Vikan


Vikan - 21.09.1999, Blaðsíða 45

Vikan - 21.09.1999, Blaðsíða 45
Eftir Diane Guest. Þórunn Stejánsdóttir þýddi. hneigði sig fyrir pabba sín- um, eins og hann vildi að hún gerði, en hann sneri sér að dyrunum og leiddi inn konu sem stóð fyrir utan. Hún var klædd í fallegan silkikjól og hárið á henni var á litinn eins og sólin. Hún opnaði munninn og Elise heyrði rödd hennar eins og vatnsnið úr fjarska. Komið þið sæl, sagði hún. Ég hef lengi hlakkað til að hitta ykkur. Börnin góð, sagði faðir- inn. Þetta er Anna; nýja mamma ykkar. Elise var sem lömuð. Hvernig gat pabbi sagt þetta? Mamma hennar hafði dökkt, hrokkið hár. Hvernig hafði þessari ljóshærðu norn tekist að telja pabba hennar trú um að hún væri mamma þeirra? Aftur helltist myrkrið yfir hana. Hún heyrði rödd Julians, en í þetta sinn gat jafnvel hann ekki bjargað henni. Elise opnaði augun. Julian var ennþá að spila en annars var allt hljótt í húsinu. Hvað var annars langt síðan Julian kom og sótti hana á geð- sjúkrahúsið? Voru það virki- lega aðeins tveir mánuðir? Hún hafði verið þar í ellefu ár og allan tímann vissi hún að hann myndi koma og sækja hana ef hún hegðaði sér vel. Það hafði hann alltaf gert þegar hún var send í burtu. Og hún hafði haft rétt fyr- ir sér. Hann kom, en í stað þess að fara með hana heim til New York fóru þau í hús ömmu þeirra í Nantucket. Hann sagði að hún ætti að vera Francescu til aðstoðar en hvernig gat hún það þeg- ar hún vissi að Francesca óskaði þess heitast af öllu að MIUENNIUM 2000 I tilefni aldamótanna! Mynd N0.76563 kr. 3720,- sendum í póstkröfu The Crajt Collection Itd Póstlisti kr. 400.- Breskar útsaumsvörur Útsaumsgarn og efni Ýmis smávara Bútasaumsefni Bækur og snið HAMRAB0RG 7 SIMI/FAX: 564-4131 hún yrði send aftur á geð- sjúkrahúsið. Mágkona henn- ar sagði það aldrei beint út en Elise vissi að hún myndi gera það einhvern tíma þeg- ar Julian væri að heiman. Þess vegna gaf hún Francescu allar pillurnar sínar. Francesca gat ekki sent hana í burtu meðan hún svaf. Og svo var það Christian. Hann var ljóshærður, eins og allir þeir sem höfðu angrað hana. Einu sinni hafði hún reynt að klippa af honum hárið í þeirri von að það tæki frá honum orkuna. En hann hafði sloppið frá henni. Bráðum, hugsaði Elise. Bráðum færi eins fyrir Christian eins og hinu barn- inu með gyllta hárið. Barn- inu hennar Önnu. Elise var ellefu ára. Hún var að sippa í ganginum en stansaði allt í einu og horfði skelfingu lostin inn í her- bergið hans Julians. Þau voru búin að eyðileggja það og breyta því í barnaher- bergi. Pabbi hennar og stjúpa stóðu við gluggann og Anna hélt á barninu með gullhárið. Hérna getum við haft vögguna, sagði hún. Það er gott fyrir barnið að vakna upp við morgunsól- ina. Hún brosti en Elise vissi hvað leyndist á bak við brosið. Komdu inn, Elise, sagði hún blíðlega. Finnst þér ekki líka að barnið eigi að sofa hérna? Elise gekk til þeirra og Anna sagði eitthvað fleira. Elise greindi ekki orðin. Ekki að þau skiptu máli, hún þurfti ekkert á lygunum í Önnu að halda. Hún heyrði pabba sinn segja eitt- hvað um að „það væri orðið ómögulegt að ráða við hana“ og hún velti því fyrir sér um hvern þau væru að tala. Svo heyrði hún óljóst að Anna sagði eitthvað um „þolinmæði“ og „að reyna að skilja“ og „læknirinn sagði“. Og svo heyrði hún pabba sinn segja: Mér finnst að við ættum að senda hana til Oxnam. Elise vissi hvað það var. Það var fangelsið sem Anna hafði einu sinni sent hana til. Þar sem fangarnir voru pynt- aðir með ísköldu vatni og raflosti. Hún sneri sér við og flýtti sér í burtu. Það liðu margir dagar áður en hún komst aftur til sjálfrar sín. Það var aðeins í stutta stund, en nógu langa til þess að hún gat hent barninu hennar Önnu með gullhárið niður stigann og drepið það ... Kaiser sat í garðinum í síðdegissólinni og gerði við net bróður síns. Hann reyndi að hugsa um Toby, en fann að hann átti erfitt með að einbeita sér að konunni sinni fyrrverandi. Tónlistin sem hljómaði frá húsi ná- granna truflaði hann. Hann fann að það var ekki bara Julian Ferrare sjálfur sem hann þoldi ekki, tónlistin hans fór líka í taugarnar á honum. Skömmu áður hafði hann heyrt Christian spila sama lagið aftur og aftur. Hann hafði orðið svo reiður að það munaði litlu að hann bankaði upp á til þess að stöðva þá martröð. Dyrnar fyrir aftan hann opnuðust. Það er síminn til
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.