Vikan - 12.10.1999, Blaðsíða 16
Ný, glæsileg kona! Þórdís er í fallegum, bláum glansandi jakka í lit sem undirstrikar hið
Ijósa yfirbragð hennar, teinarnir lengja lóðréttu línurnar. Búið að setja strípur í hárið á
henni og greiða það upp í lokka. Það er kominn bjartur litur á hárið og það klæðir Þórdísi
mjög vel að setja hárið upp. Þórdís hefur stór og falleg augu, en augnalokin slúta svolítið
niður, þannig að augnmálningin miðar að því að lyfta augnlokunum með Ijósum, björtum
og jafnvel skærum litum. Litirnir sem Guðrún hefur notað, draga fram græna litinn í aug-
unum. Hvítt er notað á augnbeinið til að lyfta augabrúnunum. Við dagmálningu fer Þórdísi
vel að hafa brúnbleikan varalit, en hún þolir vel rauðari liti við samkvæmisklæðnað.
Þórdís er með gott hár sem auðvelt er að eiga við. Hún hefur frítt andlit og glaðiegan svip, en er
hér gersamiega ómáluð. Hún er frjálslega vaxin og vill geta hreyft sig að vild. Hún vill ekki vera í
fatnaði sem er of stór eða laus utan á henni, en þó vill hún ekki að hann þrengi að.