Vikan - 24.01.1994, Blaðsíða 38
Þú átt eftir að upplifa þær slundir, líklega síðsumars, að þér
finnst þú hafa færst of mikið í fang. Þú veist stundum ekki hvar
þú getur leitað aðstoðar. En þetta venst og möguleikar þínir lil
að spjara þig og sýna hvað í þér býr aukast eftir því sem líður á
sumarið.
Það, sem skiptir mestu máli, er ekki ofurmannleg viðleitni
heldur raunsætt mat á kringumstæðunum. Víðsýni þín er með
besta móti og þú kemst að því að þú ræður vel við það sem þú
tekur þér fyrir hendur. Tíminn vinnur með þér og þegar árslok
fara að nálgast kemstu að raun um að þú ert nteð pálmann í
höndunum.
SÉRSTÖK SKILABOÐ:
FÆDD(UR) 2L TIL 31. MAÍ:
Eins þversagnakennl og það hljómar þá geta útistöður við yfir-
boðara eða valdhafa lyfl þér á hærra plan. Hugur þinn er opinn
fyrir nýjungum og námshæfni þín með besta móti. Nýtt fólk
dregst að þér í desember og í þeim mánuði gætirðu stofnað til
margra varanlegra kynna.
FÆDD(UR) L TIL 10. JÚNÍ:
Þólt tálmar virðist vera á vegi þínum í maí og júní gætu góðar
stundír orðið á vegi þínum. Gríplu tækifæri, sem þér bjóðast í
ágúst, þótt þú getir ekki nýtt þau fyrr en seinna. Þú færð ný
tækifæri seint á árinu og þú verður vel undirbúin(n) til að nýta
þér þau.
FÆDD(UR) U. TIL 21, JÚNÍ:
Óvæntir viðburðir, líklega fjármálalegs eðlis, sjá til þess að þú
hefur um nóg að hugsa mcgnið af árinu. Aðlögunarhæfni þín
vinnur með þér þannig að þú ert á grænni grein. Gættu þess þó
að fara vel með heilsuna og gefðu þér tíma til að slaka á þegar
þú getur komið því við.
36 VIKAN