Vikan


Vikan - 20.08.1998, Side 19

Vikan - 20.08.1998, Side 19
Vinnið Glæsilegir íslenskir listmunir í verðlaun. Kertastjakarnir eru eftir listakonuna Ingu Elínu og fást í Gallerí Fold í Kringlunni sem er sérverslun með íslenska listmuni. Stjakarnir eru úr steinleir og munstrið þrykkt á með tréstimplum, auk þess sem þeir skarta ekta innbrenndri gyllingu. Þrír heppnir lesendur Vikunnar geta eignast þessa glæsilegu kertastjaka með því að svara eftirfarandi spurningum rétt: i ; 1. Er Gallerí Fold indverskur veitingastaður í Kringlunni ? 2. Hver er áskriftarsími Vikunnar ? Sendið svörin fyrir 22. september '98 Utanáskriftin er: "Vinnið", Vikan, Seljavegi 2, 101 Reykjavík KRINGWN frá morgni til kvölds Hlöldur Vikunnar Tveir sextán ára í Grafarvogi skrifa: „Við viljum fá að nöldra yfir þáttum á útvarpsstöðvum þar sem hlustendum er boðið upp á óskalög sem koma svo aldrei. Við vinirnir vorum að mála einn sunnudaginn og þá var einhver maður á einni útvarpsstöðinni að bjóðast til að spila óskalög og gaf upp símanúmer. Við hringdum og báðum um lag og hann sagðist ætla að spila það. Klukkutíma síðar var lagið ekki komið enn og þá hringdum við aftur og báðum um sama lag. Maður- inn sagðist ætla að spila það. Lagið kom aldrei og við vorum með útvarpið stillt á sömu stöðina frá klukkan 17-23 þetta kvöld. Hins vegar komu sum lög aftur og aftur og við töldum að minnsta kosti sex lög sem voru spiluð tvisvar eða oftar. Okkur langar að vita hvort dagskrárgerðarmenn á stöðvunum séu bara að spila eftirlætislögin sír og af hverju sé þá verið að bjóða upp á óskalagasíma”. Þarsem ekki er tekiö fram hver útvarpsstöðin er, gefur Vikan dagskrárgerðarmönnum allra stöðva hér með fœri á að svara þessu nöldri! Hins vegar tökum við undir það að auðvitað eiga dagskrár- gerðarmenn að virða óskirþeirra sem hringja inn, ef útvarps- stöðin er á annað borð að bjóða upp á þessa þjónustu. Ef lagið sem beðið er um er ekki til, eða passar ekki inn í þátt- inn eiga dagskrárgerðarmenn auðvitað að segja hlustendum það; ekki láta þá bíða tímunum saman við tœkið! Vinningshafar í krossgátu 7. tölublaðs: Brynja Bergsveinsdóttir, Litlagerði 9, 860 Hvolsveili Jóna Böðvarsdóttir, Strandgötu 17 a, 450 Patreksfirði Bjargmundur Haíldórssson, Krummahólum 8, 111 Reykjavík Jóna Friðfinnsdóttir, Funafold 53, 112 Reykjavík Erla Ingvarsdóttir, Hafnargötu 71, 230 Keflavík Vinnið! Þeir sem hlutu 10 þúsund króna gjafakort í Kringlunni: Sigrún Ólafsdóttir, Esjubraut 35, 300 Akranesi Stella Sigvaldadóttir, Hringbraut 119, 101 Reykjavík Sigríður K. Guðmundsdóttir Gilsá, Eyjafjarðarsveit

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.