Vikan


Vikan - 24.01.1994, Page 38

Vikan - 24.01.1994, Page 38
Þú átt eftir að upplifa þær slundir, líklega síðsumars, að þér finnst þú hafa færst of mikið í fang. Þú veist stundum ekki hvar þú getur leitað aðstoðar. En þetta venst og möguleikar þínir lil að spjara þig og sýna hvað í þér býr aukast eftir því sem líður á sumarið. Það, sem skiptir mestu máli, er ekki ofurmannleg viðleitni heldur raunsætt mat á kringumstæðunum. Víðsýni þín er með besta móti og þú kemst að því að þú ræður vel við það sem þú tekur þér fyrir hendur. Tíminn vinnur með þér og þegar árslok fara að nálgast kemstu að raun um að þú ert nteð pálmann í höndunum. SÉRSTÖK SKILABOÐ: FÆDD(UR) 2L TIL 31. MAÍ: Eins þversagnakennl og það hljómar þá geta útistöður við yfir- boðara eða valdhafa lyfl þér á hærra plan. Hugur þinn er opinn fyrir nýjungum og námshæfni þín með besta móti. Nýtt fólk dregst að þér í desember og í þeim mánuði gætirðu stofnað til margra varanlegra kynna. FÆDD(UR) L TIL 10. JÚNÍ: Þólt tálmar virðist vera á vegi þínum í maí og júní gætu góðar stundír orðið á vegi þínum. Gríplu tækifæri, sem þér bjóðast í ágúst, þótt þú getir ekki nýtt þau fyrr en seinna. Þú færð ný tækifæri seint á árinu og þú verður vel undirbúin(n) til að nýta þér þau. FÆDD(UR) U. TIL 21, JÚNÍ: Óvæntir viðburðir, líklega fjármálalegs eðlis, sjá til þess að þú hefur um nóg að hugsa mcgnið af árinu. Aðlögunarhæfni þín vinnur með þér þannig að þú ert á grænni grein. Gættu þess þó að fara vel með heilsuna og gefðu þér tíma til að slaka á þegar þú getur komið því við. 36 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.