Vikan - 17.09.1998, Page 47
sva ra r
H ve r j u
I æ kn i r i n n ?
ALLTAF AÐ LÉTTAST
Kæri Þorsteinn,
í 8. tölublaði Vikunnar las
ég bréf frá „einni í vanda“
varðandi svokallaða átsýki.
Ekki veit ég hvað hægt er að
gera henni til hugarléttis en
ég er með spurningu svipaðs
eðlis. Eg er 18 ára stelpa og ég
held að ég sé með lotugræðgi.
Eg svelti mig heilu dagana en
gefst upp að Iokum, tæmi ís-
skápinn og æli svo öllu aftur
rétt eftir að ég kyngi síðasta
bitanum. Vissulega hefur
margt gengið á í tilfinningalíf-
inu og ástæður eða orsakir
eru ekki langt undan, svo það
er ekki það sem ég velti fyrir
mér.
Eg flutti nýlega að heiman
og var að vonast til að ástand
mitt myndi skána eitthvað. Ég
hef reynt að vera sterk og
dugleg, standa af mér veðrið
en ég fékk áfall þegar ég upp-
götvaði það að ég léttist mjög
nýlega um 4 kfló á aðeins 8
dögum. Ég er sem sagt enn að
léttast - ég er núna 175 sm á
hæð og rétt um 60 kfló. Ég
geri mér grein fyrir vandan-
um, veit að hann er geðrænn
og þess vegna er ég hrædd (vil
ekki lenda á hæli).
Ég vona að þú sjáir þér fært
að svara þessum línum mín-
um þar sem ég hef þungar
áhyggjur og óttast þá stefnu
sem líf mitt er að taka.
Horgrindin geðveika
Þakka þér fyrir bréfið þitt.
Ég vona að sem flestir lesi það
því í því eru skilaboð sem eiga
við svo margar ungar konur.
Ég er líka feginn að finna að
þú hefur innsœi í vanda þinn
og fimnur þörf á að gera eitt-
hvað í málinu.
Algengt er að ungar konur,
sem eiga við sama vanda og
þú að stríða, sjái ekki vanda-
málið og hvað þá að þær vilji
horfast í augu við vandann.
Eins og þú kemur inn á er or-
sök vandans margþætt, gömul
og ný vandamál sem hafa sam-
tvinnast þér andlega og líkam-
lega. Huglægir og geðrœnir
þættir vandans hafa ekki verið
auðveldir viðureignar, sérstak-
lega vegna þess að það er mis-
jafnt hvað hentar hverri ein-
stakri konu. Sálgreining hjá
lœkni eða sálfræðingi með eða
án dáleiðslu er líklega það sem
á viðflestar, en ég tel afar mikil-
vœgt að gott traust skapist milli
konunnar og þess sem með-
höndlar hana. Leitaðu til heim-
ilislæknis þíns um það
hvert sé best að leita að-
stoðar, en ég veit líka
að á göngudeild
geðdeildar Land-
spítalans er hægt
að fá góðar úr-
lausnir.
Þorsteinn
BAÐPÚÐUR FER í ÖND-
UNARFÆRIN
Þorsteinn Njálsson
Ég las grein í 9. tölublaði
Vikunnar þar sem kona spurði
hvort baðpúður gæti verið
hættulegt börnum. Mig langar
til að leggja orð í belg um
þetta. Hættan felst í því að
bömin eru púðruð um allan
kroppinn, svo er slegið létt á til
að dreifa og jafna út, þá fá
bömin púðrið í öndunarfærin.
Og það getur valdið ofnæmi og
asma. Þetta var umtalað fyrir
30-35 árum og á sjálfsagt við
ennþá.
Kveðjur,
amma
Þakka þér fyrir ábendinguna
kæra amma. Þetta er alveg rétt
hjá þér. Þetta púðurbað sem
börn fengu fyrir sig hér áður
fyrr leiddi einmitt til þessa
vanda sem þú nefnir hér. Ég
vona að enginn geri þetta í dag.
Barnapúður er mjög góð með-
ferð á raka húð, en öllu má of-
gera.
Þorsteinn
FLUGHRÆÐSLA
Kæri Þorsteinn,
Mig langar til þess að biðja
þig um að gefa mér ráð vegna
barnabarns míns.
Þetta er 17 ára stelpa, vel
gefln og listræn. Hún virðist
vera í góðu jafnvægi. Núna er
hún í tónlistarnámi við dansk-
an skóla, þetta er fullt nám
sem hún stundar. Hún er hjá
vinafólki í fæði og húsnæði
og hún er dugleg að skrifa for-
eldrum sínum og mér. Nú
kemur það
sem menn reyna misjafnar.
Þegar flughræðsla er á viðráð-
anlegu stigi er ekki óalgengt
að fólk sé að dreypa á áfengi
fyrir brottför, þ.e. fullorðið
fólk náttúrulega. Ekki er held-
ur óalgengt að lœknar ávísi
léttum róandi lyfjum til að
nota áður en lagt er í hann. Ef
flughræðslan eða fælnin er
það mikil að fólk veigri sér við
að ferðast með flugvélum þrátt
fyrir brýna nauðsyn, er t.d.
farið að missa af fjölskylduat-
burðum vegna þessa eða farið
að kvíða ferð, líkt og barna-
barnið þitt, vikum eða mánuð-
um fyrir ferð, þá er vandinn
orðinn annar og meiri. Úr-
lausnir sem þarfað grípa
til verða
sem þjáir hana,
hún er svo of-
boðslega flug-
hrædd - hún er
nú þegar farin
að hugsa um
flugið heim
jólafríinu sínu og kvíð-
ir svo fyrir. Þessi hræðsla hel-
tekur hana. Hún hringdi í mig
í morgun að leita ráða. Kæri
Þorsteinn, geturðu gefið mér
ráð fyrir hana?
Mamma hennar er líka
svona flughrædd en enginn
annar í fjölskyldunni.
Með fyrirfram þakklæti og
kærri kveðju,
Ein af vilja gerð
Kœra amma,
Það er ekki auðvelt að vera
flughræddur í dag á þessum
tímum mikilla ferðalaga. Þetta
vandamál er þó algengara en
margur heldur og úriausnir
því umfangsmeiri.
Mörg flugfélög hafa upp á
námskeið að bjóða fyrir svona
einstaklinga sem er sjálfsagt
að nýta sér. Geðlæknar og sál-
frœðingar aðstoða líka marga.
Afnæming, t.d. með dáleiðslu,
reynist líka mörgum gagnleg.
Fáðu stúlkuna til að leita sér
hjálpar. Hún á það skilið að
njóta jólanna í faðmi fjöl-
skyldunnar á íslandi.
Þorsteinn
Netfang:
vikan@frodi.is
47