Vikan - 31.10.1940, Síða 10
10
VIKAN, nr. 44, 1940
Heimilið
Matseðillinn.
Kjötréttur: Vínarsnittur.
inn í faldinn á gardínunni að neðan, til þess að
strengja hana, þá verður hún alveg þurr, þegar
hún þornar.
Svör við spurningum á bls. 2:
1. Metaxas.
2. Það er arbiska og þýðir ,,land hinna blökku
manna“.
3. Já.
4. Tíu sinnum algengari meðal karla.
5. 1 vesturhluta Mið-Afríku.
6. Bernharð Stefánsson og Jón Ámason.
7. Nei, hún er kyrkislanga.
8. Styttri, hann er 0,9144 metrar.
9. Cyclotron.
10. Danir. Þeir borða 56 kg. á mann á ári. Eng-
lendingar koma næstir með 48 kg. á mann.
3 kg. kjöt (læri), 2 egg eða hveitijafningur, 12
sítrónusneiðar, 2 teskeiðar salt, ofurlítið af pipar,
steyttar tvibökur, asoiur, gaffalbitar og kabes.
Kjötið er þvegið með veluppundnum lérefts-
dúk, stærstu himnur og sinar skomar burtu og
kjötið aðskilið eftir vöðvum. Skorið í hæfilega
bita og barið lítið eitt. Blandað saman salti og
pipar og því stráð yfir bitana. Dýft í egg og
velt upp úr steyttum tvíbökum.
Steikt á pönnu í smjöri i 6 til 8 minútur eða
þangað til það verður fallega ljósbrúnt. Siðan
er kjötið látið á fat og því haldið heitu. Ofan á
hverja sítrónusneið er látinn einn gaffalbiti og
lítill asíubiti; þar á milli 3 til 4 kom af kabes.
Kjötinu er raðað á fat og ofan á hvern bita er
sett ein sítrónusneið. Borið á borð með brúnuðu
smjöri eða brúnni sósu, soðnum eða brúnuðum
kartöflum og einnig ýmsu grænmeti.
Fiskréttur: Fiskirúllettur.
500 gr. soðinn og hreinsaður fiskur, 150 gr.
smjör, 150 gr. hveiti, 1 líter mjólk eða fiskisoð, 10
blöð matarlím, 2 egg, 1 teskeið salt, ofurlítið af
hvitum pipar og plöntufeiti.
1 rúllettur er vanalega notaður þorskur eða
ýsa. Þegar búið er að sjóða fiskinn, er roð og
bein tekið burtu. Matarlímið er látið liggja í
bleyti í 10 mínútur. Ljós sósa er búin til úr
smjöri og hveiti og þynnt út með sjóðandi mjólk
eða fiskisoði. Matarlímið er undið upp og látið
út í sósuna, sem síðan er soðin í nokkrar mín-
útur. Þá er potturinn tekinn af eldinum og rauð-
umar hrærðar út í ein og ein í einu ásamt salti
og pipar. Seinast er fiskinum hrært saman við.
Þessu er síðan helt á fat og látið kólna. Þá eru
búnar til úr því litlar bollur, sem dýft er í þeytt-
ar egjahvítur og steyttar tvíbökur, og þær soðn-
ar í plöntufeiti, þangað til þær verða ijósbrúnar.
Teknar upp á spaða og settar á hvítan pappír.
Það má ekki halda þeim heitum í bakarofni, þvi
að þá linast þær upp, og ekki heldur hvolfa yfir
þær. Bollunum er raðað á fat í hrúgu. Borið á
borð með hrærðu smjöri eða tartarsmjöri.
Húsráð.
Ef bláman gerir bletti eða rákir í þvottinn hjá
yður, þá setjið hnefafylli af salti í skolvatnið, og
þá munu blettirnir hverfa.
Það er hægt að komast hjá hinni megnu lykt,
sem kemur af káli við suðu, með þvi að vinda
klút upp úr ediki og leggja hann yfir pottinn,
undir lokið.
Þér getið komizt hjá að strauja gardínurnar
yðar, ef þér hengið þær upp á gardínustengumar
á meðan þær eru blautar. Gott er að stinga stöng
um of, er gott að gegnvæta þerripappír í glycer-
íni'og leggja það innan i lokið. Glycerínið heldur
rakastiginu nokkurn veginn óbreyttu, svo að tó-
bakið geymist óskemmt.
Blek- og ryðblettir hverfa, ef þeir eru nuddaðir
með tómatsafa.
1 ______________________
Údýr vasabók áföst við símann er einkar þægi-
leg fyrir fólkið á heimilinu. I hana getur fólkið
skrifað sér til minnis, skilaboð um upphringingar
og ýmislegt fleira, sem afgreitt er í gegnum síma.
Ef svo slysalega vill til, að steikin brennur við,
má alveg ná burtu brunabragðinu með því að
setja nokkrar sneiðar af soðnum rauðbeðum . .
Til þess að koma í veg fyrir, að reyktóbak eða
sigarettur, sem geymdar eru í tinboxum, þorni
Handtók fallhlífarhermann.
Kona ensks liðsforingja í heimavamarliðinu,
frú Daisy Cardwell, handtók þýzkan fallhlifar-
hermann, sem lenti skammt -frá húsi hennar. „Eg
gerði mig eins byrsta á svipinn og ég gat,“ segir
hún, „benti á byssuna hans og skipaði honum að
afhenda hana.“ Fallhlífarhermaðurinn hlýddi og
er nú í fangabúðum.
Margaret Rose
Englandsprinsessa.
Yngsta móðir í heimi.
Þetta er yngsta móðir í heimi, Lina Medína,
ásamt Jerry syni sínum, 18 mánaða gömlum.
Hún er frá Peru og varð 17 ára gömul í septem-
bermánuði síðastliðnum.
Margaret Ftose, sem hélt hátíðlegt tíu ára af-
mæli sitt 21. ágúst, sést hér á myndinni niður-
sokkin í að teikna. Brezku konungshjónin hafa
hætt við að senda böm sín til Kanada, eins og
þau höfðu ætlað sér.