Vikan - 17.09.1998, Blaðsíða 45
V Hutíla Guðmunclsdóttir Sendið bréfin til: „Kœra
félagsráðgjafi svarar Hu!da“ Vikan, Seljavegi 2
bréfum lesenda. 101 Reykjavík.
Fyllsta trúnaðar ergietl og bréf birt itndir dtilnefni. Nelfang: vikan@frodi.is
Leiðinlegur
saumaklúbbur
Kæra Hulda,
Við erum hérna tvær vinkon-
ur sem erum orðnar svo fúlar
út í saumaklúbbinn okkar. Við
erum búnar að vera í honum í
18 ár og oft hefur verið gam-
an. Núna er hins vegar einhver
stífni í hópnum, einhver met-
ingur og skrýtin stemmning.
Það er bara talað illa um fólk,
slúðrað um einhverja þekkta á
neikvæðum nótum. Svo er tal-
að um megrun og megrunar-
duft og ekkert annað! Við sitj-
um stundum og horfum hvor
á aðra hálf fúlar yfir umræð-
unni. Hvað eigum við að gera?
Draga okkur út úr hópnum
eða segja þeim hvað okkur
finnst og eiga á hættu að allt
fari í háaloft? Félagsskapur-
inn hefur skipt okkur máli en
nú er þetta orðið eins og ein-
hver keppni. Ættum við að
draga okkur út úr þessu?
Saumakonur
Kæru „saumakortur
Eftir 18 góð ár í sama sauma-
klúbbnum með skemmtilegri
samveru, menningarlegum
umrœðum, glensi og skoðana-
skiptum - sem er mikilvægur
þáttur í lífi ykkar og sumra
annarra, og tilhlökkunarefni -
þá gerast þau undur að þar
myndast stemmning metings
og stífiú og umræðurnar snú-
ast upp í illþolandi slúður og
illmœlgi um aðra og loks hið
örþreytta efiii: megrun. Og
enginn fær þessu stagli breytt
eða ráðið við neitt né skilið
hvað olli þessum furðulegu
breytingum. Móðgaði einhver
einhvern? Á einhver ein í
hópnum svo erfitt að hún læt-
ur biturðina bitna á hinum
sem ekki fá stöðvað hana?
Eða eru umrœðuefnin tæmd?
Varla. Er streita nútímans líka
komin til ykkar og farin að
valda hnignun og kulnun
(„burn-out"), sem kallar á ný
úrrœði?
Ég hygg að undirstöðutil-
gangur saumaklúbba sé ekki
alltafað fást við hannyrðirnar,
heldur að fá tœkifæri til að
hitta vinkonur sínar, rœkta
tengslin, fá nauðsynlega til-
breytingu frá heimili og vinnu-
stað, deila góðum hugðarefn-
um og e.t.v. stöku sinnum
áhyggjum, standa saman.
Fylla í eyður sem myndast á
vissum æviskeiðum o.s.frv. -
Eitt er Ijóst að ykkar klúbbur
skiptir ykkur miklu og þið
mynduð sakna hans flestar.
Ljóst er að þið eruð sennilega
nokkrar sem hafið liðið fyrir
þessa neikvæðu breytingu á
klúbbnum, en hafið ekki enn
lagt út í að fjalla um hana op-
inskátt.
En þið viljið verja og varð-
veita þennan gamla, góða
saumaklúbb. Að draga sig út
skýringalaust er sama og að
tapa baráttu með söknuði og
missi. - Pað er því engu að
tapa. Þœr ykkar sem eru sama
sinnis og þið getið komið
ykkur saman um leið til að
hefja þessa brýnu umrœðu um
hvertstefnir, takat.d. einnfund
bara í það. Það er augljóst að
engu er að tapa en allt að
vinna. Fari „allt upp í loft",
hvað með það? Það er a.m.k.
ekki verra en að hopa í þögn-
inni. Rjúki einhver ein „upp"
og í burtu í fiissi, þá það.
Kannske varð það svo að fara.
Mér finnst nœsta víst að svo
til allar konurnar verði mjög
fegnar þessum opnu umræð-
um um mál sem ykkur er mik-
ilvœgt - og leiti að góðri lausn.
Fyrst 18 ár gengu Ijómandi
ættu „batahorfur" að vera
mjög góðar. Ef til vill koma
fram óvæntar, snjallar hug-
myndir til úrbóta. Talandi um
þreytu, streitu, kulnun og þess
háttar - gœti e.t.v. komið til
greina að leita á nýjarslóðir og
gera einhverjar formbreyting-
ar. Hugsanlega mœtti t.d. hafa
í saumaklúbbnum aukastarf-
semi, svo sem leshring til til-
breytingar, e.t.v. bara við og
við. Þá læsuð þið eina bók eða
sögu, ein hefði framsögu og
svo yrðu skemmtilegar um-
ræður frá mörgum hliðum.
Þetta er víst nokkuð stundað
núna og er vinsœlt og upp-
örvandi. Svo mætti e.t.v. fara
eitthvað út eða í göngutúra
þegar vel viðrar.
Þið ræðið þetta, tilbúnar að
mæta hugsanlegu mögli, þá
vœntanlega frá þeim sem
kunna að vera valdar að þessu
neikvæða tali. Þið rifjið upp
tilgang og eðli klúbbsins og
biðjið meðlimi að velja á milli
þess að vera áfram í gamla
andanum - eða fara ella. Slíku
er erfitt að komast hjá. Niður-
rifsstarfá ekki að sætta sig við.
Ég trúi því að þetta muni
takast ágœtlega.
Góðar óskir, Hulda
Netfang: vikan@frodi.is
Lárátt
1. Viprar
10. Hætta
13. Veisla
16. Sjáðu
18. Bönd
21. Æst
23. Muldur
Lóðrétt_______
2. Kvað
4. Sýra
6. Úttekið
9. Rok
13. Bæn
16. Lamdi
23. Reiðihljóð
26. Tónn
8. Hárið
12. Eitur
14. Sögn
17. í húsi
19. Nart
22. Ryk
28. Fuglinn
3. Bál
5. Á fæti
7. Piltar
11. Óskar
15. Ný
20. Hljómur
24. Tölur
27. Úttekið