Vikan - 20.12.1995, Síða 60
KVIKMYNDIR
KAMMANNUGUR
þarf aö geta borgað fyrir
börn og buru, það er svo
einfalt. Ég gerðist leikari til
að geta séð fyrir mér og það
hefur mér sem betur fer tek-
ist. „
Pierce Brosnan hefur leik-
ið í fjölda mynda, m.a. Mrs
Doubtfire á móti Robin Willi-
ams og Sally Fields, Robin-
son Crusoe fyrir ameríska
sjónvarpsstöð og svo lék
hann aðalhlutverkið í sjón-
varpsseríu, sem nefnist
Remington Steele, en um-
sjónarmenn þess þáttar neit-
uðu að gefa honum eftir
samninginn þegar honum
hafði boðist hlutverk í
Goldeneye, nýjustu
Bond myndinni. Þeim
var ekki stætt á því og
Brosnan fékk að
spreyta sig á hlut-
verkinu og við mun-
um sjá útkomuna í
desember en Golden-
eye er spáð því að
verða jólasmellurinn í
ár.
Það er ekki nóg að vera
góður leikari í hlutverki
Bond heldur þarf leikarinn að
vera bæði myndarlegur og
kynþokkafullur. Brosnan
segist núna vera reynslunni
ríkari og geta tekist á við
hvaða hlutverk sem er.
Það er kaldhæðnislegt að
hlutverk James Bond tengir
Pierce Brosnan við mestu
sorg lífs hans en það var
ótímabær dauði Cassöndru
FRH. Á NÆSTU OPNU.
Þeir eru meöal kynþokkafyllstu leikara á
hvíta tjaldinu, annar í hlutverki James
Bond og hinn dularfullur Spánverji sem
skaust upp á stjörnuhimininn í Mambo
Kings fyrir rúmum þremur árum.
„GÓÐIR GÆJAR
FÁLÍKA
TÆKIFÆRI!"
SEGJA FJÖLMIÐLARNIR
UM PIERCE BROSNAN
Pierce Brosnan er hinn
nýi James Bond. Það
er engum blöðum um
það að fletta að hann hefur
útlitið með sér en þær sögur
fara af honum að hann sé
líka einstaklega mikið Ijúf-
menni. Brosnan er 42 ára
gamall og er írskur að upp-
runa. Hann var upprtefndur
Boracic þegar hann var í
listaskóla en orðið þýðir sá
blanki. „Það var svo undar-
legt að Pierce tókst alltaf að
vera glæsilegur þótt allir
vissu að hann væri skít-
blankur," segir meðstúdent
hans. „Hann hefur alltaf haft
mjög ákveðinn stíl en hann
er og var alltaf svo glæsileg-
ur að kannski skipti ekki svo
miklu máli hverju hann
klæddist." Brosnan dæsir og
segir að útlit hans hafi á
stundum verið honum til traf-
ala. „Fólk segir stundum að
ég sé of myndarlegur sem er
gjörsamlega óþolandi fyrir
mig,“ segir hann. „Ég er bara
venjulegur leikari sem er að
reyna að vinna fyrir mér.“
Pierce Brosnan er fæddur
á írlandi en flutti 11 ára gam-
all til London. Um tvítugt inn-
ritaðist hann i leiklistarskóla
þar sem hann fékk alltaf
bestu umsögn. Fljótlega
kom i Ijós að Brosnan var
leiðtoginn meðal nemend-
anna og tók námið mjög al-
varlega. Hann segir sjálfur
að enskir og írskir leikarar
séu yfirleitt mjög jarðbundnir.
„Ég vakna ekki á morgnana
með þá hugsun í kollinum að
ég sé þetta eða hitt heldur
hugsa ég frekar um það
hvort ég fái nóg að gera í
leiklistinni í framtíðinni. Ég
60 VIKAN 12. TBL. 1995