Vikan - 03.09.1998, Blaðsíða 44
Háttvísi
Rómur CMS hlátur
Ekki tala of mikið!
Samantekt: Anna Kristine Magnúsdóttir Myndir úrTízku bókinni
Tímarnir breytast
og mennirnir með
- en eru þær
breytingar endi-
lega alltaf af hinu góða?
Getur ekki verið best að
halda einfaldar lífsreglur
þótt þær séu komnar til
ára sinna? Við flettum
upp í um hálfrar aldar
gamalli bók, Tízkubók-
inni, eftir Mary Young;
bók, sem margar ungar
konur á fimmta áratugn-
um nýttu sér. Kannski
geta nútímakonur lært
eitthvað af þessum kafla
úr bókinni...
að flissa
Þetta er mjög óskemmtilegt,
bæði fyrir yður sjálfa og aðra. I
rauninni telja margir það
ókurteisi. Þér vitið það af
reynslu, að því oftar, sem þér
leyfið yður það, því meiri tök-
um virðist það ná á yður. Ef
mögulegt er, ættuð þér að
ganga á brott og dveljast ein-
hvers staðar í einrúmi á meðan
þér eruð að jafna yður. Og skil-
yrðislaust verðið þér að ganga
á brott frá þeirri persónu, sem
er yður samsek í að flissa.
að hvísla
Þetta er ósmekklegt, hvernig
sem á það er litið. Þér eigið á
hættu að verða talin ókurteis,
leiðinleg eða jafnvel illgjörn.
Verst af öllu er að hvísla með
lófann fyrir trekt.
að tala of mikið
Þetta er oft talinn vera mjög
kvenlegur löstur, enda þótt við
getum sagt það „svona okkar á
milli“ að karlmennirnir eru
engu betri. Eitt sinn starfaði ég
með manni, sem viðurkenndi
það, að hann væri iðulega
haldinn „munnræpu“. - Það er
heilnæmt fyrir yður að spyrja
sjálfa yður, hvort það, sem þér
eruð að segja...
a) sé raunverulega umtals-
vert
b) geti, ef til vill, vakið
áhuga annarra
c) sé, ef til vill, öðrum til
leiðinda
d) mætti segja í styttra máli,
gagnorðar og greinilegar
að tala of hátt
Þetta getur verið ókvenlegt,
uppskafningslegt og ónær-
gætnislegt.
að nota skrílmál og bölva
Þetta er ekki síður ókven-
legt og mjög ógeðfellt. Meira
að segja getur verið að sumir
líti á það sem „fordild“.
óþolandi í „sambúð“
Svarrandi rómur Hræðilega
tilbreytingalaus rödd Skrækur
rómur Tuldrandi rödd Óbein
svör við spurningum Lang-
lokusvör við spurningum,
með svarið aftast í ræðunni
Skyndileg, hávær hróp Snögg
hlátrasköll Að tala við fólk
innan úr öðru herbergi Að
tala við fólk á meðan þér
hraðið yður á brott
Samtals ,Jorskrift“
Gerið yður far um að beina
rödd yðar í átt til þess eða
þeirra, sem þér eruð að ræða
við. Þegar þér eruð í samræð-
um, verðið þér að leyfa við-
mælendum yðar að ljúka setn-
ingu, áður en þér hefjið máls.
Yfirleitt verið þér að reyna að
Það getur verið ókvenlegt og
uppskafningslegt að tala of hátt.
Þér verðið að ganga á brott frá
þeirri persónu sem er yður sam-
sek í að flissa.
halda yður við umræðuefnið,
þ.e. gerið yður ekki seka um
að „ganga algjörlega framhjá"
því málefni sem við yður er
rætt, til þess að geta komið að
einhverju, sem þér hafið beð-
ið óþreyjufull með að
segja.Gætið þess vel að þér
fáið áheyrn, þegar, eða á
meðan þér talið. Ég á við
þetta: ekki koma stikandi inn
í stofu, romsandi upp sex til
sjö setningum, án tillits til
þess hvort sá aðili, sem þér
eruð að ávarpa, er ef til vill að
einbeita sér að einhverju öðru
(eins og að sinna bréfaskrift-
um eða að tala í síma). Þá ger-
ist aðeins það, að viðkomandi
persóna biður yður að endur-
taka það sem þér sögðuð. ■
44