Vikan - 20.08.1998, Síða 4
Fax: 515 5599
Stjórnarformaður
Magnús Hreggviðsson
Aðalritstjóri
Steinar J. Lúðviksson
Simi: 515 5515
Framkvæmdarstjóri
Halldóra Viktorsdóttir
Simi: 515 5512
Ritstjóri
Sigríður Arnardóttir
Simi: 515 5582
Vikan@frodi.is
Ritstjórafulltrúi
Anna Kristine Magnúsdóttir
Simi: 515 5637
Anna@frodi.is
Blaðamaður
Þórunn Stefánsdóttir
Simi: 515 5653
Thorunn@frodi.is
Auglýsingastjóri
Björg Þórðardóttir
Simi: 515 5628
Vikanaugl@frodi.is
Ljósmyndarar
Bragi Þór Jósefsson
Gisli Egill Hrafnsson
Sigurjón Ragnar Sigurjónsson
Gunnar Gunnarsson
Hreinn Hreinsson
Grafiskir hönnuðir
Ivan Burkni Ivansson
Ómar Örn Sigurðsson
Verð í lausasölu
Kr. 399,-.
Verð i áskrift
Kr. 329,-. Pr eintak
Ef greitt er með greiðslukorti
Kr. 297,-. Pr eintak
Unnið í Prentsmiðjunni Odda
hf.
Öll réttindi áskilin varðandi efni
og myndir
Simsvari Vikunnar
S: 515 5690
Tekið er við upplýsingum og
hugmyndum um efni allan
sólarhringinn.
Vinsamlegast látið nafn og
símanúmer fylgja erindinu.
Áskriftarsími:
515 5555
te&anclv...
Síðari hluti sumars var ótrúlega góður
tími. Veðurguðirnir léku við okkur víð-
ast hvar og Menningarnóttin í Reykja-
vík og Reykjavíkurmaraþonið heppn-
uðust svo vel að líktist meira auglýs-
ingamynd um fyrirmyndarborg heldur
en raunverulegri helgi á haustdögum.
Berjasprettan hefur líka verið góð, svo
væntanlega munu margir geta nýtt sér
himnesku bláberjauppskriftirnar sem birtust í síðustu Viku. Fréttir berast reglulega af
lágri verðbólgu og litlu atvinnuleysi. Og hjá Kára Stefáns eru „krakkarnir”, eins og
hann kallar ungu vísindamennina, að ná árangri sem gefur von um betri tíð í barátt-
unni við ýmsa sjúkdóma. Hvílíkir tímar! Þetta var ég að hugsa í síðsumarsólinni um
daginn og fékk svo sterklega á tilfinninguna að nú væri verið að reyna okkur. Ytri skil-
yrði eru góð - en hvernig stöndum við okkur svo sem einstaklingar? Það er eins og
æðri máttarvöld séu að segja, sko nú eru ytri aðstæður góðar, sól á lofti og fiskur í sjón-
um. Hvernig reynist þið svo sem manneskjur? Við svona aðstæður eigum við að reyn-
ast okkar nánustu vel og ekki síður þeim sem minna mega sín. Það berast nefnilega
líka fréttir af því að þúsundir manna hér á landi flokkist undir það að vera fátækir. Við
þurfum að líta í kringum okkur og gefa af sjálfum okkur. Ég veit hvar ég þarf að byrja.
En þú?
I þessari Viku eru sögur af fólki sem sýnir á sér nýjar hliðar. Herra Garðar (bls.6)
seldi þekkta verslun sína og ferðast nú urn fjöll og firnindi sem landvörður í afleysing-
um. Hann nýtur þess að breyta til og hefja nýtt líf. í persónuleikaprófinu (bls. 26) er
leitast við að svara þeirri spurningu hvort maður sé tilbúinn að segja skilið við allt og
byrja upp á nýtt. Þetta er auðvitað til gamans gert - njóttu vel. Fleiri sýna á sér óvænt-
ar hliðar: Halldór Blöndal ráðherra horfir á rómantískar myndir og yrkir ástarljóð,
Margrét Pálmadóttir söngkona er óviðjafnanlegur kokkur og töfrar ekki bara fram
ítalska tóna heldur líka ítalska rétti. Og Margrét Frímannsdóttir siglir um á kajak eftir
annasaman dag í stjórnmálabaráttunni. Margbreytileiki lífsins endurspeglast í Vik-
unni!
Njóttu Vikunnar
Sigríður Arnardóttir ritstjóri
Ivan burkni
útlitsteiknari
Ómar Örn
útlitsteiknari
Anna Kristine
Magnúsdóttir
ritstjóraf ulltrúi
Þórunn
Stefánsdóttir
blaðamaður
Björg
Þórðardóttir
auglýsingastjóri