Vikan


Vikan - 17.09.1998, Blaðsíða 41

Vikan - 17.09.1998, Blaðsíða 41
Eins og allir vita hafa margir frægir popparar og aðrir tón- listarmenn fyrst litið dagsins ljós á írlandi og nægir þar að þar nefna Dubliners og U2 sem öll heimsbyggðin þekkir. Hljómsveitin tók upp sína fyrstu plötu í hljóðveri sem heitir Windmill Lane. Þeir eru ófáir ferðalangarnir sem gera sér ferð að hljóðverinu og skrifa skilaboð á veggina fyrir utan. Skilaboðin koma frá öll- um heimshornum og eru mörg og mismunandi. Joe skrifar: „U2, þið hafið breytt lífi mínu, þakka ykkur fyrir,“ og annar heimspekingur hefur skrifað: „Stríð er eins og pizza; skilur alls staðar eftir sig rauða bletti“. VÍN OG AÐRAR VEIGAR Áhugamenn um dýrar veigar ættu ekki að láta hjá líða að heimsækja Old Jameson Distillery, brugghúsið sem framleiðir hið fræga Jameson víski. írska vískíið á rætur sín- ar að rekja allt aftur til ó.ald- ar. Í safninu er ferðast í gegn- um framleiðsluferlið í fylgd leiðsögumanns og í lokin eru nokkrir gestanna fengnir til þess að smakka mismunandi tegundir og er galdurinn sá að þekkja úr hið eina sanna viskíbragð; Jamesons bragðið. Safnið er skemmtilegt og sýn- ir á myndrænan hátt hvernig vinnan fór fram á árum áður þegar allt var meira og minna unnið í höndunum, áður en nútímavélar og tækni leystu mannfólkið af hólmi. Irar framleiða einnig Guinness bjórinn, eina frægustu bjór- tegund heimsbyggðarinnar. Guinness Hopstore er safn sem sýnir á sama hátt fram- leiðslu bjórsins sem hefur ver- ið bruggaður þar síðan 1759. Bjórinn er nú framleiddur um allan heim og nægir dagsfram- leiðslan til þess að fylla rúm- lega 10 milljónir bjórkolla á hverjum degi. Guinness fyrir- tækið er meðal annars þekkt fyrir skemmtilegar auglýsing- ar og í safninu má sjá margar þeirra bæði gamlar og nýjar. PÖBBARNIR í DUBLIN „Það væri óleysanleg þraut að ætla sér að ganga um Dublin án þess að rekast á pöbb,“ segir Leopold Bloom í hinni frægu skáldsögu James Joyce, Ulysses. Það sama á við um daginn í dag. í borginni eru 1.000 pöbbar og sá elsti, The Brazen Head, heldur upp á 800 hundruð ára afmælið nú í ár. Það sem kemur kannski helst á óvart er opnunartím- inn, pöbbunum er lokað um klukkan hálf ellefu á kvöldin. En þeir sem vilja halda áfram að skemmta sér geta um helg- ar fundið næturklúbba sem eru opnir frameftir nóttu. Það er gaman að eyða kvöldinu í litlu götunum í Temple Bar hverfinu. Þar er pöbb á hverju horni, stemmningin há- stemmd, allir eru í góðu skapi og syngja hástöfum með hljómsveitinni eða geislaspil- aranum. En þeir sem ekki nenna að sitja inni á pöbbum geta fund- ið ýmsa aðra skemmtun við hæfi. Því það er sama hvort sólin skín eða næturmyrkrið ráði ríkjum, alls staðar er hægt að rekast á eitthvað skemmti- legt í iðandi mannlífinu á göt- um borgarinnar. Fjölskrúðugt götulíf Veggurinn í Windmill Lane Auglýsingarnar frá Guinness sýna jákvæða mynd af bjór- drykkju; þeir sem drekka bjór verða stórir og sterkir 3l\MESO\ 3AMI:.SUiV
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.