Vikan - 20.12.1998, Qupperneq 4
Útgefandi
Seljavegur 2,
Sími: 515 5500
Fax: 515 5599
Stjórnarformaður
Magnús Hreggviðsson
Aðalritstjóri
Steinar J. Lúðvíksson
Sími: 515 5515
Framkvæmdarstjóri
Halldóra Viktorsdóttir
Sími: 515 5512
Ritstjóri
Sigríður Arnardóttir
Sími: 515 5582
Vikan@frodi.is
Ritstjórafulltrúi
Jóhanna Harðardóttir
Sími: 515 5637
Blaðamaður
Þórunn Stefánsdóttir
Sími: 515 5653
Thorunn@frodi.is
Auglýsingastjóri
Björg Þórðardóttir
Sími: 515 5628
Vikanaug!@frodi.is
Ljósmyndarar
Bragi Þór Jósefsson
Gísli Egill Hrafnsson
Sigurjón Ragnar Sigurjónsson
Gunnar Gunnarsson
Hreinn Hreinsson
Grafískir hönnuðir
Ivan Burkni Ivansson
Ómar Örn Sigurðsson
Verð í lausasölu
Kr. 399,
Verð í áskrift
Kr. 329,-. Pr eintak
le&aiuli...
Sonur minn sjö ára hefur lengi haft gam-
an af því að fara í leikfangabúðir og skoða
fjölbeytt úrval af legókubbum. Hann hefur
gjarnan staðið hugfanginn fyrir framan
troðfullar hillur og bent á það sem hann
langar í, þ.e. þá legókubba sem hann á
ekki. Einu sinni bað ég hann um að benda
á þau leikföng sem hann átti fyrir. Og viti
menn, hann benti á þennan kassann og
hinn kassann og í ljós kom að hann átti
stóran hluta af þessum leikföngum. Síðan
þá hefur hann haft alveg jafn gaman af því
að benda stoltur á það sem hann á.
Mér datt þetta í hug þegar séra Anna
Pálsdóttir var að segja frá hugmyndum sín-
um um jólin hér í Vikunni (bls. 6). Þar sem hún var að ræða urn jólagleði og jólakvíða
áttaði ég mig á því að það er ekki lítilsvert að kenna börnunum sínum að gleðjast yfir
því sem þau eiga. Með því að slá af kröfunum og þakka fyrir það sem maður á öðlast
maður meiri hamingju heldur en ef maður eltist allt lífið við að eignast allt sern hugur-
inn girnist.
Anna Pálsdóttir segir hér í blaðinu: „Þegar manni tekst að beina hugsununum að því
sem maður á og hættir að hugsa um það sem maður á ekki þá kemur í Ijós að öll eigum
við stóra, fallega gullakistu, fulla af minningum um vini og ástvini sem við getum verið
þakklát fyrir. Jólin eru tími til að íhuga og þakka fyrir það sem við eigum.“ Þetta finnst
mér sannur og fallegur jólaboðskapur og ég vona að lesendur njóti þess að lesa jóla-
greinina „Jólabarnið kemur inn í allar aðstæður.“
En það er líka margt létt og skemmtilegt efni tengt jólunum í blaðinu. Blaðamaður
Vikunnar var eins og fluga á vegg í saumaklúbbi íslenskra kvenna í Edinborg og það er
gaman að heyra hvað þær eru að spjalla um þar (bls. 20). Smásagan eftir F. Scott Fitz-
gerald (bls. 24) er í léttum, rómantískum stíl og gerist rétt fyrir jól. Og svo er það jóla-
maturinn, borðskreytingar og handavinna sem svo gaman er að fást við og njóta. En
göngum hægt um gleðinnar dyr og spennum ekki bogann of hátt - á bls. 44 er skemmti-
leg grein um öðruvísi jólagjafir. Þar eru margar góðar hugmyndir um gjafir sem ekki
kosta mikið en eru þeim mun frumlegri og persónulegri.
Eg vona að jólin verði þér friðsæl og ánægjuleg.
Gleðileg jól!
Sigríður Amardóttir ritstjóri
Jóhanna Harðardóttir Pórunn Stefánsdóttir Björg Pórðardóttir
ritstjórafulltrúi blaðamaður auglýsingastjóri
Ivan burkni
grafiskur hönnuður
Ef greitt er með greiðslukorti
Kr. 297,-. Pr eintak
Unnið í Prentsmiðjunni Odda
hf.
Öll réttindi áskilin varðandi efni
og myndir
Áskriftarsími:
515 5555