Vikan - 21.09.1999, Síða 21
Hvert sem komið er í Vegas hevrist hringl í pening
um. Hljóðin úr blikkandi spilakóssunum mynda
eins konar bakgrunnstónlist fyrir borgina
Það er jafnvel hægt að leigja prest í
formi Elvis eftirhermu eða gifta sig
í aktu-taktu stíl, en þá eru hjónin
gefin saman í gegnum bílalúgu.
heitt þar á sumrin og þægilegur
hiti á öörum árstímum.
Á Lúxor er svo margt hægt að
gera sér til skemmtunar aö það
er nær óþarft að yfirgefa hótelið.
Þar eru m.a. verslanir sem selja
eftirlíkingar af egypskum forn-
minjum en einnig er hægt að
kaupa raunverulega forngripi, en
eðli málsins samkvæmt eru þeir
mjög dýrir. Stórt og fullkomið
leikhús er innan veggja hótelsins
og þar eru daglega haldnar
margvíslegar sýningar.
Bolshojballettinn vart.d.
með nokkrar sýningar í
leikhúsinu fyrstu dagana
í september. Alls kyns
veitingastaði er að finna
á hótelinu og er óhætt að
mæla með hlaðborðinu
„veisla faraóanna."
Hlaðborðin (þau eru
mörg!) beinlínis svigna
undan kræsingunum og
eru álíka löng og Laugavegurinn.
Þar er á boðstólum bókstaflega
allt sem hugurinn girnist, hvort
sem fólk girnist alla ávaxta- og
grænmetisflóruna, úthafsrækjur,
safaríkar nautasteikur, kalkún
eða svínakjöt. Svo að maður
minnist nú ekki á eftirréttahlað-
borðin. En tilhugsunin ein nægir
til þess að maður fær ofskammt
af hitaeiningum. Hlaðborð faraó-
anna kostar um 7oo krónur, ísl.
Lúxorhótelið státar að sjálf-
sögðu af glæsilegu spilavíti sem
er í gangi allan sólarhringinn.
Enda þýðir ekki að bjóða upþ á
annað í borg sem aldrei sefur.
Spennuþrungin
spilavíti
Það er ekkert leyndarmál að
aðalaðdráttarafl Las Vegas felst í
sþilavítunum frægu. Fólk flýgur til
þorgarinnar til þess að eyða einni
helgi og eyða peningunum
sínum. Sumirspila með
nokkra dollara, sumir
með milljónir og aðrir
Murj>lit lilikkundi
Ijósuskilti cru uöuls-
mcrki Lus Vcgus cndu
cr niikiö sfuö í liorginni.
CAsmd
: ; k
'****í^21t1
—..- -
Siindluiigaruðstuöun ú Liíxorhótclinu
liyöur ii|i|i á aö gcstir lircgöi scr í
hlutvcrk spilltru Rónivcrja.
með aleiguna. Það getur því verið
stutt á milli sorgar og gleði í
spilavítunum.
Hvert sem komið er ÍVegas
heyrist hringl í peningum. Hljóðin
úrspilakössunum mynda eins
konar bakgrunnstónlist fyrir
borgina. Alls staðar er hægt að
freista gæfunnar, meira að segja
ájafnólíklegum stöðum og
MacDonalds. Spilakassar eru
felldir inn í barborð innan spila-
vítanna svo fólk geti notið drykkja
sinna á meðan það spilar.
BlaðamaðurVikunnar er
ekkert sérlega hrifinn
af svona spila(hel)vít-
um en fannst ekki ann-
að við hæfi en að prófa.
Ég valdi mér spilakassa
af kostgæfni og settist
við hann, hálffeimin.
Fyrr en varði snerist
lukkan á sveif með mér
og smápen-
ingar tóku að
hrynja úr
kassanum
með tilheyr-
andi hávaða
og blikkandi
Ijósum. (fáti
mínu reif ég
upp plastpoka
og hófst
handa við að
moka peningunum ofan í hann.
Það verður að viðurkennast að
hjartað sló nokkuð ört. Þegar vél-
in hætti loks að dæla út pening-
um, kom í Ijós að ég hafði unnið
40 dollara og fékk þá greidda í 5
senta peningum. Þið getið bara
rétt ímyndað ykkur þyngdina á
pokanum góða.
Brúðkaupsvæn borg
Eins og fram hefur komið hefur
Las Vegas upp á að bjóða spenn-
andi spilavíti, glæsileg hótel, frá-
bært veður og einstakar sýningar.
En, það er líka hægt að gera ann-
að skemmtilegt og það er að
gifta sig í Las Vegas.
Ótrúlegur fjöldi fólks lætur gefa
sig saman í hjónaband í Las Veg-
as. Árið 1998 voru gefin út
108,493 leyfisbréf til giftingar í
borginni. Langvinsælustu dagarn-
ir til þess að ganga í hnappheld-
una eru gamlárskvöld og Valent-
ínusardagurinn. Borgin er mjög
„brúðkaupsvæn". Embættið sem
gefur út tilskilin leyfi hefur opið
allan sólarhringinn um helgar og
á hátíðum og það er enginn bið-
tími á leyfunum. Síðan er bara að
velja sér brúðkaup við hæfi. Fjöl-
mörg hótel eru með sérstaka
gistingu á boðstólum fyrir brúð-
hjón með hjartalöguðu rúmi, heit-
um nuddpotti og kampavíni.
Sumir velja sér frekar skemmti-
lega hallærisleg mótel sem er
líka mjög dæmigert fyrir Las Veg-
as. Sumar kirkjur leigja eða selja
brúðarkjóla og sjá líka sóma sinn
í að útvega blómaskreytingar,
Ijósmyndatöku, kampavín,
limósínu eða hvað sem gerir
verðandi brúðhjón ánægð. Allt er
falt. Það er jafnvel hægt að leigja
sér prest í formi Elvis eftirhermu
eða gifta sig í aktu-taktu stíl en
þá eru hjónin gefin saman í
gegnum bílalúgu.
Það getur borgað sig að
skreppa til Las Vegas. Þar rætast
alltaf einhverjir draumar.