Vikan - 24.11.1938, Side 15

Vikan - 24.11.1938, Side 15
Nr. 2, 1938 VIKAN 15 Hattatízkan líkist nú mest því sem hún var um alda- mótin. Efnin, sem mest eru notuð í hatta, eru antilópufilt, hárfilt og velour. Aðaltízkulitirnir eru grænt og blátt. Hattarnir eru skreyttir skinnum (refa- hausum o. fl.), slæðum, sem ná alveg fyrir andlitið og alla vega litum fjöðrum. Einnig eru mikið notaðir hattar og hand- skjól úr skinni. Svona ekki svona. tkki svona Ef Þér erað mittismjoar en mjaðma breiðar, eiga kjólarnir ekki að falla alveg að. — Þeir mega vera þröng- ir niður í mitti, en þaðan verða þeir svo að víkka. Þá kemur mittið vel í ljós, en mjaðmirn- ar ekki. fc.kki svona Eitt þýðing- armesta at- riðiðíklæða- burði er að kunna að velja liti kjólanna eftir andliti og háralit. Ef þér eruð dökkhærðar, klæðir yður bezt ljósir o£ bjartir litir. ?von& Snyrting (Make-up). Dag- og kvöldsnyrtingar eru mjög ólík- ar. Andlitssnyrting að degi til fer fram á eftirfarandi hátt: Andlitið er fyrst hreins- að vel og vandlega. Þá er borið á það nær- andi krem og því nuddað vel inn í hör- undið. Síðan er mestur gljáinn þurrkaður burt, borinn kinnafarði á kinnarnar og þess vel gætt, hvar hann lítur eðlilegast úr. Forðast verður of sterka liti í dags- birtu.. Því næst er borið andlitsduft á andlitið, það látið hggja augnablik á því og síðan jafnað með bómull. Andlitsauft, sem sezt hefir á hár og augnabrýr er burstað burt. Ef augnaskuggi er notaður á daginn, er grár eða brúnn litur beztur. Ef um langleitt fólk er að ræða, þarf kinnafarðinn að vera nálægt nefinu, en lít- ið eitt má bera undir hökuna, því við það verður andlitið kringluleitara. En á breið- leitu fólki fer betur að rauði liturinn sé utarlega á vöngunum og lítið eitt á hök- unni, það mjókkar andlitið. Einnig er hægt að hylja hrukkur á andlitinu með rauða litnum. Ljóshærðum stúlkum fer bezt grænleitt andlitsduft, en þó verða þær að gæta varúðar við notkun þess. Dökkhærð- um stúlkum fer bezt bláleitt andlitsduft. Skilyrði fyrir því, að snyrtingin takist vel, er þó fyrst og fremst það, að húðin sé heilbrigð. Ef hún er veik, ætti fyrst að lækna hana. Annars er ekki hægt að -hafa full not af snyrtingunni, nema því meiri varúðar sé gætt. Húsráð: Sítrónur eru til margra hluta nytsam- legar: gera þvottavatn ferkst, slökkva þorsta, eyða líkþornum, lækna hósta, minnka hjartslátt, draga úr sviða eftir bruna, eyða vörtum, hreinsa og þurrka hár, væta sprungnar hendur, eyða freknum, ná bleki af fingrum, fæla flugur frá kjöti og fiski. stífa eggjahvítu, þegar verið er að þeyta hana, viðhalda gljáa á látúni, hreinsa gula skinnskó. Edik: er gott við hiksta, eyðir mari, hreinsar vel óhreinar hendur, er gott við þvölum höndum. Samkvæmis- eða danskjólar eru flestir úr silki, tafti, tyll, blúnduefni, flaueli, sléttu eða rósóttu, segir nýasta Parísartízka. Þeir eru undantekningarlaust flegnir, ermalausir, aðskornir í mitti og mjög víðir að neðan, allavega litir — einlitir og rós- óttir. Létt blúnduefni eru mikið notuð með öðru vísi litu tyllfóðri. Við danskjóla eru einnig notuð allskon- ar slá, en fallegust þykja stutt, víð, erma- laus loðslá. Kvöldkjólar eru bæði stuttir og síðir úr ýmsum efn- um, ýmist úr þungum, ,,möttum“ ,,crepe“- efnum í öllum litum eða flaueli (velour). Kvöldkjólarnir eru allir háir í hálsinn, og á það vel við hina nýju hárgreiðslu, þar sem hárið er greitt upp í hnakkanum. Þess- ir kjólar eru skreyttir með perlu-útsaumi og ,,paillettum“. Þá eru og skinnlegging- ar á sumum. Nýlega voru gefin saman í hjónaband Kristín Sigurðardóttir verzlunarmær og Þorgrímur Krist- insson, bifreiðarstjóri. Heimili þeirra er á Blóm- vallagötu 11. Loftur tók myndina.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.