Vikan - 07.01.1999, Blaðsíða 28
Smásaga
Höfundur: Kristín Jóna Þorsteinsdóttir
EINNAR NÆTUR UMSLAG
í
Eg skrúfa fyrír vatnið, kveiki á M, ýti á Ijósrofann á veggnum
Mynd af þér kemur
upp í hugann og þó
ég hristi ákaft höf-
uðið eins og til að hrista
myndina af þér burt, þá veit
ég að það varir bara í smá
stund því hvort sem ég vil eða
vil ekki, þá koma myndirnar
alltaf aftur upp í hugann. Ég
sé fyrir mér andartök sem við
áttum. Ég heyri okkur tala
saman. Ég heyri hljóminn í
röddunum okkar og mér finnst
ég vera að ærast, ég vildi að ég
gæti bara ýtt á rofa eins og er á
útvarpinu og slökkt á röddun-
um eða ýtt á takka og allar
myndirnar hyrfu.
Ég er eins og léleg sápu-
ópera, eins og þessar sem eru
alltaf í sjónvarpinu um fjögur-
eða fimmleitið á daginn, þar
sem söguþráðurinn og kjarn-
inn er löngu búinn eða var
aldrei ti! en þáttaröðin heldur
samt áfram þunn, teygð og illa
leikin.
Ég geng inn í stofu og set
uppáhaldsdiskinn minn á ég
róast alltaf er ég heyri fallegu
tónana frá fiðlunni. Barrock
Beautys stendur jú alltaf fyrir
sínu.
Góður ilmurinn af freyði-
baðinu fær mig til að hlakka
til að fara ofan í baðið og
slaka á.
Heitt vatnið leikur um lík-
ama minn og hvít froðan þyrl-
ast upp í loftið er ég leggst
ofan í baðið, fiðlurnar spila
uppáhaldslagið mitt.
Ég loka augunum og læt hug-
ann reika, fiðlurnar hafa alltaf
tekið mig í undursamlegt æv-
intýri, þar sem allt er svo fal-
legt. En í þetta sinnið snerist
hugurinn um mig sjálfa þar
sem um síðustu helgi, ég lá
uppi í rúmi og grét, grét við
þessa sömu tóna og heyrðust
núna. Ég hugsaði um hvað mig
langaði að elskast með þér við
undirleik þessa lags en tæki-
færið yrði aldrei, því ég er ást-
fangin af forboðnum ávexti.
Ég finn andlitið afmyndast
af sorg, ég opna augun og seil-
ast eftir spegli og horfi á speg-
ilmynd mína. Spegilmynd sem
eykur aðeins á sorg mína og
söknuð. Ég sé aðeins skugga
af spegilmynd minni. Ég finn
heit tárin leka niður kinnarn-
ar og heyri þau sem í fjarska
detta ofan í baðvatnið og
hverfa í froðuna, sameinast
vatninu.
Ég var þyrst og einmanna
svo ég ákvað að fara og fá
mér bjór og kannski smá fé-
lagsskap í leiðinni. Ég dreif
mig í sturtu og fór svo í galla-
buxur, rifnar á hnjánum, hvít-
an stuttermabol og galla-
jakka, ég mála mig aldrei og
þarf ekkert að gera við hárið
á mér, ég er með „wash and
go“ klippingu svo ég var tilbú-
in á stuttum tíma. Leiðin lá
niður á 22, þar gat ég setið og
drukkið mitt öl og sagt hæ og
kinkað kolli við aðra gesti
staðarins. Það var orðið langt
síðan ég hafði farið út og
fengið mér bjór, a.m.k. nokkr-
ar helgar. Ég var orðin svo
þreytt á þessari rútínu, vinna
alla vikuna, horfa á sjónvarp-
ið um helgar og fara svo niður
á 22 og svolgra í sig nokkrum
bjórum og vona að ég mundi
hitta einhverja og verða ást-
fangin og lífið mitt mundi
breytast og ég yrði fjölskyldu-
manneskja sem ætti kærustu
sem ég mundi leiða um götur
borgarinnar. Og allir gætu séð
að ég var manneskja sem ein-
hver kaus að elska. Giftar
konur virðast vera það eina
sem ég gat náð mér í. Ef það
er reynt við mig þá er það gift
kona og ef ég sé einhverja
álítlega þá er hún gift. Og þær
lofa öllu fögru meðan þær
hafa not fyrir mann, eru alltaf
að bíða eftir rétta augnablik-
inu til að skilja við manninn
sinn svo við getum hafið okk-
ar líf.
-Ég get það ekki svona rétt
fyrir jólin, afmælið hans, af-
mæli krakkana, páskana,
mamma hans er veik eða við
skulum bíða aðeins og sjá
hvort sambandið hjá okkur
gangi upp áður en ég fer að
skilja við manninn minn. Ég
elska þig og ef þú trúir því og
ef þú treystir mér, þá verðuru
að reyna að vera þolinmóð,
þetta tekur allt sinn tíma. Og
ég alltaf jafn græn fyrir öllum
þessum fögru orðum og svo
þegar þær eru búnar að gera
upp hug sinn um að vera
áfram giftar og mér bara
fleygt út í kuldann, því það
reynist þeim orðið svo erfitt
að deila sér á marga aðila. Svo
þyrfta þær nú líka að sofa hjá
ektamakanum svo hann fari
ekki að gruna eitlhvað, ég
yrði nú bara að skilja það og
svo gerði ég of miklar kröfur,
þær voru í hjónabandi og
hefðu skyldum að gegna þar.
Ég hefði engan rétt að ætlast
til einhvers af þeim. Auk þess
að það gæti einhver þekkt
hana ef þær færu í bíó eða á
kaffihús og þú ert nú svolítið
lessuleg, sögðu þær.
Heimurinn minn fer að
hrynja hægt og rólega fyrir
framan mig og höfnunartil-
finningin heltekur mig, þá
hugsa ég alltaf það sama. Hve
vitlaus ég hafi verið og héðan
í frá ætli ég að láta giftar kon-
ur eiga sig.
Ég ákveð að taka því rólega
í nokkra helgar og vera sjálfri
mér nóg.
Hin sanna ást finnur mann
að lokum, maður á ekki að
þurfa að leita hennar. En
verður maður ekki þá að
prufa allt sem vekur athygli
manns, því hvenær og hvernig
veit maður hvort um sé að
ræða hina sönnu ást.
Ég hafði aðeins setið í smá
stund þegar þú komst aðvíf-
andi. Þú komst fljótlega auga
á mig og ætli ég hafi ekki bor-
ið það með mér að vera ein-
manna og þar af leiðandi auð-
velt fórnarlamb fyrir þig.
-Hæ ég heiti Dóra, má ég
bjóða þér í glas?
-Nei ég er með fullt glas, en
þakka þér fyrir.
-Ég heiti Dóra og ég veit að
þú heitir Kata
-Umm.
-Ert þú ekkert forvitin að
vita hvernig ég veit hvað þú
heitir?
-Nei.
Ég var ekki í stuði fyrir þína
tegund. Einhverja húsfrú að
leita sér að ævintýri, einnar
nætur stundargamni, mig
langaði að verða ástfangin,
finna mér konu og fara að
búa. Gefa fullt af ást og fá
fullt af ást, deila ást og öllu lífi
mínu með annarri konu sem
gerði það sama fyrir mig. Við
myndum verða tvær í heimin-
um, okkur kæmi ekkert við.
Við myndum verða sambland
af Rómeó og Júlíu og Yoko
og Lennon.
-Viltu vera ein?
Nei ég vildi ekki vera ein, ég
var búin að fá nóg af því lífi
en þú ert ekki að bjóða mér
upp á lífspakka, bara einnar
nætur umslag.
-Já takk.
-Alveg viss að þú viljir ekki
eitthvað að drekka?
-Já takk, alveg viss, takk
samt fyrir.
Og nú áttir þú að fara. En þú
sast þarna við hliðina á mér
og pantaðir þér í glas. Ég lét
sem ég sæi þig ekki.
Ég veit hvað þú ert, það
stendur skrifað í hegðun
þinni, þú ert gift og þér hund-
leiðist og langar í smá ævin-
týri, langar í eitthvað nýtt,
eitthvað sem þú hefur aldrei
prufað. Þú hefur eflaust hald-
ið oft framhjá manninum þín-
um en ert orðin leið á körlum
og langar að prufa konu. Eins
og þig vanti nýtt tómstundar-
gaman. Og ég er það. Þú ert
sjóuð í þessu, en þú ert óþoli-
28