Vikan - 20.12.1998, Page 22
Áni ÞRJÁR KONUR
Það líður senn að jólum, heimilin taka á sig jólasvip og tilhlökkunin vex með hverjum deginum. Það er sárt til þess
að hugsa að á mörgum heimilum eru jólin og undirbúningur þeirra alls ekkert tilhlökkunarefni. Þannig er það
gjarnan á heimilum sem stjórnast af drykkju eins eða fleiri í fjölskyldunni. Al-Anon, samtök aðstandenda alkó-
hólista, hafa skipt sköpum fyrir margar fjölskyldur sem eiga við þennan vanda að stríða. Viðmælandi minn, sem
sagði mér sögu sína á 26. afmælisdegi samtakanna, segir þau hafa gjörbreytt lífi sínu.
„Þú spyrð mig hvernig
standi á því að ég hafi kvænst
þremur konum sem eru alkó-
hólistar. Áður en ég fór að
starfa með Al-Anon hefði ég
ekki getað svarað þessari
spurningu en nú, þegar ég er
búinn að vinna úr mínum mál-
um, get ég auðveldlega svarað
þér. Það er eins og þeir sem
misnota áfengi og aðstand-
endur séu með innbyggðan
radar hvert á annað, þau eiga
auðvelt með að finna hvert
annað. Misnotandinn, sem er
að leita að einhverjum til þess
að hugsa um sig og aðstand-
andinn, sem er að leita að ein-
hverjum til að hugsa um. Á
mínu æskuheimili var áfengi
ekki misnotað. En meðvirkni
getur orsakast af ýmsu öðru
en drykkju. Karl faðir minn
var óánægður með lífið, hann
hafði ekki aðstæður til þess að
gera það sem hann langaði til
að gera, hann var reiður og
bitur og óánægja hans bitnaði
á okkur bræðrunum. I minn-
ingunni er hann harður, skip-
andi karl. Ég hef alltaf verið
viðkvæmur og tilfinninga-
næmur og þurft á hlýju að
halda. Frá föður mínum fékk
ég ekkert annað en höfnun.
Þó ég fengi hlýju frá mömmu
var hún mjög meðvirk. Líf
hennar snerist um pabba og
allt gekk út á það að gera hon-
um til geðs. Líf mitt snerist
um að reyna að fá hrós og
uppörvun frá pabba. Ég velti
því stöðugt fyrir mér hvers
vegna honum þætti ekki vænt
um mig. Uppeldi mitt gerði
það að verkum að ég fór út í
lífið með mjög lélega sjálfs-
mynd, mér fannst ég ómögu-
legur, algjörlega óalandi og
óferjandi. Eftir að ég flutti að
heiman og fór út á vinnumak-
aðinn valdi ég gjarnan erfið
störf og var stöðugt að reyna
að sanna mig og kaupa mér
hól. Svona þenkjandi maður
er auðvitað frábært efni í
meðvirkan mann. Maður van-
rækir sjálfan sig algjörlega,
allir aðrir ganga fyrir. Ég hef
aldrei drukkuð svo mikið að
drykkjan hafi stjórnað mér.
Mér þótti samt alltaf gott að
drekka vín og gat alveg séð
mig sem dagdrykkjumann.
Það vildi ég ekki verða og sá
ótti hefur örugglega haldið
mér á mottunni. En stundum
leið mér svo illa að ég reyndi
að drekkja vanlíðaninni í
áfengi. En allir vita að það
hjálpar ekki, vanlíðanin sem
maður er að reyna að drekkja
situr alltaf eftir á glasbotnin-
um.“
ALKÓHÓLISMIER FJÖL-
SKYLDUSJÚKDÓMUR
„Ég beið mikið skipsbrot
þegar fyrsta hjónaband mitt
endaði með skilnaði. Það var
gífurlega sársaukafullt, það
var eins og allar hlýjar tilfinn-
ingar sem ég bar í brjósti
brystu og ég hef lengi verið að
kljást við það að tjasla þeim
saman aftur. Annað hjóna-
band mitt var erfitt og þegar
ég giftist þriðju konunni
fannst mér lífið vera orðið
stöðug vanlíðan. Ég vaknaði
alla daga með kvíðahnút í
maganum og eftir því sem
árin liðu missti ég mótstöðuna
og þoldi illa allt áreiti. Líf
með ofdrykkukonu er erfitt
fyrir alla fjölskylduna. Alkó-
hólismi er þannig sjúkdómur
að aðstandandinn er sífellt að
fela ástandið á heimilinu,
ljúga og lagfæra eyðileggingar
og skemmdir á heimilinu.
Börnin taka þátt í þessu líka,
þau læra að ljúga og verja for-
eldrið með kjafti og klóm.
Aðstandandinn er fyllilega
meðvirkur, orð og gjörðir hins
sjúka stjórna líðan og gjörð-
um allra á heimilinu. Álkó-
hólismi er sjúkdómur sem
þrífst ekki nema að sá sem
honum er haldinn komi öðr-
um niður á sama plan og jafn-
vel aðeins neðar en hann er
sjálfur. Hann þarfnast þess að
geta stjórnað umhverfinu.
Þess vegna er þetta fjöl-
skyldusjúkdómur, allt heimil-
islífið verður sjúkt. Það slepp-
ur enginn óskemmdur frá
slíku heimili. Það má líkja
þannig heimilislífi við Ví-
etnamstríðið, þaðan sem eng-
inn kom heill til baka. Alkó-
hólistinn finnur veiku punkt-
ana og pikkar stöðugt í þá og
síðustu ár mín í hjónabandinu
braut konan mín mig stöðugt
niður. Það er nú svo að kona
brýtur karlmann niður á allt
annan hátt en karlmaður
konu. Andlegt ofbeldi er al-
gengara hjá konum. Þið kon-
urnar eru næmari en við karl-
arnir á líðan annarra. Það er
líklega vegna þess að þið eruð
mæður, þið hafið svo margt
fram yfir okkur karlana og
eruð á margan hátt þroskaðri.
Þegar þessir eiginleikar eru
notaðir á neikvæðan hátt er
afleiðingin djöfulleg. Það er
líklega sárara að láta tæta sig
niður andlega heldur en að
láta berja sig. Árið áður en ég
leitaði mér hjálpar gerði ég
ekkert rétt og mundi ekkert
rétt, að hennar mati. Ég var
harður á rnóti til þess að byrja
með en dropinn holar stein-
inn. Ég fór að efast um sjálfan
mig og hætta að þora að hafa
skoðun á málunum. Ég var
brotinn niður smátt og smátt,
á allan mögulegan máta. Það
var alveg sama hversu góður
dagurinn hafði verið í vinn-
unni.Um leið og ég kom heim
var ég á örskammri stundu
kominn niður í svartnættið,
niður á hennar plan. Það er
nefnilega ógnun við þann
sjúka ef aðstandandanum líð-
ur vel. Sjúki aðilinn er í raun
og veru alltaf að berjast fyrir
lífi sínu, líf hans er þetta
ástand, að vera haldinn sjúk-
dómnum.“
LEIÐIN TIL BETRA LÍFS
„Það kom að því að ég gat
ekki meir. Ég var alveg búinn,
var kominn niður í myrkrið og
áttaði mig á því að eitthvað
yrði ég að gera fyrir sjálfan
mig. Ég byrjaði á því að fara
til lækningamiðils sem hjálp-
aði mér að öðlast betri skiln-
ing á sjúkdómum. Ég lærði
22