Vikan


Vikan - 17.09.1998, Side 53

Vikan - 17.09.1998, Side 53
 Hefðu þau ekki skilið að skiptum gætu Julia Roberts og fyrrverandi eiginmaður hennar, Lyle Lovett, haldið saman upp á afmælin sín og látið veisluna standa í 5 daga. Julia verður 31 árs 28. október og Lyle 41 árs I. nóvember, en þar sem hjónabandið stóð stutt eru litlar líkur á sameiginlegri veislu. Julia Roberts heitir réttu nafni Julie Fionna. Pabbi hennar seldi ryksugur og móðir hennar starf- aði sem ritari í kirkju. Þau slitu sam- vistum þegar Julia var 4 ára og fað- ir hennar lést úr krabbameini fimm árum síðar. Julia tók það mjög nærri sér, enda voru þau feðgin afar náin. Julia tók nokkur námskeið í fjölmiðlafræði, fór svo til Lisu systur sinnar, sem vann við leiklist í New York og reyndi fyrir sér sem leikkona. Ekkert gekk fyrr en Eric, bróðir þeirra og þekktur leikari, fékk leikstjóra myndarinnar „Blood Red" til að lofa systur sinni að vera með í þeirri mynd. Fram- tíðin var ráðin... Julia Roberts er mikil hannyrðakona og sagt er að á milli töku- atriða sitji hún og prjóni eða kenni öðrum að prjóna. Hún man vel eftir því hvernig það er að vera fátækur og gefur því stór- an hluta tekna sinna til líknarmála. Þegar hún er spurð um ævi sína svarar hún gjarnan: „Besta svarið er að svara engu..." Aðrir frægir, fæddir á þessu Viku-tímabili: Pablo Picasso (f. 25. október 1881-d. 1973), K.D.Lang (2.nóvember 1961) og Benjamin Netanyahu (2l.október 1949). „Rós Vikunnar" fær að þessu sinni Linda Ósk Sigurðardóttir, 18 ára Reykvíkingur. í bréfi, sem fylgdi með til blaðsins, þar sem Linda Ósk er tilnefnd, segir að þessi unga stúlka sem hefur verið bundin við hjóla- stól frá barnæsku, geti verið mörgum gott fordæmi. Linda Ósk er bjart- sýn og lætur ekkert aftra sér frá því að láta drauma sína rætast. Hún er nýkomin frá Portúgal þar sem hún og unnusti hennar innsigluðu sam- band sitt með hringum og óskum við unga parinu gæfu og gengis um ókomna framtíð! Pað eru íslenskir blómaframleiðendur sem senda Lindu Ósk tuttugu rósir. Linda Ósk Sigurðardóttir, Grettisgötu 10, 101 Reykjavík Þekkir þú einhvern sem á skilið að fá rós Vikunnar? Ef svo er, hafðu þá samband við „Rós Vikunnar, Seljavegi 2,101 Reykjavík og segðu okkur hvers vegna. Einhver heppinn verður fyrir valinu og fær sendan glæsilegan rósavönd frá Blómamiðstöðinni.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.