Vikan - 24.11.1938, Síða 12
12
VIKAN
Nr. 2, 1938
Degar Gissur ætlaði að spjalla við Met'
Gissur gullrass: Ég er að hugsa um að bjóða
hr. Metúsalem heim til 'mín, til að tala við
hann um verzlunarmál. 1 klúbbnum er alltaf
svo margt um manninn.
Gissur gullrass: Það er bezt, að ég nefni
þetta við Rasmínu! Hún mun áreiðanlega hafa
gaman af að hitta hann og henni þykir mikið
betra, að ég sé heima!
Gissur gullrass: Þér er ekkert á móti skapi,
■ að hann komi hingað, Rasmína mín?
Rasmína: Ég er stórhrifinn! Hann er al-
þekktur kauphallar-burgeis og fínn maður.
Rasmína: Ég œtla að bjóða hingað hjónun-
um Þórs, Brún, Hólm og mörgum fleiri, en þó
sérstaklega minni ágætu vinkonu, hinni and-
styggilegu frú Tildran. Það fer í taugamar á
henni, að Metúsalem skuli heimsækja okkur!
Gissur gullrass: Rasmína, ef þú ætlar þér að
bjóða öllu þessu hyski, þá fæ ég engan frið.
Rasmína: Æ! Haltu þér saman! Þú getur
talað við hann seinna. Halló! Emð það þér,
kæra frú Tildran!
Rasmína: Hér verður fjöldi fólks í kvöld,
María! Við verðum að hafa smurt brauð og
ljúffengan ábæti!
María: Já, frú!
Rasmína: Vandið þér nú reglulega til þess!
Erla: Mamma, finnst þér það nokkuð verra,
að ég hefi boðið nokkmm vinum mínum heim
í kvöld!
Rasmína: Nei, ekki vitund! Því fleiri, því
betra!
Rasmína: Jú, þér megið til með að koma.
Ungfrú Svala ætlar að syngja og síðan syngj-
um við tvisöng, hún og ég.
Gissur gullrass: Guð minn góður. Þvilíkt
kvöld
Frú Hraundahl: Við ætluðum rétt að líta
inn, en úr því að það eru gestir, förum við
strax!
Rasmína: Nei, nei, gjörið þið svo vel!
i
Ungfrú Svala (syngur): Ég er sem bláa
blómið, svo blíð og hrein og skær . . .
Hr. Þrándur (hugsar): Vesalings stúlkan!
Blá er hún, en blíð og skær!
Frú Þjótta: Hafið þér séð frú Sveins? Hugs-
ið þér yður, hún er í sama kjólnum og í fyrra!
Frú Grettla: Ef ég væri eins ljót og hún,
myndi ég hvergi koma!
Ungfrú Skrafla: Þér hljótið að hafa hræði-
lega mikla ánægju af öllum þessum gestum?
Gissur gullrass: Já, ungfrú, þeir eru mér til
-hræðilegrar — hm — hræðilegrar ánægju.