Vikan - 12.09.1940, Page 7
t
VIKAN, nr. 37, 1940 7
Hið nýja andrúmsloft kafaranna
Síðustu áratugina hafa verkfræðingar
og vísindamenn átt í stöðugri glímu
við tvö þýðingarmikil viðfangsefni:
aðferð til að útiloka brunahættu í loft-
skipum og aðferð, sem gerir köfurum
kleift að vinna störf sín óhindraðir á miklu
dýpi.
Helium varð, þótt undarlegt megi virð-
ast, lausnarorð þessara ólíku viðfangsefna.
Helium er lofttegund, sem er sjö sinnum
léttari en andrúmsloftið og getur ekki
brunnið.
Kafanir hafa tíðkazt allt frá upphafi
vega — að minnsta kosti allt frá þeim
tíma, að Kleopatra lét kafara kafa til þess
að hengja fisk á krókinn hjá Marcusi
Antoniusi til að þóknast honum, — en þan-
þol lungnanna er takmörkum háð og jafn-
vel beztu sundkafarar geta ekki verið nema
eina mínútu neðansjávar og það aðeins
skammt undir yfirborði.
Svo fundu menn upp kafarabúninginn.
Það er vatnsheldur alklæðnaður og kopar-
hjálmur, sem dælt er í lofti til að vega
upp á móti þrýstingi vatnsins. I honum
gátu kafararnir komizt allmiklu dýpra og
verið lengur niðri.
Á þessu var þó sá hængur, að þegar
kafararnir komu upp af 25 til 30 metra
dýpi, veiktust þeir af mjög dularfullum
sjúkdómi, sem annað hvort leiddi til dauða
eða ævilangrar lömunar.
Frakkinn Berth uppgötvaði, að sjúkdóm-
urinn stafaði af því, að kafararnir flýta
sér að lokinni vinnu upp á yfirborðið og
verða þá fyrir svo snöggum breytingum á
loftþrýstingi, að líkami þeirra — lungu,
hjarta og taugakerfi — þola það ekki.
Berth ráðlagði því að fara hægt upp á
yfirborðið og það dugði.
Skýring Berths var sú, að hið eitraða
köfnunarefni í andrúmsloftinu, sem menn
anda frá sér undir venjulegum kringum-
stæðum, þrýstist ásamt súrefninu inn í
blóðið og þaðan inn í hjarta og taugakerfi,
vegna hins mikla þrýstings, sem er inni
í kafarabúningnum. Þegar þrýstingurinn
minnkar of ört, vegna þess að kafarinn
fer of fljótt upp á yfirborðið, kemur köfn-
unarefnið aftur út í blóðið í bólum — alveg
eins og kolsýrubólur myndast, þegar þrýst-
ingurinn er minnkaður í sodavatnsflösku
með því að taka tappann úr henni. Ef
mikið af köfnunarefnisbólum berst með
blóðinu til hjartans, deyr kafarinn, en ef
þær sitja fastar í taugamiðstöðvunum, or-
sakar það kvalarfulla lömun. En ef kaf-
arinn fer nógu hægt upp, seytlar köfnun-
arefnið út í örsmáum bólum og veldur ekki
verulegu tjóni.
Kafaraútbúnaðurinn var stöðugt endur-
bættur og kafararnir gátu orðið komizt
niður á 100 metra dýpi sér að skaðlausu,
en því fylgdi alltaf sá ókostur, að kafar-
Með aðstoð heliums hafa
menn komizt niður á 125
metra dýpi.
arnir urðu ,,ölvaðir“ af áhrifum köfnunar-
efnisins 'og misstu oft meðvitund na.
Fyrir skömmu fann svo amerískur sjó-
liðsforingi, C. B. Momsen að nafni, upp
á því, að blanda andrúmsloft kafarans með
helium, en taka burtu köfnunarefnið. Heli-
um er 7,03 sinnum léttara en köfnunarefni
og er svo tregt, að það gengur ekki í sam-
band við nokkurt annað efni, og kenning
Momsens var sú, að það mundi hverfa fyrr
úr líkamanum en köfnunarefnið og því
ekki valda veikindum eða ,,ölæði“.
Tilraunir, sem gerðar voru á köfurum
í stórum vatnsgeymum, gáfu ágætan
árangur og sýndu, að kafarar, sem verið
höfðu niðri á 100 metra dýpi, fundu ekki
til neinna óþæginda, þegar þeir komu upp
og höfðu aldrei misst meðvitundina á með-
an þeir unnu niður við botninn.
Eini gallinn á helium er sá, að það er
töluvert betri hitaleiðari en andrúmsloftið,
svo að kuldinn ásótti kafarana meira en
áður.
Momsen klæddi því kafara sína í þykk,
rafhituð nærföt og sendi þá svo niður í
djúp hafsins.
Bezti kafari hans heitir Badders. Hann
hefir komizt niður á 405 feta dýpi — eða
um 125 metra, — þar sem hitinn var að-
eins 2 gráður og þrýstingur vatasins 195
tonn. Hann gat unnið störf sín óhindraður
án þess að kuldinn eða þrýstingurinn háði
honum nokkuð.
Momsen og dr. Behnke aðstoðarmaður
hans eru sannfærðir um, að með smávægi-
legum breytingum á kafarabúningnum
muni kafararnir geta komizt niður á 250
metra dýpi.
Keratin er eitthvert merkilegasta efnið,
sem myndast í líkömum manna og dýra.
Það er aðalefnið, ekki einungis í því, sem
mjúkt er, svo sem ull, húð, hári og fiðri,
heldur einnig í hörðum efnum, eins og
hornum, hófum, nöglum, klóm og hreistri.
#
Þjóðverjar búa til benzín og smurnings-
olíu úr kolum, og úr einu úrgangsefninu,
sem kemur fram við þá vinnslu, framleiða
þeir nægilegt fituefni í alla sápufram-
leiðslu landsins.
Einnig í þessum kafarabúningi, sem þolir þrýsting vatnsins á 500 metra dýpi, er notað helium.