Vikan


Vikan - 17.09.1998, Page 52

Vikan - 17.09.1998, Page 52
RNUAFMÆLI Þegar sígild fegurð er nefnd, dettur mörgum í hug leik- konan Catherine Deneuve - enda leitun að fegurri konu. Afmælisdagurinn hennar er 22. október en þá verður hún 55 ára. Catherine steig fyrst á leiksvið 13 ára að aldri og tók þá upp eftirnafn móður sinnar, sem var leikkona, en faðir hennar Maurice Dorleac var sviðs- og kvikmyndaleikari í Frakklandi. Catherine varð fyrst þekkt árið 1964 fyrir leik sinn í kvimyndinni „The Umbrellas of Cherbourg", en sú mynd hlaut Grand Prix verðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Cannes það ár. Þá var Catherine orðin móðir, átti eins árs dreng, Christian, sem er sonur hennar og leikstjórans Roger Vadim og árið 1972 eignaðist hún dótturina Chi- ara, með leikaranum Marcello Mastroianni. Bæði börn- in hafa fetað í fótspor foreldranna og lifa i heimi kvik- mynda... Það er ekki of djúpt í árinni tekið að segja að forsetafrú Bandaríkjanna hafi ekki átt sjö dagana sæla að undanförnu. Maðurinn hennar hefur séð til þess, sem og stúlkan hún Monica. En ekki orð um það meir! Nú á Hillary afmæli, verður 51 árs 26. október. Hún heitir fullu nafni Hillary Diane Rodham og er elst þriggja systkina, sem ólust upp við mikið ástríki. I uppeldinu var grunnurinn lagður að lífs- skoðun Hillary sem er: „Við höfum öll skyldum að gegna við samfélagið" og það er sagt að hún framfylgi þeirri lífssýn sinni alla daga. Hillary var virk í félagslífi á æsku- og unglingsárunum; hún var skáti, vann með æskulýðsfélagi kirkju sinnar og sat í stúdentaráði í háskólan- um. Hún kynntist Bill Clinton í lagahá- skólanum við Yale, giftist honum 1975 og eignaðist dótturina Chelsea árið 1980. Nú bíður heimurinn spenntur eftir því hvað gerist næst í sápuóperu Hvíta hússins... Winona Laura Horowitz, mun betur þekkt sem Winona Ryder, verður 27 ára 29. október. Hún er fædd í fylki hússins á sléttunni, Minnesota - reyndar i bænum Winona! - og lauk þaðan leik- listarnámi. Winona Ryder á tvö hálfsystkini og einn albróður...

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.