Vikan - 31.10.1940, Page 2
2
VTKAN, nr. 44, 1940
Póstwrtnn. Ji
Undir þessari fyrirsögn mun
framvegis verða svarað
bréfum, sem Vikunni berast
og almennt gildi hafa. Blað-
inu er ljúft að birta stutt
bréf eða kafla úr bréfum
frá lesendum og mun svara
þeim eftir beztu getu.
1. Gissur og Rasmína. Eins og þeir
muna, sem fylgzt hafa með efni Vik-
unnar frá upphafi, birti hún hinn
fræga Gyldenspjæt-myndaflokk úr
danska vikublaðinu „Hjemmet". —
Skömmu eftir hemám Danmerkur,
þraut það, sem vér höfðum fengið
sent. Aftur hefir „Sigga litla“ og
„Óli og Addi í Afríku" enzt þar til
nú. En nú koma Gissur og Rasmína
aftur fram á sjónarsviðið í Vikunni.
Gissur (Gyldenspjæt) er nefnilega
ekki „fæddur" í Danmörku. Hann er
„innflytjandi" frá Ameríku. Nú höf-
um vér leitað uppruna hans og fáum
hann eftirleiðis beint þaðan, ásamt
miklu af öðru myndaefni, fjölbreyttu
og skemmtilegu. Erum vér þess full-
vissir, að það muni gleðja alla les-
endur Vikunnar að sjá nú aftur fram-
an í þennan gamla kunningja.
Vitið pér j>að?
1. Hvað heitir forsætisráðherra
Grikklands ?
2. Hvað þýðir orðið Sudan?
3. Er hreindýrið jórturdýr?
4. Hvort er litblinda algengari á
meðal karla eða kvenna?
5. Hvar er nýlendan Kamerun, sem
áður var í eigu Þjóðverja ?
6. Hverjir eru þingmenn Eyfirð-
inga?
7. Er python-slangan eiturslanga?
8. Hvort er hin enska lengdareining
y a r d lengri eða styttri en
meter?
9. Hvað heitir tækið, sem notað er
til atom-sprenginga ?
10. Hvaða þjóð borðar tiltölulega
mestan sykur?
Sjá svör á bls. 10.
Afgreiðsla Vikunnar
er flutt í Kirkjustræti 4
(Steindórsprent h.f.)
Sími 5004.
International Diesel
30—100 ha. landmótora getum við útvegað nú
þegar frá New York gegn greiðslu í enskri mynt.
Vélsmiðjan Héðinn
Símar 1365 (3 línur).
Skrítlur.
Það var uppboð í Bárunni. Allt í
einu gengur maður til uppboðshald-
arans og hvislar nokkur orð í eyra
hans. Uppboðshaldarinn hrópar: „Það
hefir týnzt hér veski með peningum
og skjölum. Eigandinn býður 500 kr.
í fundarlaun!“
Þögn. — Svo heyrist rödd úti í
homi: „Og fimm!“
„Ég þekki mann, sem er svo líkur
yður, að það er varla hægt að þekkja
ykkur i sundur."
„Hm, hm — heyrið þér! Þér hafið
vonandi ekki borgað honum tíu krón-
urnar, sem ég lánaði yður í fyrra ?"
„Hvers vegna fóruð þér af skrif-
stofunni hjá Bíldal & Co.?“
„Þeir gerðu nokkuð, sem mér lík-
aði ekki."
„Nú, hvað var það?“
„Þeir sögðu mér upp.“
„,Það er einhver útvöxtur hér á
brjóstinu á yður,“ sagði klæðskerinn,
sem var að taka mál, „en við saum-
um fötin svoleiðis, að þér vitið ekki
af, að þessi útvöxtur sé til."
„Það þykir mér líklegt," andvarp-
aði viðskiptamaðurinn, „þetta er pen-
ingaveskið mitt í innri vasanum."
Sjúklingurinn hafði verið með
óráði um lengri tíma og var að koma
til sjálfs sin.
„Hvar er ég?" spurði hann veik-
um rómi. „Hvar er ég? 1 himnariki?"
„Nei, elskan mín," sagði konan
hans, „ég er hérna hjá þér.“
Dóttirin: „Mamma, hvers vegna
giftistu honum pabba?"
„Móðirin: „Jæja, svo að þú ert líka
farinn að furða þig á því!“
Efni bladsins m. a.i
Ekki of gömul til að elska,
smásaga eftir Dahlia Gordon.
Með straumnum, eftir Þórunni
Magnúsdóttur.
Hvemig möndulveldin hugsa
sér að taka Gibraltar.
Endalok Jacks Dondon, eftir
Irving Stone.
Gissur leitar að Rasmínu.
Þjóðgarður Reykvíkinga.
Korni Ikomi, Vippa-saga eftir
Halvor Asklöv.
Kirkja Krists í ríki Hitlers.
Maggi og Raggi, myndir fyrir
drengi.
Framhaldssaga. — Heimilið. —
Siggi litla og Óli og Addi í
Afríku. — Sltrítlusíða o. m.
m. fl.
„Er gott heilsufar hér í þorpinu?"
„Ég er nú hræddur um það. Ekki
nema einn maður dáið hér siðustu
tíu árin."
„Hver var það?“
„Læknirinn — hann dó úr hungri."
HEIMILISBLAÖ
Ritstjórn ogafgreiðsla: Kirkju-
stræti 4. Sími 5004. Pósthólf 365.
Verð: kr. 2,00 á mánuði,
0,50 I lausasölu.
Auglýsingum í Vikuna veitt
móttaka í skrifstofu Steindórs-
prents h.f., Kirkjustræti 4.
Prentsm.: Steindórsprent h.f.
Varnings og
s............................................
starfsskrá
Saumastofur.
TAU OG TÖLUR
Lækjargötu 4. Sími 4557.
Saumum allskoiiar kjóla og
kápur. Aðalbjörg Sigurbjöms-
dóttir, Hverfisg. 35. Simi 5336.
Frímerki.
Kaupi notuð íslenzk frimerki.
Sigurður Kjartansson, Lauga-
vegi 41. Sími 3830.
Notuð íslenzk frímerki kaupi
ég ávallt hæsta verði. Duglegir
umboðsmenn óskast um land
allt. Há ómakslaun. Sig. Helga-
son, frím.kaupm. Pósthólf 121,
Reykjavík.
Stimplar og signet.
Gúmmistimplar em búnir til
með litlum fyrirvara. Sömu-
leiðis signet og dagsetningar-
stimplar. Steindórsprent h.f.
Kirkjustræti 4, Reykjavík.
Signeta-gröft og ýmiskonar
annan leturgröft annast Bjöm
Halldórsson, Laufásveg 47,
Reykjavík.
Skó- og gúmmíviðgerðir.
Allar skóviðgerðir vandaðar og
vel unnar. Júlíus Jónsson, Aðal-
stræti 9.
Bækur - Blöð - Tímarit
V i lc a n er heimilisblaðið yðar.
Gerist áskrifandi og mun blað-
ið þá verða sent yður heim á
hverjum fimmtudegi. Afgreiðsl-
an er í Kirkjustræti 4, Reykja-
vík. Sími 5004. Pósthólf 365.
Viðskiftaskráin 1940 fæst í öll-
um bókaverzlunum. Nauðsyn-
leg bók öllum þeim, er við
kaupsýslu fást.
Bon-bækur fyrir hótel og veit-
ingastofur fást í Steindórs-
prenti h.f., Kirkjustræti 4. Simi
1174.
Vasa-orðabækur: Islenzk-ensk
og ensk-islenzk fást í öllum
bókaverzlunum. Hver sá, sem
þessar bækur hefir um hönd,
getur gert sig skiljanlegan við
Englendinga, þótt hann kunni
ekki ensku. Verðkr. 3,00 og 4,00.
Verndið heilsu barnanna!
B ARNIÐ
bók handa móöurinni.
Eftir Davíð Scheving Thor-
steinsson lækni, 144 bls. með 64
myndum, fæst í bókaverzlunum.
Verð: í bandi 3,00, heft 2,00.
Ýmislegt.
Borðkort
ýmis konar, svo
sem: Tvöföld,
skáskorin og
ýmsar aðrar
tegundir fást í Steindórsprenti,
Kirkjustræti 4, Reykjavík.
Cf þér gerist áskrifandi að
Vikunni, fáið þér á hverjum
fimmtudegi fjölbreytt og
skemmtilegt heimilisblað. 1 þvi
I er eitthvað handa öllum: Fróð-
Félagið INGÓLFUR
Tilgangur félagsins er að
gefa út, eftir því sem
efni leyfa, rit, er heitir:
Landnám Ingólfs, ■
safn til sögu þess.
Félagið hefir þegar gef-
ið út III bindi i 10 heft-
um. Þessi rit fá meðlimir
ókeypis. Ennfremur hefir
félagið gefið út Þætti úr
sögu Reykjavíkur. Bók
þessi fæst hjá bóksölum.
Þeir, sem gerast vilja
meðlimir, snúi sér til af-
greiðslunnar: Steindórs-
prent h.f., Kirkjustræti4.
Reykjavík.
Kaupi og sel allskonar
verðbréf og fasteignir.
Garðar Þorsteinsson
Símar 4400 og 3442. Vonarstræti 10.
legar greinar, skemmtilegar
sögur, fréttamyndir, barnasög-
ur, framhaldssaga, heimilissíða
o. m. fl. — Hringið í síma 5004
og gerist áskrifandi, eða skrif-
ið: Vikan, Pósthólf 365, Rvík.
HREINSUNTXRCRENE
Hótel Borg,
Pósthússtr. 11.
Sími 1440.
Gistihús. Kaffi- og matsöluhús.
Hliðstætt beztu erlendum
hótelum.
Sendið auglýsingar
í Vikuna í
Steindórsprent h.f.,
Kirkjustræti 4.
Útgefandi: VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Kirkjustræti 4, sími 5004, pósthólf 365.