Vikan


Vikan - 17.09.1998, Blaðsíða 51

Vikan - 17.09.1998, Blaðsíða 51
svæði” enn. Pað er ekki langt síðan læknar unnu hatramm- lega gegn þeim aðilum sem voru að vinna á þessu sviði, en nú hefur færst í vöxt að þeir beini sjúklingum sínum til þeirra í leit að aðstoð við að auka vellíðan sjúklinganna meðan á lyfjagjöf stendur. Þorbjörg segir að margir krabbameinssjúklingar komi á stofuna og fái þar leiðbein- ingar um hollt fæðuval og heilbrigt líferni til að bæta líð- an sína meðan á lyfjagjöf standi. Fólk en ekki vélar Aðferð Þorbjargar byggist á samstarfi og mannlegum sam- skiptum. Hún telur að fólk geri, sem betur fer, meiri kröfur til lækna og lækninga en áður. Það vill láta með- höndla sig sem manneskju og líta á sig sem heildarmynd, þ.e.a.s. sem manneskju með sál og mannlegar þarfir. Læknisfræðin hefur ekki boð- ið upp á það fram að þessu, hinar hefðbundnu aðferðir miðast allar við “vélarbilun”, þ.e.a.s. að lappa upp á bilaðan líkama en ekki að leita skýr- inga í fleiri þáttum og vinna á meininu á þeim forsendum. Þessum aðferðum er fólk að hafna og krefst þess að tekið sé tillit til sérþarfa þess. Orkuskortur „Á íslandi er mikil þörf fyrir þá þjónustu sem ég býð því hér vantar umhyggjuna fyrir manneskjunni. Það ber miklu meira á orku- skorti hér en í Danmörku. Fólk er útkeyrt af þreytu og stressi. Stundum langar mig til að koma sjúklingunum sem til mín koma í rúmið. Það koma stundum til mín konur sem eru örþreyttar en viðurkenna það ekki fyrir sjálfum sér eða öðrum. Mig langar að koma þeim í rúmið og láta þær liggja þar í viku eða hálfan mánuð, þær þarfnast einfald- lega hvíldar og tíma til að sinna andlegum og líkamleg- um þörfum sínum. Fólk verð- ur að gefa sér tíma til að nær- ast rétt og lifa á heilbrigðan hátt. Við erum öll þess virði að gefa okkur þann tíma og eigum það skilið.” Mel tingartruflan ir „Allflestir íslendingar sem leita til mín þjást af meltingar- truflunum og ástæðurnar eru margvíslegar. I mörgum til- fellum má kenna um ofnotk- un á penísillíni, og það á eink- um við um börn með exem. Oft hefur saga þeirra byrjað með eyrnabólgum og síendur- tekinni penísillíngjöf, maginn og meltingin fara úr skorðum og exemið kemur í framhaldi af því. Penísillínið getur líka farið illa með fullorðið fólk. Ég hef fengið til mín sjúkling sem átti við mjög alvarlegar meltingartruflanir að etja, læknar voru búnir að gefa hann upp á bátinn. Hann var með stöðugan niðurgang, hafði lést um mörg kíló og var aðframkominn af þreytu og orkuskorti. Honum höfðu verið gefnir tuttugu penísillínkúrar í röð vegna sýkinga í nefi og kinnholum. Þessi sjúklingur var með mjólkur- og hveitióþol, og hann var fyrir löngu orðinn ónæmur fyrir penísillíninu sem hafði gereyðilagt alla mikróflóru í þörmum hans. Þetta er að vísu mjög alvar- legt tilfelli, en því miður ekk- ert einsdæmi.” Ábyrgð einstaklingsins „En meltingartruflanir geta líka stafað af röngu mataræði, því maturinn er okkar brennsluefni og það sem við byggjum andlega- og líkam- lega heilsu okkar á. Við erum sjálf ábyrg fyrir hverjum ein- asta bita sem við látum ofan í okkur. Það er því miður ekki hægt að komast hjá því að taka ábyrgð á að hver biti, sem maður lætur inn fyrir sín- ar varir, hafi áhrif á líðan manns og heilsu. Annað heilsuvandamál okk- ar er gigtin. Margir læknar eru farnir að ráðleggja sjúklingum sínum að taka inn lýsi og það er mjög ánægjulegt, lýsið gerir örugglega miklu meira gagn er sterarnir, þótt það sé eitt og sér ekki nægileg vörn gegn gigt” Fituhrœðsla íslendinga Omega 3 og Omega 6 fitu- sýrur eru mjög góðar við gigt- arsjúkdómum - og ekki bara þeim, heldur líka alls konar bólgum, exemi, hormóna- og taugasjúkdómum og jafnvel krabbameini. Líkami okkar getur ekki myndað þessar sýrur sjálfur svo við verðum að fá þær úr matnum, s.s. feitum fiski, fiskolíum og hörfræ-, sól- blóma- og þistilolíum. Eitt vil ég sérstaklega undirstrika með olíur, að þær eiga að vera af bestu gerð, lífrænt ræktaðar og fyrsta pressun. Þarna má ekki spara, það margborgar sig heilsunnar vegna að nota góðar olíur. Islendingar eru haldnir óeðlilegri „fituhræðslu” og þessa góðu fitu vantar of mik- ið í fæðuna. Þessi fituhræðsla á sérstaklega við konur á aldr- inum 15-50 ára. Það virðist enginn vita að þessar olíur eru nauðsynlegar til að halda okkur í kjörþyngd. Það eru ekki olíurnar sem vinna gegn kjörþyngdinni heldur sykur, gosdrykkir, hvítt brauð og of lítil neysla á grænmeti og ávöxtum. Ég vil samt ekki gera alla að grænmetisætum, ég held að þannig fæði eigi ekki við þjóð sem býr við okkar veðurfar. Það þarf ákveðið magn af fitu og eggjahvítuefnum til að halda á okkur hita og það er varasamt að sækja þessi efni í yfirdrifna neyslu á einföldum kolvetnum og mjólkurafurð- um,” sagði Þorbjörg að lok- um. Þorbjörg kemur reglulega til að sinna sjúklingunum sínum hér. Vinir hennar og velgjörð- armenn, Rúnar og Hildur í Yggdrasil ljá henni aðstöðu og taka pantanir fyrir hana. Hún setur sjúklingunum fyrir milli heimsókna og ræðir svo framfarirnar og skipuleggur framhaldið í hverjum tíma. Hún segir að ef fólk fari eftir leiðbeiningum sem það fær líði því strax betur, og eftir þrjár til fjórar vitjanir sé það farið að læra á líðan sína og hvernig það getur sjálft haft áhrif á hana með réttum lífs- stíl. Viðtal: Jóhanna Harðardóttir Mynd: Gísli Egill Hrafnsson 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.