Vikan - 17.09.1998, Side 10
r
USTINAÐ VERA
Margir vita ekkert
hvað varð af tíma
þeirra. Þeir eru að
allan daginn og þegar dagur
er að kvöldi kominn bíður
enn eitthvað af þeim verkefn-
um sem átti að ljúka.
Að loknum löngum vinnu-
degi spyr margur sjálfan sig:
Hvað varð af öllum þessum
klukkustundum? Hvað er ég
búinn að vera að gera í allan
dag?
Eina leiðin til að komast að
því er að skrifa niður hvað þú
gerðir. Það kemur ýmislegt
markvert í ljós ef maður skrif-
ar allt sem maður gerir. Mjög
margir komast að því að allt
of mikill tími fer í að koma sér
að verki og skipuleggja verk-
efnin. Aðrir hafa notað of
mikinn tíma til að aðstoða
aðra við þeirra verk. Þá fer oft
mikill tími í að leita að hjálp-
argögnum og upplýsingum til
að geta haldið áfram verki
sem hætt hefur verið við áður
en það kláraðist.
Skipulag
Þess vegna er svo mikilvægt
að skipuleggja það sem gera
þarf. Taktu alltaf eina viku í
senn og dreifðu verkefnunum.
Það skiptir máli að vera sann-
gjarn við sjálfa(n) sig og gefa
sér nægan tíma fyrir hvert
verkefni, en það þarf líka að
vera harður á því að ljúka
þeim á tilætluðum tíma.
Rannsóknir hafa sýnt að 90
mínútur eru hæfilegur tími við
sama verkefnið fyrir venjulegt
fólk. Athygli og einbeiting
manna er óskipt í 90 mínútur
við hvert nýtt verkefni, eftir
það fer einbeitingin að dofna
og þá er best að snúa sér að
öðrum verkefnum. Reyndu
því að skipuleggja daginn í 90
mínútna einingum ef það er
hægt, þannig nærð þú bestri
nýtingu á tíma þínum og
kröftum.
Vertu ákveðin(n)
Það reynist mörgum erfitt að
halda sig við áætlunina fyrstu
vikurnar, en það hefst ef hug-
ur fylgir máli. Slökktu hik-
laust á símanum ef hann er að
eyðileggja skipulagið fyrir
þér, sýndu sjálfum þér og
samstarfsmönnum þínum
hörku ef verið er að reyna að
leiða þig burt frá verkefnun-
um. Segðu hreinlega: "Nei,
ég verð að ljúka þessu fyrst,
ég tala við þig seinna." Láttu
taka skilaboð ef þú hefur að-
stöðu til þess. Það er öllum
fyrir bestu að þú náir tökum á
skipulaginu sem fyrst.
Búðu til stundaskrá
Þegar þú sérð hvernig tíma
þínum er best varið (það tek-
ur venjulega ekki nema tvær
til þrjár vikur) þá skalt þú búa
til stundaskrá yfir fasta liði í
verkum þínum. Þegar það er á
hreinu er auðvelt að skipu-
leggja tilfallandi verkefni.
Með því að hafa fasta stunda-
skrá veist þú alltaf hvenær þú
getur lofað þér í viss verkefni
og hvenær þú hefur mesta
Skipuleggðu tíma þinn
Símar, fundir, pappírar, stefnumót, húsverk.
Hlutir sem átti að gera í gaer. Ertu einfn) af
þeim sem hafa of mikið að gera og tíminn
rennur milli fingra þér eins og sandur? Þá
er eins gott að byrja að skipuleggja. Þannig
nærðu tökum á tímanum og andleg líðan
þín batnar til muna.
orku aflögu. Áður en þú veist
af hefur þú fulla stjórn á tíma
þínum, þú getur afkastað
meiru og tekur ekki að þér
meira en þú ræður við með
góðu móti.
10
V.