Vikan - 17.09.1998, Blaðsíða 20
Notið sumarblómakörfuna
fyrír inniblómin á veturna
Blómakarfan úr garbinum eba af svölunum komin inn til vetrardvalar. Burkninn þarf töluverba birtu yfir
veturinn þótt hann megi ekki standa á allt of björtum stab yfir sumarib. Beinviburinn og siöngunetib
eru aubveld í mebförum. Chrysanthemum plantan lifir ekki af veturinn, ab minnsta kosti ekki blóm-
strandi, en vib getum sett abra plöntu í hennar stab um leib og nýjar, blómstrandi plöntur koma á
markabinn. Þab voru þær Helga Thorberg og Kristín Bára Gunnarsdóttir í Blómálfinum á Vesturgötu
sem skreyttu fyrir okkur körfuna. [Ljósmynd: Bragi Þór Jósefsson).
Nú er ekki ástæða til að
hafa blómakörfurnar og -
kerin lengur úti í garði.
Óhjákvæmilegt er annað
en að taka inn þessi ílát,
að minnsta kosti þau
þeirra sem ekki þola að
standa úti allan veturinn.
Venjulega stingum við
þessu garðdóti í geymsl-
una með sólhúsgögnun-
um og sláttuvélinni en
hvers vegna ekki að nota
þetta til skrauts innan-
dyra í vetur? ,, Til hvers
væri það, ” spyr nú áreið-
anlega einhver ,,og
hvernig er hægt að nota
þetta ,, útidót" svo vel
fari innan dyra?"
Jú, ekkert er einfaldara.
Það má koma pottablóm-
um fyrir í blómaílátunum
og leyfa þeim þannig að halda
áfram að þjóna hlutverki sínu
í stað þess að láta þau rykfalla
uppi á hillu eða úti í horni
geymslunnar. Venjulega eru
þessi útiílát nokkuð stór og
geta því farið vel á göngum
eða á stigapöllum. Þeir, sem
búa í fjölbýlishúsi, gætu hresst
upp á sameignina með því að
koma fallegri blómakörfu fyr-
ir á stigapallinum, ekki síst
þar sem birta er góð og plönt-
ur eiga gott með að lifa af vet-
urinn. Stigapallar í fjölbýlis-
húsum eru nefnilega ákjósan-
legir staðir fyrir blómin okkar
á veturna. Þar er oftast næg
birta og einnig nokkuð svalt,
að minnsta kosti miðað við
það sem er inni í íbúðunum.
í blóma allt árið
Hér sýnum við ykkur blóma-
körfu sem notuð var undir
sumarblóm úti í garði í sumar.
Hún hefur verið fyllt af
gróskumiklum pottablómum.
Gott er að byrja á því að setja
plast, innan í körfuna svona
rétt til að koma í veg fyrir að
vatn renni niður á gólf ef okk-
ur skyldi verða á að vökva
svolítið rösklega. Auðvitað
verður þar að auki að hafa
skálar undir pottunum eða
pottahlífar utan um þá svo
minni hætta sé á að vatn fari út
um allt þegar við vökvum.
Ekki er ólíklegt að þið eigið
eitthvað af pottablómum sem
þið gætuð sett í körfuna en
síðan má fara og kaupa sér
blómstrandi pottablóm til
þess að lífga upp á útlitið. í
körfunni er burkni, afbrigði af
beinviði og loks slöngunet.
Upp úr stendur svo blóm-
strandi chrysanthemum planta.
Hún á auðvitað ekki eftir að
standa í blóma í körfunni í all-
an vetur. Aður en langt líður
myndum við geta skipt henni
út fyrir jólastjörnu. Eftir ára-
mótin kæmi svo röðin að
alparósinni og með vorinu
væri hægt að fjárfesta í hor-
tensíu. Þá værum við búin að
vera með blómstrandi blóma-
körfu allan veturinn og aftur
væri komið vor og tími til að
flytja körfuna út í garð eða út
á svalir og fylla hana af sumar-
blómum.
20