Vikan


Vikan - 17.09.1998, Side 23

Vikan - 17.09.1998, Side 23
Allir vilja lifa góðu lífi en leiðirnar til að öðlast það eru misjafnar hjá ólíku fólki. Það er þó eitt frumskilyrði sem verður að vera í lagi til þess að maður geti orðið ham- ingjusamur, en það er AÐ VERA SÁTTUR VIÐ SJÁLFAN SIG. Hér á eftir fara nokkrar æfingar sem stuðla að því að sættast við sjálfa sig. Þú þarft ekki að hreyfa þig, aðeins að hugsa þig í gegnum þær reglulega. Veldu kafla um þann eiginleika sem þú telur standa í vegi fyrir hamingju þinni og farðu eftir leiðbeiningun- um. Reynslan hefur sýnt að þær hjálpa. Hugmyndirnar eru byggðar á bókinni “A mind of your own” eftir Betty Shine og könnun tveggja breskra félags- fræðinga á viðbrögðum kvenna við íhugun. er viðvarandi um langt skeið ættir þú að leita læknis. En þreyta getur líka stafað af andlegum orsökum og á því má ráða bót sjálfur. Þú get- ur læknað þreyttan huga þinn með íhugun og sálaræfingum og allir dagdraumar hafa sterk- an lækningamátt fyrir þreyttan huga. Hér er æfing sem hjálpað hefur mjög mörgum í gegnum tíðina ímyndaðu þér þetta: Þú situr á svölum og horfir út yfir hafið. Þú heyrir öldurnar gjálfra við ströndina og þægileg hlý golan leikur við hör- und þitt. Þú ert algerlega afslöppuð og hugur þinn tómur. Þér finnst þú næstum svífa í lausu lofti og þú finnur fyrir óend- anleikanum í nálægð við þig. Þá vaknar þú og öll þín vandamál eru horfin. Þessi æfing þarfnast dag- legrar endurtekningar, en hún hefur mjög sterk- an lækningarmátt. Mundu- dagdraumar eru lækning fyrir hugann. Biturð Það er erfitt að lifa með biturðinni. Þegar biturð- in ræðst inn í huga þinn setjast leiðar minningar að og grafa um sig hvort sem þær eru á rökum reistar eða ekki. Losaðu þig við þær! Reyndu þessa aðferð: í hvert skipti sem slæmar minn- ingar sækja að þér skaltu skrifa þær á blað. Hættu ekki að skrifa fyrr en þú ert búin að losa þig við þær allar.. Geymdu blaðið - en ekki lesa það. Gerðu það sama næst þegar þér líður illa. Þeg- ar þér finnst orðið nokk- uð langt síðan þessir draugar ásóttu þig skaltu ná þér í blikkfötu eða annað eldfast ílát og kveikja í bréfunum- án þess að lesa þau. Og ef óþægilegu minningarnar gera vart við sig aftur þá endur- tekur þú þetta, eins oft og þarf. ímyndaðu þér þetta: Þú er úti í móa og heyrir undurfagra tónlist sem hljómar í huga þínum. Þú stendur upp og ferð að at- huga hvaðan tónlistin kemur en hljómarnir verða veikari og veikari. Þá heyrir þú rödd segja: “Þú heyrir ekki tón- listina vel fyrr en þú hefur þurrkað biturðina úr huga þér “ Mundu - biturð sýkir hug- ann. Grátur Grátur er heilsubætandi. Þrátt fyrir það óttast margir grátinn og láta hann draga sig niður í hryggð og vonleysi. Það er sama hvort ástæðan fyrir grátinum er sorg, þreyta eða bara þínir eigin hugarór- ar,- gráturinn er sálarþvottur. ímyndaðu þér þetta: Það er heitt og þurrt í veðri og þú ert stödd í vel upp- grónu þorpi eða borg. Trén við þurra og rykuga malargötuna eru grá og bog- in og blómhnapparnir eru óhreinir og óútsprungnir. Skyndilega heyrir þú þrumu í fjarska og stórir þungir regndropar falla til jarðar. Regnið steypist yfir jörðina sem lifnar og grær. Trén rétta úr sér, blómin springa út og skærir sumarlitirnir spretta fram úr grámanum. Þú opnar augun og þér líður eins og þú hafir hlotið hreinsun að ofan. Mundu - gráturinn er hreinsun sálarinnar Ofbeldi Enginn hefur unnið til þess að hann sé beittur ofbeldi eða honum misþyrmt. Þú mátt aldrei sætta þig við slíkt. tmyndaðu þér þetta: Þú ert vitni að því að sú manneskja, sem þér þykir vænst um í heiminum mis- þyrmir einhverjum öðrum. Hann (hún) afsakar sig með því að hann þoli ekki að þessi manneskja ergi hann - af því að hann elski hana. Þú segir þessum besta ást- vini þínum að ást afsaki ekki ofbeldi og ef hann wnokkurn tímann geri þetta aftur sé sambandi ykkar og vinskap lokið að eilífu. Og þú veist að þú munt standa við það þrátt fyrir að ákvörðun þín hafi ver- ið erfið. Mundu - ofbeldi er aldrei af- sakanlegt. Einvera Allir þarfnast einveru til að endurnýja þrótt sinn. Sumir fyllast samviskubiti vegna þessarar þarfar, sérstaklega þeir sem þarfnast hennar mest. Segðu fjölskyldunni frá þessari þörf og farðu þess á leit að þú fáir að njóta einveru að minnsta kosti hálftíma á dag. Notaðu þennan hálftíma vel til dagdrauma, hugsunar, skrifta eða annars sem ekki krefst líkamlegrar hreyfingar. Haltu huga þínum vakandi. ímyndaðu þér þetta: Eftir erfiðan og annasaman dag vaknar þú með tannpínu. Þú ferð á fætur og leitar að verkjatöflum sem þú finnur. Þú sest í þægilegan stól og finnur þegar tannpínan minnkar og hverfur að lokum alveg. Þú finnur allt í einu að þú ert ein og að þér líður mjög vel. Það er friður og sælutil- finning í huga þínum og þú veist að þessi stund er þitt leyndarmál. Þú veist líka að þessa líðan getur þú framkall- að á hverri nóttu. Mundu - þú getur ef þú vilt. Texti: Jóhanna Harðardóttir Mynd: Gunnar Gunnarsson 23

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.