Vikan - 21.09.1999, Síða 60
TEXTI: SÆVAR HREIÐARSSON
KtMM!
TOLLIR EKKI í TÍSKUNNI
ítalska kynbomban Sophia Loren verður 65 ára hinn 20.
september og segist vera við hestaheilsu þrátt fyrir að
vinir og vandamenn hafi áhyggjur af heilsu hennar. í
fyrrasumar lá hún á spítala í 10 daga vegna hjartatrufl-
ana og slúðurblöð sögðu hana við dauðans dyr. I sumar
komst sú saga á kreik á ný eftir að Sophia hrasaði við
opinbera athöfn. „Ég ervel á mig komin. Þessi veikindi
voru ekki eins alvarleg og sagt var," segir Loren en hún
viðurkennir þó að hún fari hægar í sakirnar nú en áður.
Sophia segir margt hafa breyst síðan hún var upp á sitt
besta og henni finnst tískan í dag ekki merkileg. „Nú
snýst allt um geirvörturnar. Þetta er alveg hrikalegt, það
sést alltaf í geirvörturnar. Nlaður sér þetta á hverri ein-
ustu tískusýningu. Þetta er kannski ágætt fyrir karlmenn
en það getur ekki talist eðlilegt að konur séu svona til
fara,“ segir Sophia.
ENGIN FYRIRGEFNING
Hrollvekjurithöfundurinn Stephen King segist vera þakk-
látur fyrir að vera enn lifandi eftir að hann varð fyrir bíl
nálægt heimili sínu í júní. King er nú á góðum batavegi og
hvílist á heimili sínu í Bangor í Maine. King var í göngutúr
seint að kvöldi þegar sendibíll sveigði út af veginum á
fleygiferð og lenti beint á rithöfundinum. Hann gekkst
undir sex skurðaðgerðir og segist sennilega aldrei koma
til með að geta gengið eðiilega aftur. Ökumaður bílsins,
Bryan Smith, á að mæta fyrir kviðdóm I lok september
sem ákveður hvort hann verður ákærður. Sjálfur er King
mjög ósáttur við að ökumaðurinn skuli enn hafa ökurétt-
indi. „Það er Guðs mildi að hann skuli ekki þurfa að vera
ábyrgur fyrir dauða mínum," sagði King í fyrsta viðtalinu
sem hann veitti eftir slysið. Smith hefur lýst því yfir að
hann vilji hitta King og biðjast afsökunar en rithöfundur-
inn er ekki tilbúinn að taka við afsökunarbeiðninni. „Hann
hefur ekkert að bjóða sem ég hef áhuga á. Það eina sem
mér finnst hann hafa sem er þess virði að taka frá hon-
um er ökuskírteinið." King var margfótbrotinn og lungun
féllu saman. Auk þess segist hann hafa hlotið heila-
skemmdir. „Ég horfði á Titanic þegar ég kom heim af
spítalanum og ég grét. Þá sannfærðist ég um að ég hefði
hlotið heilaskaða!"
BARDAGAKAPPI
Jason Alexander skemmtir áhorfendum sem litli, þybbni
sérvitringurinn George Costanza í Seinfeld þáttunum.
Hann er ekki mjög ógnvænlegur í þáttunum en ekki er
allt sem sýnist. Það eru ekki margir sem vita að Alexand-
er er þrautþjálfaður í austurlenskri bardagalist og á síð-
ustu tveimur áratugum hefur hann kenntfjölmörgum
skólakrökkum sjálfsvarnartækni. „Hann fékk nóg af því
að láta stóru strákana lumbra á sér þegar hann var í
skóla og lærði að svara fyrir sig,“ segir náinn vinur leik-
arans. , , ,
TRUIR AVISINDIN
Leikarinn Christopher Reeve hefur verið lamaður síðan
hann kastaðist af hestbaki fyrir fjórum árum en hann læt-
f B g
fflf
w
m
ur engan bilbug á sér finna. Á dögunum mætti hann á
fund með helstu sérfræðingum Bandaríkjanna í barátt-
unni gegn mænuskaða og þeir eru staðráðnir í að finna
lækningu fyrir mænuskaddaða. Sjálfur segist leikarinn
ekki efast um að lækning finnist og hann muni geta
gengið á ný. „Ég hef aldrei verið í betra formi síðan ég
lenti I slysinu. Ég stunda mikla líkamsrækt, enda ségja
allir vísindamennirnir að þeir sem séu best á sig komnir
verði fyrstir til að ná sér,“ segir Reeve.
SÖNGELSK FJÖLSKYLDA
Söng- og leikkonan Olivia Newton-John mun hefja upp
rödd sína á hvíta tjaldinu á ný eftir langt hlé. Hún er nú að
leika í söngvamyndinni Sordid Lives sem byggð er á
söngleik um taugaveiklaða fjölskyldu fráTexas. Olivia
mun leika Bitsy Mae Harlin, fyrrverandi fanga og knæpu-
söngkonu. Hún samdi sjálf titillagið og syngur auk þess
fimm önnur lög í myndinni, sem verður væntanlega frum-
sýnd næsta vor. En Olivia er ekki sú eina í fjölskyldunni
með sönghæfileika. í sumar bárust þær fréttir að 13 ára
dóttir hennar, Chloe Lattanzi, væri komin í fjölskyldu-
bransann. Hún syngur lag í teiknimynd sem kallast The
Enchanted Billabong. Lagið heitir Beloved og verður gefið
út á smáskífu. Chloe Ijáir einnig einni sögupersónunni
rödd sína.
Heather Locklear er nýflutt frá Los Angeles til New York
þar sem hún mun leika í þáttunum Ó, ráðhús (Spin City)
með Michael J. Fox. Locklear og eiginmaður hennar, gít-
arleikarinn Richie Sambora, keyptu sér íbúð á Manhattan
og töldu sig vera flutt í sómasamlegt hverfi. En leikkonan
segist hafa fengið sjokk þegar hún var að sýna vinkonu
sinni nýju íbúðina. „Ég var að horfa út um gluggann og
fannst sem ég sæi nakinn mann í sturtu í næsta húsi,“
segir Locklear, sem var öllu meira út af fyrir sig í glæsi-
villu sinni í Beverly Hills. Vinkonan sannfærði hana um að
þetta væri bara plakat af nöktum manni. „En síðan sá ég
manninn hreyfa sig! Og hann var ekki í sturtu. Hann var í
eldhúsinu. Ég vona að ég verði ekki ein af þessum sem
eru alltaf á gægjum," segir leikkonan.
20. sept.: Kristen Johnston (1967), Sophia Loren (1934)
21. sept.: Liam Gallagher (1972), Ricki Lake (1968), Rob
Morrow (1962), NancyTravis (1961), Ethan Coen (1957),
Bill Murray (1950), Stephen King (1947), Leonard Cohen
(1934), Larry Hagman (1931) 22. sept.: Scott Baio
(1961), Catherine Oxenberg (1961) 23. sept.: Jason Al-
exander (1959), Bruce Springsteen (1949), Romy
Schneider (1938), Mickey Rooney (1920) 24. sept.:
Kevin Sorbo (1958), Pedro Almodóvar (1951) 25. sept.:
Jodie Kidd (1978), Catherine Zeta-Jones (1969), Will
Smith (1968), Tate Donovan (1963), Heather Locklear
(1961), Michael Madsen (1959), Christopher Reeve
(1952), Mark Hamill (1951), Michael Douglas (1944), Bar-
bara Walters (1931) 26. sept.: Linda Hamilton (1956),
Olivia Newton-John (1948)
Linda Hamilton verður 43
ára hinn 26. september.