Vikan - 24.01.1994, Page 54
Bogmaöurinn
23. nóvember - 22. desember
ALMENNT ÚTUT:
Júpíter ríkir í Sporðdrekamerkinu um þessar mundir og þú ert
á góðri leið með að enda sérstakt tólf ára tímabil. Það hófst ár-
ið 1983 og náði hámarki árin 1990 og 1991. Þetta hefur að sumu
leyti verið gróskumikið útþenslutímabil, sem lýkur seinl á
þessu ári, en fjármálin hafa verið fremur ólrygg á sama tíma.
Fyrstu einkenni þess að nýir tímar séu í nánd eru þau að
fjármálin taka jákvæðari stefnu. Tímabil óstöðugleika og
ístöðuleysis er að líða undir lok. Að vísu eru óútreiknanlegir
tímar í vændum af og til á þessu ári en fjármálastaðan fer að
verða traust og stöðug í lok ársins eða snemma árið 1995.
Heimilið og fjölskyldan koma líka mun sterkar inn f mynd-
ina en þau hafa gert megnið af tólf ára tímabilinu sem senn
lýkur. Ahrif Satúrnusar styrkja stöðu þína varðandi fjölskyldu-
málin. Þú kemur t.d. til með að eyða minna í munað en áður
og þótt þú sért óbcislað náttúrubarn að eðlisfari ferðu nú æ
meira að treysta persónulegar rætur þínar. Þetta verður því ár
einhvers konar millibilsástands og þú ferð smám saman að átta
þig á því að stöðugleiki hentar þér, þrátl fyrir allt, ágætlega.
ÁSTAMÁL GIFTRA:
Maki þinn gæti tekið eflir greinilegri breytingu á þér á árinu
þar sem íhygli þín fer vaxandi. Þótt óbeisluð náttúra þín geti
ekki alveg horfið ferðu smám saman að meta einvcru meira en
áður. Hvort sem þú gerir þér grein fyrir því eða ekki, ertu að
undirbúa nýtt æviskeið og hugsanir þínar beinast æ rneira inn á
við. Þú ferð í vaxandi mæli að endurmeta stöðu nútíðar og for-
52 VIKAN