Vikan


Vikan - 03.09.1998, Blaðsíða 10

Vikan - 03.09.1998, Blaðsíða 10
 Einnig voru nefndir: FRÆCIR FYRIR FALLEGA FRAKKONU! Einnig voru nefndir: Hörður Karlsson leigubilstjóri: „Fer létt með að breyta veðrinu, ef því er að skipta". fólk með Ijúfri framkomu sinni. Hann er mik- ið snyrtimenni og punkturinn yfir i-ið er hversu góður dansari hann er." einstakri kostgæfni og umlykja þá persónu- töfrum sínum." Arnar Jónsson leikari: „Verður flottari með hverju árinu sem líður. Hefur ótrúlega mikla út- geislun svo maður tali ekki um röddina sem hittir mann beint í hjartastað." Axel Hallkell Jóhannesson leikmyndasmið- ur: „Hann er einn af þessum mönnum sem eru rólegir og yfirvegaðir. Hann hefur alveg ein- staklega Ijúfa og þaegilega nærveru og ekki sakar blikið í augunum." Jón Eyjólfur Jónsson öldrunarlæknir: „Hann er prúður og virðulegur, kann sitt fag og leggur mikla rækt við útlit sitt." Þór Sigurgeirsson sölumaður hjá fslensk Ameríska: „Hann hefur svo heillandi fram- komu að konum, hvort sem þær eru f imm ára eða sjötíu og fimm ára, finnst þær vera álfa- prinsessur í návist hans." Þorvaldur Þorsteinsson rithöfundur og myndlistarmaður: „Einn af þessum dular- fullu mönnum. Hann kemur manni alltaf jafn mikið á óvart þegar maður fær að skyggnast inn í þá heima sem hann upplifir og sýnir okk- ur við og við. Þeir eru ótrúlega spennandi." Helgi Óttarr Ingibjargarson: „Lítill töframaður sem fær konur til að gera hvað sem er, hvenær sem er." Örn Guðmundsson danskennari og f ram- kvæmdastjóri Listdansskóla fslands: „Hann haggast aldrei og hefur góð áhrif á Lárus Wöhler sölumaður hjá Honda-um- boðinu: „Lárus er einn af þeim mönnum sem kunna að meðhöndla viðskiptavini sína af Valdimar Þengilsson 11 ára: „Maður fær í hnén. Hann á eftir ða verða flottur." Álitsgjafar: Helga Sigrún Harðardóttir, dagskrárstjóri Gull 909 Sunna Borg, leikkona Unnur Arngrímsdóttir, danskennari Valgerður Matthíasdóttir, dagskrárgerðarmaður á Stöð 2 Vikan Hvað er það sem ger- ir menn aðlaðandi? Hvaða menn eru það sem geta með framkom- unni einni saman breytt rign- ingu í sól? Við fengum nokkra álitsgjafa til þess að velta fyrir sér þessum spurn- ingum. Bold: Helga Sigrún Harð- ardóttir: Karlmennirnir sem ég valdi eiga það sameiginlegt að vera einlægir í samskiptum við aðra, hafa einstaklega heillandi framkomu, heilla fólk í kringum sig og þá sem þeir hitta. Þeir eru þessir traustu strákar sem maður veit hvar maður hefur og reyna ekkert að vera annað en þeir eru. Þeir dáleiða mann nánast með hugguleg- heitum og maður getur alltaf gengið að því vísu að líða vel í návist þeirra. Bold: Unnur Arngríms- dóttir: Að mínu mati er það fram- koman sem skiptir öllu máli. Aðlaðandi karlmaður er prúður, ekki framhleypinn og hrokafullur. Oft er það svo að þegar maður hittir karlmann sem ekki hefur út- litið með sér, þá kemur í ljós við nánari kynni að hann er heillandi persóna. Þar skipta greind og ^ persónutöfrar mestu máli. Ég heillast mest af karlmönnum sem bera virðingu fyrir konum og sýna það með tillitssemi í allri framkomu. I raun og veru skiptir útlitið minnstu máli. Bold: Valgerður Matthías- dóttir: Það er erfitt að benda á eitthvað eitt sérstakt sem gerir karlmann aðlaðandi. Það er yfirleitt sambland af mörgum eiginleikum sem þurfa að vera til staðar. Innri maðurinn finnst mér mest um verður. Ef til vill má segja að af mörgum eigin- leikum sé sá mikilvægasti að viðkomandi hafi húmor fyr- ir sjálfum sér og umhverf- inu. Það finnst mér ómetan- legur eiginleiki. Töskur í tísku - tíska í töskum Texti: Lízella Myndir: Sigurjón Ragnar Tískuheimurinn var ekki lengi að taka við sér þegar Vogue tilkynnti fyrr á þessu ári að handtöskuæði væri hafið. íslendingar eru ekki eftirbátar Parísar- og Lundúnabúa hvað þetta varðar frekar en fyrri daginn og þess vegna ætlar Vikan að stytta þér leið að réttu handtöskunni fyrir þig: 1) Ferragamo veski úr svörtu leðri; þau gerast vart klassískari en þetta! (Veski: Leonard) 2) Litadýrðin frá Guess hressir upp á drungalegt haustið. Hér er skærblátt veski úr vinýl fyrir þá sem vilja láta taka eftir sér. (Veski: Leonard) 3) Stórglæsileg, drapplituð taska fyrir nútímakonuna frá Cealic í Frakklandi. Takið eftir handfang- inu. (Taska: Drangey) 4) Það er liðin tíð að djörf veski eigi bara heima í skemmtanalíf- inu. Þessi taska á heima alls stað- ar, hvortsem erívinnunni, á kaffi- húsinu eða í matarboði. (Taska: Accessorize) 5) Silfurgrár bakpoki sem uppfyll- ir öll skilyrði Mary Poppins-tösku; þar er hægt að koma öllu fyrir svo lítið beri á og bakpokinn sjálfur er glæsilegur fylgihlutur. (Bakpoki: Accessorize) 6) Svört Daniel Ray taska sem passar við hvað sem er og hvenær sem er. Hún er úr næloni sem lifir meira að segja af íslenskan vetur! (Taska: Tösku- og hanskabúðin)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.