Vikan - 20.12.1998, Side 52
JORNUsIúöul _ TEXTI: SÆVAR HKEIÐAKSSON
OF LÍTIL FYRIR TRUMP
MÓÐGUÐ FYRIRSÆTA
Ástralska ofurfyrirsætan Elle
Macpherson var ekki ánægð með
fréttir í bresku blöðunum um að
hún ætti í erfiðleikum með að tala
við sambýlismann sinn á hans móð-
urmáli. Elle býr með fjármála-
braskaranum Arki Busson og móð-
urmál hans er franska. f frétt í einu
slúðurblaðanna var greint frá því að
Elle hafi eingöngu viljað tala
frönsku þegar hún flaug með tæp-
lega eins árs son þeirra með
áströlsku flugfélagi til heimalands-
ins fyrir skömmu. Flugfreyjurnar
gerðu grín að þvf hversu slök fyrir-
sætan væri í frönsku og framburð-
urinn væri nær óskiljanlegur. Pessi
frétt fór fyrir brjóstið á fyrirsætunni.
„Elle talar fullkomna frönsku og
hefur gert það í meira en áratug. En
þegar hún og Arki eru saman talast
þau aðallega við á ensku, jafnvel þó
hann sé fullfær um að tjá sig á sex
öðrum tungumálum," sagði tals-
maður ofurkroppsins. Þess má geta
að Elle var áður gift franska ljós-
myndaranum Gilles Bensimon og
ætti því að hafa fengið ágæta æfingu
í frönskunni.
HIÐ LIÚFA LÍF
ER VIÐ HESTAHEILSU
Grínistinn Robin Williams hefur mikl-
ar áhyggjur af heilsunni og fyrir skömmu
fór hann í ítarlega læknisskoðun á einka-
rekinni sjúkrastofnun í Arizona sem er
þekkt fyrir að sinna hjartasjúklingum.
Williams, sem er 46 ára, kom með einka-
þotu frá heimili sínu í San Francisco og
sjónarvottur segir að hann hafi verið þög-
ull og niðurlútur þegar hann mætti í skoð-
unina en eiginkona grínistans, Marsha
fylgdi honum. Leikarinn skráði sig inn und
ir dulnefni og gekkst undir ítarlegar rann
sóknir. Því var slegið upp í bandarískum
blöðum að Williams hefði fengið
hjartaáfall en talsmaður hans segir
enga ástæðu til að óttast. „Hann er
við hestaheilsu," segir talmaðurinn.
Williams er grænmetisæta og
smakkar ekki áfengi en hann hefur
viðurkennt að hafa verið kókaín-
fíkill á sínum yngri árum. Hann
hætti í dópinu fyrir fimmtán
árum, nokkrum vikum áður en
hans fyrsta barn, sonurinn
Zachary, kom í heiminn.
Leikkonan fagra Salma Hayek hafði greini-
lega áhuga á nánum kynnum við milljarða-
mæringinn Donald Trump þegar þau kynnt-
ust á tískuverðlaunaafhendingu VHl sjón-
varpsstöðvarinnar í New York í haust.
Trump er einn alræmdasti kvennabósinn í
Bandaríkjunum um þessar mundir og hann
var í innilegum samræðum við Hayek
þetta kvöld. Nærstaddir segja að Hayek
hafi greinilega heillast af Trump og hún
fór ekki leynt með áhuga sinn þrátt fyrir
að unnusti hennar, breski leikarinn Ed-
ward Atterton, hafi aldrei verið langt
undan. Að verðlaunaafhendingunni
lokinni elti leikkonan milljarðamæring-
inn á næturklúbb og unnustinn virtist
ekkert kátur þegar Hayek laumaði
miða með símanúmeri sínu til Trump.
En þrátt fyrir þessar augljósu ábend-
ingar um að hún væri til í tuskið hafði
Trump ekki áhuga á ástarsambandi.
„Salma er falleg og mjög indæl en hún
er bara svo lágvaxin,“ sagði Trump
trúnaðarvini sfnum „Ég hrífst miklu
fremur af hávaxnari konum.“
Söngvarinn Tony Bennett var að gefa út ævisögu sína sem hann kallar The
Good Life og þar segir hann m.a. frá eiturlyfjavanda sínum. Hann var stór-
stjarna á sjöunda áratugnum og flutti frá San Francisco til Hollywood en
frægðinni fylgdu vín og villtar meyjar. „í öllum partíum sem ég fór í voru gest-
irnir alltaf í einhvers konar vímu. Kókaínið var jafn áberandi og kampavínið
og ekki leið á löngu þar til ég tók þátt í fjörinu,“ segir Bennett, sem er orðinn
72 ára og laus við fíknina. Fyrir tveimur áratugum hótuðu skattayfirvöld að
gera heimili hans upptækt vegna fjármálaóreiðu hans og Bennett segist hafa
farið á fyllinstúr í kjölfarið sem varð honum næstum að aldurtila. Uppdópaður
fór hann í bað til að slappa af en leið útaf og var nærri drukknaður. Pegar eig-
inkona hans, Sandra, kom að honum var hann hættur að anda. „Hún barði á
brjóstið á mér og náði að lífga mig við.“ Söngvarinn sá villu síns vegar og hefur
átt mikilli velgengni að fagna eftir að hann hætti í dópinu.
ÞARF EKKI VIAGRA
Spjallþáttakóngurinn Larry King á von á erfingja í
mars með eiginkonu sinni, Shawn Southwick. King er
65 ára og eiginkonan er 38 ára. Þetta verð-
ur þeirra fyrsta barn saman en hann á þrjú
uppkomin börn, 41, 37 og 30 ára og Shawn
á 17 ára son sem býr hjá föður sínum. King
segist ekki þurfa undralyfið Viagra til að
standa sig í stykkinu með eiginkonunni -
galdurinn felst í víðum nærbuxum. „Ég hef
aldrei prófað Viagra. Sem betur fer þarf ég
það ekki. Auk þess þori ég því ekki þar sem
ég er hjartveikur og þarf að vera á öðrum
lyfjum," segir King. „Vinur minn hvíslaði
því að mér að ef ég vildi barna eiginkonuna
þá ætti ég að prófa víðar nærbuxur. Ég
hafði aldrei prófað þær áður en klæddist
þeim f sex mánuði. Og það virkaði!" Hjón-
in vita að þau eiga von á dreng og hafa þeg-
ar valið nafnið Chance. King er gyðingur
en eiginkonan er mormóni og hún segir að sonurinn
verði alinn upp í mormónatrú en verði einnig kenndar
hefðir og venjur Gyðinga.