Vikan - 21.09.1999, Qupperneq 47
Hverju svarar lœknirinn ?
Kæri læknir,
Getur þú sagt mér
hvort kranavatnið hér á
landi er að einhverju
leyti skaðlegt fólki?
Hvað er óhætt að
drekka mikið af vatni á
dag?
Eg hef líka verið að
hugsa um skaðsemi ljósa-
bekkja og sólar. Getur
maður orðið brúnn þótt
maður beri á sig sólvarnar-
krem? Á maður að nota sól-
arvörn líka þegar maður fer
í ljósabekki?
Eg hef heyrt að það sé
minna hættulegt að fara í
ljósabekki en að liggja í sól-
baði úti, er það satt?
Eg er nefnilega orðin
hundleið á því að vera
næpuhvít og vona að þú get-
ir gefið mér einhver svör.
Með þökk
Ein fávís
Sæl
Kranavatnið á Islandi er
yfirhöfuð mjög gott. Það
voru þó til skamms tíma
vandamál hér og þar út um
landið en það á að vera búið
að laga það núna.
Svolítil kaldhæðni er að
það voru erlendar kröfur
fyrir fiskvinnsluna sem
komu vatninu í lag á mörg-
um stöðum. Það er gott fyrir
heils-
una að drekka vatn og nóg
af vatni. Auðvitað er ein-
staklingsbundið hversu mik-
ið þú þarft en margir segja 8
meðalstór vatnsglös á dag.
Þeir sem eru á lyfjum vegna
hjartasjúkdóma ættu samt
að spyrja lækninn sinn áður
en þeir byrja slíka vatns-
drykkju. Ég mæli með því
að fólk prófi. Vatnsdrykkja
hressir. Við erum að meiri-
hluta vatn og töpum á hverj-
um degi vatni úr líkamanum
með svita, öndun, slím-
myndun, saur og þvagi. Við
það að tapa vökva verðum
við þreytt og jafnvel hálf
syfjuð og hlaupa þá margir
til og fá sér kaffisopa eða
kóksopa. Koffínið
hressir stutta stund
en síðan veldur kaffi
enn meira vökvatapi
með því að verka
vatnslosandi, við piss-
um sem sagt meira eft-
ir kaffi- eða kók-
drykkju. Reynið frekar
að fá ykkur vatnsglas,
kalt eða heitt, eða þunnt
te, helst grænt, en vatn
með gosi í með eða án
bragðefna. Það verkar
eins og góður bolli af
sterku kaffi. Prófið!!
Vatnsdrykkja er talin
hjálpa til við að hreinsa
líkamann og léttir starf
nýrna og bætir hægðir líka.
Ég hef hitt marga sem hafa
tröllatrú á vatnsdrykkju.
Þegar þú ferð í sólarlampa
áttu náttúrulega að hegða
þér eins og þú sért að fara í
sól. Nota sólarvörn og
stunda sólarlampann í hófi.
Þú verður brún þó að þú
notir sólarvörn, hún hindrar
óæskilega geisla í að komast
að húðinni. Ég er ekki að
segja að þú eigir ekki að
fara í sólarlampa en þú
verður að muna að áhrifin
eru þau sömu og að vera í
sól. Langtímaáhrifin eru
hrukkur, meira áberandi hjá
konum, húðbreytingar eins
og flekkótt húð, litabreyt-
ingar, upphleyplir blettir og
síðan náttúrulega aukin
hætta á breytingum á fæð-
ingarblettum, þ.e. krabba-
mein í húð. íslendingar eru
meir og meir farnir að átta
sig á því að sól hefur skaðleg
áhrif á húð og getur það ver-
ið sérstaklega bagalegt í
andliti sérstaklega hjá ung-
um konum á öllum aldri. Nú
er vetur fram undan og upp-
lifa þá margir að þeir verði
latir og jafnvel þungir á sér
andlega, þá er gott að fara í
2-3 sólarlampatíma, en
margir hressast við það.
Annars er ég þess hvetjandi
að Islendingar fari frekar í
sólarfrí til útlanda að vetrin-
um en sumrinu því það
hressir svo marga við.
Sœl að sinni
Þorsteinn
Vikan 47