Vikan - 01.12.1938, Síða 17

Vikan - 01.12.1938, Síða 17
Nr. 3, 1938 VIKAN 17 Frá heimkynnum KÁTSJÚKSMIS Hér lýkur grein kolombiska rithöf- undarins E. Rivera um leyndar- dóma frumskógarins. Á hverri kátsjúkvinnslustöð er stórt hreysi eða kumbaldi, sem á mállýzku manna í Amazónfrumskógunum nefnist ,,caney“; er hann byggður úr bjálkum með hálmþaki og er hvorttveggja í senn íbúð- arhús og birgðageymsla. Þessi bjálkahús eru aldrei skilin eftir mannlaus, því að þar er gúmmíið geymt ásamt matarforðanum og áhaldabirgðum, og þar búa flokksstjór- arnir með skylduliði sínu. Verkafólkið er aðallega innfæddir menn, börn frumskóg- arins, og hvítir menn eða kynblendingar, sem ráðnir eru samkvæmt landsvenju í að minnsta kosti tvö ár í senn. Hver verka- maður hefir sinn reikning hjá fyrirtæk- inu, þar sem allt er fært inn, sem honum er lánað, t. d. verkfæri, matvara Og aðr- ar nauðsynjar, og frá því er svo dregið kátsjúkið — græna gullið — sem hann leggur inn. Húsbóndinn ákveður verðið. Aldrei fær neinn kátsjúkvinnslumaður að vita, hvað það kostar, sem hann tekur út, né hvað honum er greitt fyrir það, sem hann leggur inn, en framkvæmdastjóri fyrirtækisins kemur því æfinlega svo fyrir í reikningslok, að hann á hjá verkamönn- unum, en þeir ekki hjá honum. Plokksstjórarnir kunna líka margskon- ar aðferðir til að féfletta verkamenn þá, sem eru undir þeirra stjórn. Þeir stela af kátsjúki þeirra svo lítið ber á, safna því í forðabúr neðanjarðar og selja það svo á laun til gúmmíkaupmanna. Þeir ræna jafnvel konum þeirra og dætrum og verzla með þær. Þá verkamenn, sem þeim er illa við, senda þeir í þá staði, sem lægst liggja, vitandi að þar er mjög lítið kátsjúk í trján- um, og ef þeir geta ekki komið með það magn, sem krafist er, gefst tækifæri til að skamma þá, hýða og jafnvel skjóta á þá úr winchester (byssu). Það er nóg að segja, að þessi eða hinn hafi flúið eða dáið úr hitabeltisköldu —- hvorttveggja er svo algengt, — og auk þess er frum- skógurinn stór og enginn hægðarleikur að rannsaka, hvað er hið sanna. En verkamennirnir sjálfir eru engir englar. Þeir stela oft hver frá öðrum. Sum- ir ráða sig í þessa vinnu með það eitt fyrir augum, að fá tækifæri til að ráða óvini sína af dögum, eða koma á annan hátt fram hefndum á þeim í frumskóginum. Aðrir eru þrælasalar í hjáverkum, selja félaga sína þeim iðjuhöldum í nágrenn- inu, sem vantar vinnukraft og hæst bjóða fyrir hann. Eigendurnir hafa leyfi til að taka alla þá fasta, sem ekki hafa nægileg skilríki eða ástæður fram að færa fyrir veru sinni á umráðasvæði þeirra. En nú er altítt, að þeir séu rændir einmitt þeim skilríkjum. Er þá fanginn látinn vinna á stöðinni á meðan ekki fæst vitneskja um fortíð hans eftir skjalfestum heimildum. En þær heimildir koma bara aldrei fram. Ár og dagar líða, og aldrei tekur þrælk- unin enda, nema fanganum takist að strjúka og sleppa undan kúlnaregni eftir- leitarmanna. Þannig hafði Silvia þrælkað í sautján ár! Einhver alræmdasti þrælahaldarinn á þess- um slóðum var Korsíkumaður, stroku- fangi frá Djöflaey, frönsku sakamanna- nýlendunni. Gekk hann undir nafninu Ca- yenne. Blöðin í borgunum vekja stundum máls á hinum ömurlegu kjörum verkamannanna þarna uppi í landinu. Þrátt fyrir illan að- búnað, er menntun þeirra furðu góð, og flestir eru læsir og skrifandi. Blöð, sem þeim berast, ganga á milli þeirra og verða svo slitin af lestri, að þau fara í graut. Eftirlitsmaður var eitt sinn sendur þang- að ^ipp, en honum var sagt, að rauðu rák- irnar eftir svipuhöggin á bökum karlanna væru af völdum trés, sem nefndist ,,la mariquita“: ef þeir settust í forsælu þess, kæmu þessar rákir á hörundið. Aðrar upp- lýsingar voru eftir þessu. Eftirlitsmaður- inn varð öllu að trúa og fór við svo búið; tók aðeins loforð af fyrirliðunum að lag- færa þetta eða hitt, sem auðvitað var ekki haldið. Útlendingar koma þar örsjaldan og færri sleppa þaðan lífs. Eitt sinn var þar á ferð hópur franskra vísindamanna, sem tóku þátt í rannsóknarför um þessi héruð. Fengu þeir ýms sönnunargögn upp í hend- urnar um það, að verkafólk ætti þar að búa við hin verstu kjör og pyntingar. En fyrirliðarnir á kátsjúkvinnslustöðvunum sáu svo um, að forstjóri fararinnar og öll sönnunargögnin fóru afleiðis og komu aldrei fram. — Eftir því sem nær dró kátsjúksvæðinu, varð skógurinn þéttari og ekki um hann farandi, nema eftir fljótunum. Nú tók hinn virkilegi Amazón-frumskógur við. — I fyrsta skipti á æfi minni fékk ég nú að líta hinn ómannúðlega skóg í allri hans ógn og stórfengleik. Óhemju tré eru fangar æfintýralegra vafningsviða, sem tengja þau við pálmana langt í burtu og hanga niður í vingsandi bugðum eins og illa strengd net. I þessi hengirúm vafnings- jurtanna safnast margra ára birgðir af skrælnuðu laufi, fuglahreiðrum og aldin- um, unz þau slitna niður af þunganum og hvolfa úr sér á jörðina öllu innihaldinu, blindum skriðdýrum, illa lyktandi sala- möndrum og loðnum köngulóm. Allsstaðar smeygir ,,matapalo“ — viðarbaninn — öngum sínum utan um trjábolina, límist við þá, stingur þá og sýgur úr þeim merg- inn, unz þeir verða visnir og líflausir. ,,Mauraplönturnar“ (bachaqueros) svo- nefndu spúa trilljónum af eyðandi rauð- maurum, sem flæða í breiðum fylkingum yfir skóginn og éta allt upp til agna, sem fyrir þeim verður á leið þeirra niður í jarðholurnar, er þeir að lokum hverfa nið- ur um. Termítarnir naga trén og grafa þau sundur, unz þau verða jafn ógeðsleg útlits og útsteyptir holdsveikis- eða sára- sóttarsjúklingar á síðasta 'stigi veikinnar; þeir naga æðar trjánna og gera börk þeirra að dufti, unz þeim tekst að fella þau snögglega, með laufkrónu, sem enn er lifandi. Jörðin heldur áfram að framleiða. Á gröf risatrésins skýtur nýtt jurtalíf rótum með leifturhraða. Fræin sveima um allt í heitum skugga forsælunnar, samhliða hrollköldum gusti dauðans og tæringar- hita tímgunarstarfsins. Iivar er að finna í þessu ljóðrænan unað þægilegrar, öruggr- ar, kyrrlátrar tilveru ? Hvar eru hin marg- litu fiðrildi, sem líta út eins og gagnsæ blóm? Hvar eru hinir undursamlegu fugl- ar og hjalandi lindir? Það er allt saman aumkunarleg ímyndun skáldanna, sem þekkja ekki annað en Iífsþægindi, frið og öryggi við arineld siðmenningarinnar. Hér eru engir næturgalar, sem syngja um ástir, engir skemmtigarðar á la Ver- sailles, engin rómantísk útsýn. Aðeins kvak í vatnssjúkum froskum, þyrnótt kjarr á mannafælnum hæðum og mýra- flákar með fúadýjum, sem eitra loftið með uppgufun sinni. Aðeins sníkjujurtir, sem strá yfir grassvörðinn dauðum hunangs- flugum, kynstrum af ógeðslegum blómum, sem engjast sundur og saman með kyn- ferðislegum blettum og gefa frá sér kvoðu- kenndan ilm, er gerir menn ölvaða, eins og áfengur drykkur: hin lúmska „slöngu- jurt“, sem blindar skógardýrin með dún- laufi sínu; ,,la pringamosa“, einskonar brenninetla, sem hleypir bólgu í hörundið, ef við hana er komið; ,,curuju“plantan —- með berjaklasa, sem líkjast kúlum af öll- um regnbogans litum, en hafa þó ekki ann- að inni að halda en ætandi ösku; villivín- viðurinn, sem gefur ekki af sér vín, held- ur laxerolíu; ,,coroso“jurtin með hinum beisku aldinum sínum, o. s. frv. Og á nóttinni sjást furðuleg ljós og óþekktar raddir heyrast. Þess á milli er grafarþögn yfir allt. Það er dauðinn, sem fer hljóðlega um héraðið, eins og ósýnileg sláttuvél; en í hverri skár kviknar líf á

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.