Vikan - 20.12.1998, Síða 19
Á kafi í kaupmennskunni.
Skyldi hann hafa komið með
tékknesk eða íslensk börn þessi
storkur?
Ég veit það svei mér ekki.
Myndin af Pálma
sem Spaugstofu-
manni er föst í
huga okkar, en
hann getur tekið
að sér hin ólík-
ustu hlutverk og
nýtur þess að
bregða á leik í
nýju versluninni.
Kona Vikunnar að
þessu sinni er Helga
Soffía Konráðsdóttir,
prestur í Háteigs-
kirkju og formaður
Prestafélags íslands.
Helga Soffía er ein
af fáum konum í
ábyrgðarstöðum
innan kirkjunnar,
hún er starfandi
prestur og jólin eru
því annatími hjá
henni.
Kona Vikunnar
Hvað gerir þig glaða?
Það eru fyrst og fremst börnin mín sem gera mig glaða.
Þegar ég fylgist með heilbrigðum þroska og framförum
þeirra og góðri frammistöðu verð ég innilega glöð.
Hvað gerir þig sorgmædda eða leiða?
Fullorðið, heilbrigt fólk sem er vel af Guði gert en er á
góðri leið með að klúðra lífi sínu, hvort sem það er meðvit-
að eða óvart, og gerir ekkert í málum sínum til að rétta
kúrsinn aftur og ná jafnvægi.
Hvað finnst þér fallegt?
Maður í svartri rúllukragapeysu, í svörtum buxum og með
svart belti. Dökkhærður, gjarna með grátt í vöngum. Það er
fallegt.
Hvað finnst þér Ijótt?
Sláturhús í fullum gangi.
Hvar líður þér best?
Mér líður vel alls staðar... nema í tannlæknastólnum.
Mér líður vel í sundi, en ætli mér líði ekki best í rúminu
mínu. Mér líður vel fyrir altarinu, en síður í prédikunar-
stólnum. Það er vegna þess að í prédikun þarf ég að gefa af
sjálfri mér og það gerir mig stundum óörugga.
Hvers gætir þú síst verið án í lífinu?
Ég gæti síst verið án trúar og ástar.
Hvað fer mest í taugarnar á þér?
Rógburður, neikvæðni og langvarandi bölsýni. Ennfremur
undirlægjuháttur og fals.
Hvað heillar þig mest í fari fólks?
Einlægni, hreinlyndi, hlýja, blíða, styrkur, þor og áræðni.
Ég met það mikils þegar fólk þorir að gefa af sjálfu sér, af
gleði sinni, reiði og sorg.
Hverju myndir þú helst vilja breyta í lífi þínu ef þú ættir
þess kost?
Ég mundi vilja vera auðmýkri, miklu tillitssamari og
miklu, miklu grennri. Svo myndi ég vilja flytja til Balí,
a.m.k. fara þangað annað veifið.
Hlakkar þú til jólanna?
Já, ég hlakka til jólanna núna, eins og oftast áður. Ég
hlakka til að syngja jólasálmana, lesa jólaguðspjallið, baka,
setja fyllinguna í kalkúninn, kveikja í jólavindlinum og
hlusta á jólakveðjurnar í útvarpinu. En ég kvíði líka fyrir
jólunum. Ég er í vinnu á jólum og áramótum þegar flestir
aðrir eiga frí. Ég kvíði því að þeysa úr einni messu í aðra,
að geta ekki gert nema stuttan stans í jólaboðum fjölskyld-
unnar af því að ég þarf að fara að vinna. Ég kvíði því að ein-
hverjir muni veikjast á jólunum eða deyja. Þetta allt snertir
starf mitt, mitt yndislega og innihaldsríka starf, sem gleður
mig svo mikið. Þess vegna fel ég Guði kvíða minn og bið
þess að kvíðinn skyggi ekki á guðdóm hans.
19