Vikan - 29.11.1990, Page 76
JOIAFONDUR OG SKRAUT
MALAD
FYRIR
JÓLIN
o
co
o;
O
co
Qí
ZZ>
ZD
<
zc
o
>-
a
o
co
Z
C£
O
s
<
o
o;
Jólin nálgast óðum en þó
er enn tími til að gera hitt
og þetta skemmtilegt og
um leið gagnlegt bæði til þess
að nota á heimilinu og til þess
að gefa í jólagjöf. Það er fljót-
legt og skemmtilegt að mála
jólamyndir á hitt og þetta,
púða, eldspýtustokka, smekki
og auðvitað líka á gluggatjöld
og dúka. Börn jafnt sem full-
orðnir geta tekið virkan þátt í
þessari jólavinnu og allir hafa
jafngaman af henni.
Við litum inn til Sigurbjargar
Guðjónsdóttur, sem starfar hjá
Sam-útgáfunni, en hún hefur
gert mikið að því að mála jóla-
myndir á léreft og úr hafa orðið
hinar ágætustu jólagjafir. Sig-
urbjörg segir okkur að hún noti
DEKA liti (Deka Permanent
Farbe) sem þola þvott. Mynd-
irnar eru málaðar á efnið og
þegar litirnir eru orðnir þurrir er
straujað yfir myndina á röng-
unni. Eftir það þarf ekki að ótt-
ast að hún þvoist úr og sagði
Sigurbjörg að hún hefði meira
aö segja soðið suma máluðu
jóladúkana sína og hefðu þeir
ekki látið hið minnsta á sjá.
Þar sem ekki eru allir jafn-
listfengir getur vafist fyrir fólki
að teikna jólamyndirnar frí-
hendis en Sigurbjörg hefur
fundiö einfalda leið til þess að
eignast margar og fjölbreyttar
jólamyndir sem auðvelt er að
mála. Hún hefur einfaldlega
keypt sér jólalitabækur og
dregið myndirnar upp úr þeim
eða Ijósritað þær og þá jafnvel
stækkað þær eða minnkað eft-
ir því sem þörf hefur verið á.
Þegar hún málar á þunnt lérelt
hefur nægt að láta myndina
liggja undir efninu og draga
svo útlínurnar upp með þvott-
ekta tússi. Sé ætlunin að mála
á þykkara efni og ógegnsætt
verður að nota kalkipappír til
þess að færa myndirnar af
blaðinu yfir á efnið.
]
1S \
»
t.
Jólagluggatjöld fyrir eldhúsgluggann. Myndirnar eru fengnar úr ósköp venjulegri
barnalitabók. Ekkert er einfaldara en stækka myndirnar eða minnka svo þær verði í hæfilegri
stærð.
Fiöskusvuntuna keypti Sigur-
björg áteiknaða en máiaði hana
síðan. Myndina á eldspýtu-
stokknum dró hún hins vegar
sjálf upp á efnið.
76 VIKAN 24. TBL. 1990