Vikan - 29.11.1990, Page 81
UNGLINGABÓKIN í ÁR!
Almenna ouglýslngaslofan hf.
HALTU MÉR - SLEPPTU MÉR
— bókin sem unglingarnir biðja
um!
Bækur Eðvarðs Ingólfssonar hafa verið sölu-
hæstu unglingabækurnar undanfarin ár. Bók
hans, Sextán ára í sambúð , seldist best
allra bóka 1985. Eðvarð hlaut verðlaun Skóla-
málaráðs Reykjavíkur fyrir bestu frumsömdu
barnabókina 1988, Meiriháttar stefnumót.
— pottþétt unglingabók eftir metsöluhöfundinn Eðvarð Ingólfsson
Spennandi unglingabók um Eddu og
Hemma, 16 og 17 ára. Þau kynnast af
tilviljun. Það verður ást við fyrstu sýn
- barn og sambúð... En lífið erekki allt-
af dans á rósum. Þegar á reynir kemur
í Ijós hve sambandið er sterkt. Það
verður ekki bæði sleppt og haldið.
ÆSKAN
HALTU MÉR - SLEPPTU MÉR
Roll Sharp brýnið frá Fiskars brýnir hnífinn samtímis báðum megin
og gerir hann flugbeittan. Aðferðin við brýnsluna er svipuð þvi og
þegar brauð er skorið.
hefur einkarétt á, gerir notandanum kleift að stilla spennu blað-
anna þannig að þau hæfi því verki sem á að vinna hverju sinni.
Til að hlífa skærunum þegar þau eru ekki í notkun fylgir þeim
handhæg plasthlíf. Af þessum nýju skærum eru fimm tegundir;
alhliða skæri, eldhússkæri, pappírsskæri, saumaskæri og ör-
yggisskæri sem eru oddlaus til að þau séu öruggari fyrir börn.
Önnur athyglisverð nýjung frá Fiskars er brýni sem heitir Roll
Sharp (skerpuveltir). Brýnið skerpir hnífinn báðum megin sam-
tímis svo að hann verður egghvass. Aðferðin við brýninguna er
eins auðveld og að skera brauð því að hreyfingin er sú sama.
Brýnsluhjól, sem leika lausum hala á öxli, eru allur galdurinn.
Þeim er komið fyrir á plastramma með handfangi sem þrýst er
niður á sléttan flöt. Hnífurinn fellur á milli brýnsluhjólanna og er
alltaf í réttri stöðu fyrir brýnslu. Aðeins þarf nokkrar strokur fram
og aftur og sléttir hnífar jafnt sem tenntir fara að bíta aftur.
Fiskars vörurnar eru, eins og áður sagði, finnskar að uppruna
en kannski orðnar alþjóðlegar að einhverju leyti. Að minnsta
kosti hefur fslensk ameríska umboð fyrir þær hér á landi.
SENDIÐ PERSÓNU-
LEG JÓLAKORT
Fátt er jafnskemmtilegt og að fá jólakort sem sendandinn hefur
lagt alla sina sál í. Hér fá lesendur Vikunnar fjórar indælis upp-
ástungur að kortum til að mála, klippa út úr kartoni eða efnisaf-
göngum.
I kringum ►
snjókarlinn er
fallegur
stjörnuhlminn
úr pallíettum.
■4 Jólatré með
skrauti sem
einnig gseti tekið
sig vel út á pok-
anum undir jóla-
póstinn.
Efni: Einlitt efni í bakgrunn, afgangar í ásauminn, perlur, pall-
íettur, gullbönd, blúnduafgangar, límpappír, tvöföld kort, hvítur
pappír og umslög.
Aðferð: Teiknið myndirnar upp á pappírshlið límpappírsins.
Strauið límpappírinn yfir á efnisafgangana og klippið út. Strauið
hlutana yfir á bakgrunninn og saumið þá á með þéttum sikksakk-
saumi. Saumið á perlur, pallíettur, blúndur og kontórsting sem
greinar. Þrýstið varlega á bakgrunninn og límið myndina inn í
rammann. Klippið til hvítan pappír og límið á bakhlið myndarinn-
ar.
Sjá snið á bls. 80 hér til vinstri.
24. TBL 1990 VIKAN 81