikan - 29.11.1990, Síða 64

Vikan - 29.11.1990, Síða 64
TEXTI: ÞORSTEINN EGGERTSSON HÖFUÐPAUR HIPPANNA GERIST TALSMAÐUR TEKKA I EFNAHAGSMALUM Invention árið 1968. Arið 1966 kom hljóm- sveitin Mothers of In- vention fram á sjónar- sviðið með plötuna Freak Out. Nafn plötunnar varð að orðtaki meðal enskumælandi hippa og höfuðpaur hljómsveitarinn- ar, Frank Zappa, varð frægur fyrir ýmis uppátæki, svo sem að láta dreifa veggspjaldi með mynd af sér með allt á hælun- um á klósettinu. Um svipað leyti gerði hann sér lítið fyrir á hljómleikum hjá The Monkees og labbaði upp á svið til að pissa á söngvarann sem hann hafði, vægast sagt, lítiö álit á. Margt hefur breyst síðan, ekki síst Frank Zappa sjálfur. Flann rekur nú nokkur fyrir- tæki sem heita nöfnum eins og Marko Polo nu- tímans, öðru nafni Frank Zappa, menning- arsendiherra og fjarmalaraðgjafi Tékkóslóvakiu. Zappa hefur verið kvæntur Gail í 23 ár og starfar hún dyggilega við hllð eiginmanns- ins. Barking Pumkin Records (Geltandi grasker hljómplötur), Honkei Home Video (Garg- ara-heimilismyndbönd), Int- ercontinental Absurdities (Samheimsálfulegt rugl), Munchkin Music (Japlkennd tónlist) og Why Not? (Því ekki það?). Hann þykir sleipur í fjármálum og hefur að undan- gengnum málaferlum fengið einkarétt á allri músík Mothers of Invention. Nýlega gaf hann hana alla út (50 LP-plötur) á geisladiskum og yfir hundrað þúsund eintök af pakkanum hafa þegar selst. Hann verður fimmtugur á þessu ári og hefur komið ár sinni vel fyrir borð. Öll fyrirtæki hans þrífast vel, hann býr í glæsilegu húsi á fagurri hæð með góðu útsýni yfir Los Angeles ásamt konu sinni, Gail, og fjórum börnum. Gail sér um bókhaldið og er opinber umboðsmaður hans. Hann reykir að vísu sígarettur en hefur aldrei á ævinni notað áfengi eða önnur eiturlyf. Um þessar mundir finnst honum meira gaman að hlusta á tón- list eftir Webern og Stravinsky en rokkmúsík og annað popp. Fyrir rúmum tveim árum fór hann til Rússlands til að kanna jarðveginn fyrir viðskipti milli Sovétríkjanna og Bandaríkj- anna og nýlega útnefndi Vacl- av Havel, forseti Tékkóslóvak- íu, hann sem fjármálaráðgjafa og menningarkynni tékkneska ríkisins. Hlutverk hans er fyrst og fremst að kenna Tékkum svolítið á markaðsbúskap og hvernig hægt er að hagnast á góðum hugmyndum. Havel forseti hefur reyndar viður- kennt að hafa mikið hlustað á tónlist Zappa. Til dæmis hefur hann alltaf haldið mikið upp á plötuna Bongo Fury. Frank Zappa er vel mennt- aður í viðskiptafræðum og að- hyllist hagfræðikenningar Adams Smith. Hann hefur átt hlutdeild að þokkalegum versl- unarsamningum milli Rússa og Ameríkana og hyggst meö- al annars virkja menningu Tékka til útflutnings og dreif- ingar um víða veröld. Hann er þegar kominn nokkuð áleiðis með að opna það sem hann kallar neytendabanka í Prag en viðurkennir að um 55 prósent Austur-Evrópumanna séu hræddir við að söðla alveg um frá kommúnisma yfir í op- inn markaðsbúskap. Hann fer sér því að engu óðslega en hefur þó sett plötur sínar á markað í Tékkóslóvakíu. Þeir sem hvað best hafa fylgst með Frank Zappa undanfarið segja að hann sé fullkominn dipló- mat og samningalipur eftir því, enda eru menn í fjármála- heiminum vestra farnir að kalla hann Markó Póló nútím- ans. Hann fær 5 prósent af öll- um samningsupphæðum sem hann er viðriðinn á milli Tékka og annarra þjóða og á meðan hann þjónar þessu nýja sendi- herrahlutverki sínu blómstra fyrirtækin hans fimm í Banda- rfkjunum. 64 VIKAN 24. TBL.1990
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.